Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur þegið boð Bernie Sanders og Yanis Varoufakis um að taka þátt í stofnun alþjóðlegu hreyfingarinnar Progressive International. Þessu greinir hún frá á Facebook.
Bandaríski þingmaðurinn Bernie Sanders bauð sig fram í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar 2016 og er einn vinsælasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna. Yanis Varoufakis er fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands og frambjóðandi til Evrópuþingsins. Í nýjasta tölublaði Stundarinnar er að finna ítarlegt viðtal við hann um Evrópusambandið, evruna og framtíð róttækra stjórnmála.
„Þátttaka mín grundvallast á tveimur þáttum,“ segir Katrín um samstarf sitt við Berine Sanders og Yanis Varoufakis. „Í fyrsta lagi tel ég afar mikilvægt að bregðast í sameiningu við uppgangi valdboðshyggju í heiminum, sem er bein ógn við lýðræði og mannréttindi, auk þess að grafa undan hornsteinum lýðræðisins á borð við réttarkerfið og sjálfstæða fjölmiðlun. Í öðru lagi vil ég styðja við þá jákvæðu sýn sem liggur Progressive International til grundvallar, það er baráttan fyrir almennri velferð, öryggi og reisn fyrir allt fólk.“
Þá segir hún að hleypa þurfi lífi í alþjóðlega samvinnu á vinstri vængnum til að draga megi úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði, gera breytingar á hinu alþjóðlega fjármálakerfi, snúa frá vopnakapphlaupinu og stöðva loftslagsbreytingar.
„Nýr alþjóðlegur sáttmáli (International New Deal) gefur fyrirheit um að þarfir venjulegs fólks og jaðarsettra hópa verði sett í öndvegi og að um leið höfnum við stjórnmálum sem hagnýta efnahagslegt óöryggi til að kynda undir útlendingaandúð, kynþáttahyggju, kvenhatri og menningarlegum rasisma,“ segir Katrín.
Athugasemdir