Gunnar Bragi hafði heimilisofbeldi í flimtingum: „Já sundkellingin þarna, voruð þið að lemja hana? Hahaha!“
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, gantaðist með að Ragnheiður Runólfsdóttir afrekskona í sundi hefði orðið fyrir ofbeldi. „Sá sem lemur Röggu Run, hann á ekki séns á Vesturlandi,“ sagði Bergþór Ólason.
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
2
Viðtal
2193
Misstu vinnuna í Covid og opnuðu hringrásarverslun
Hjónin Davíð Örn Jóhannsson og Jana Maren Óskarsdóttir opnuðu hringrásarverslun með fatnað og fylgihluti við Hlemm og vilja stuðla að endurnýtingu á fatnaði.
3
FréttirSamherjaskjölin
15138
Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja
Nú er ljóst að Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi verða ekki látnir lausir úr gæsluvarðhaldi í Namibíu. Þeir sitja inni grunaðir um að hafa þegið mútugreiðslur frá Samherja sem Þorsteinn Már Baldvinsson kannast ekki við.
4
Þrautir10 af öllu tagi
4258
306. spurningaþraut: Tungumálin oromo og amharíska, hvar eru þau töluð?
Gærdagsþrautin, hér. * Aukaspurning: Í hvaða borg er sú hin litríka brú er hér að ofan sést? * 1. Í hvaða landi var Bismarck helstur valdamaður 1871-1890? 2. Í hvaða landi er Chernobyl? 3. Hver keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision bæði 1999 og 2005? 4. Hvaða þjóð varð heimsmeistari í fótbolta karla árið 1970 eftir að hafa unnið Ítali...
5
Fréttir
1879
Lítill stuðningur í umsögnum við verðtryggingarfrumvarp
Frumvarp um skref til afnáms verðtryggingar, sem ríkisstjórnin lofaði samhliða lífskjarasamningum, fellur ekki í kramið hjá aðilum vinnumarkaðarins, fjármálafyrirtækjum og Seðlabankanum.
6
Aðsent
10184
Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir
Mamma þarf líka að vinna
Hverjum gagnast efnahagsaðgerðir stjórnvalda þegar kemur að atvinnumálum?
7
FréttirLaxeldi
3184
Eigandi Arnarlax boðar „nýja tíma“ með aflandseldi en fagnar samtímis 10 þúsund tonna strandeldi í Djúpinu
Stærsti eigandi Arnarlax, norski laxeldisrisinn Salmar, setur aukinn kraft í þróun á aflandseldi á sama tíma og fyrirtækið fær jákvæð viðbrögð frá yfirvöldum á Íslandi um að stórauka framleiðsluna í fjörðum landsins.
Prentútgáfa Stundarinnar kemur næst út þann 12. mars.
Mynd: Miðflokkurinn
G
unnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, gantaðist með það á Klaustri Bar að Ragnheiður Runólfsdóttir, afrekskona í sundi, hefði orðið fyrir heimilisofbeldi.
Magnús Þór Hafsteinssonframkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins
Mynd: Flokkur fólksins
„Já sunddrottninguna já, voruði að lemja hana?“ segir hann á hljóðupptökunni sem Stundin hefur undir höndum og skellir upp úr.
Ragnheiður steig fram í viðtali við Akureyri Vikublað í október 2017 og opnaði sig um heimilisofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi barnsföður síns og sambýlismanns til margra ára, Magnúsar Þórs Hafsteinssonar.
Magnús Þór, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins sem í dag er framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, vísaði ásökunum á bug í fyrra og kvartaði undan því sem hann kallaði „gróft netníð“.
Á Klausturssamkomu þingmannanna sex var rætt um málið á léttu nótunum:
Bergþór: „Sá sem lemur Röggu Run, hann á ekki séns á Vesturlandi.“
Anna Kolbrún: „Ég veit það. Veistu, ég er sammála þér, ég skil ekkert í ykkur.“
Gunnar Bragi: „Ha? Sá sem lemur Röggu Run? Hver er það?“
Bergþór: „Já.“
Gunnar Bragi: „Já sundkellingin þarna, voruði að lemja hana? Hahahahahaha!“
Bergþór: „Maggi gerði það sko.“
Stundin hafði samband við Ragnheiði Runólfsdóttur við vinnslu fréttarinnar og greindi henni frá þessum orðaskiptum. Hún vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Ofbeldisfullt orðfæri um Lilju Alfreðsdóttur
Stundin hefur fjallað með ítarlegum hætti um þá kvenfyrirlitningu sem birtist í samskiptum þingmannanna á Klaustri Bar. Eins og fram hefur komið kallaði Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, „húrrandi klikkaða kuntu“ auk þess sem þingmennirnir göntuðust með að það væri eðlilegt að kona sem væri ekki jafn „hot“ og áður yrði látin gjalda fyrir það í prófkjörum. „Það fellur hratt á hana,“ sagði Bergþór um Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.
„Þú getur riðið henni skilurðu“
Þá töluðu karlarnir í Miðflokknum með ógeðfelldum hætti um Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. „Hjólum í helvítis tíkina!“ sagði Gunnar Bragi. „Fuck that bitch,“ sagði Bergþór og bætti svo við: „Þú getur riðið henni skilurðu.“ Þá sagði hann: „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asnaeyrunum en hún sem ég hef ekki fengið að ríða.“ Sigmundur Davíð sagðist vona að konan hans heyrði ekki til hans, en að hann hefði „alveg verið til í þetta dæmi“. Hins vegar hefði komið í ljós að Lilju væri ekki treystandi. „Og hún spilar á karlmenn eins og kvenfólk kann.“
UN Women: Gunnar Bragi hefur skaðað HeForShe
Í ráðherratíð sinni í utanríkisráðuneytinu vakti Gunnar Bragi heimsathygli fyrir þátttöku sína í He for She átakinu um kynjajafnrétti. „Hingað til hefur umræðan verið í höndum kvenna. En til þess að koma á varanlegum breytingum mega menn ekki vera fjarverandi frá umræðunni. Við karlmenn erum hluti af vandamálinu, en einnig hluti af lausninni,“ skrifaði Gunnar Bragi í grein sem birtist í The Guardian og leikkonan Emma Watson hældi.
Þá stóð Gunnar Bragi og ráðuneyti hans fyrir Rakarastofuráðstefnunni (e. Barbershop Conference) svokölluðu með Súrínam á þingi Sameinuðu þjóðanna í New York þar sem markmiðið var að virkja karla í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.
UN Women á Íslandi sendi frá sér fréttatilkynningu á föstudag þar sem fram kom að með framgöngu sinni á Klaustri Bar hefði Gunnar Bragi skaðað orðspor HeForShe. Ummæli sem hann lét falla séu óásættanleg og staðfesti hve mikið verk er enn óunnið í baráttunni fyrir kynjajafnrétti á Íslandi.
Mynd: Framsóknarflokkurinn
Árið 2015 hlaut Gunnar Bragi jafnréttisviðurkenningu á flokksþingi Framsóknarflokksins. „Viðurkenningin er veitt fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu flokksins sem varðar að jafna stöðu karla og kvenna,“ sagði í fréttatilkynningu um málið. Á myndinni hér að ofan má sjá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, sem á þessum tíma var formaður Framsóknarkvenna, afhenda Gunnari Braga blómvönd.
„Ég taldi mér trú um að ég yrði að vera kyrr“
Mynd: Akureyri Vikublað
„Þetta var erfitt tímabil en ég held að ég að ég hafi komið út sterkari þótt það hafi tekið sinn tíma,“ sagði Ragnheiður Runólfsdóttir, fyrrverandi sunddrottning í viðtalinu við Akureyri vikublað síðasta haust.
„Ef ég horfi til baka sé ég viðvörunarbjöllurnar sem dingluðu, strax í upphafi og út sambandið, en ég hlustaði ekki á þær. Ég vildi ekki ganga aftur í gegnum skilnað og fannst ég þurfa að standa mína plikt; að ég ætti ekki að gera mikið úr þessu, standa mig, vinna, koma börnunum út í heiminn og vera ánægð með mitt. Ég hafði allt – góða vinnu, frábæra fjölskyldu, húsnæði og yndisleg börn og fannst að ég hlyti að geta verið ánægð. Ég taldi mér trú um að ég yrði að vera kyrr, en smám saman gerði ég mér grein fyrir að ég vildi það ekki og ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun.“
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
2
Viðtal
2193
Misstu vinnuna í Covid og opnuðu hringrásarverslun
Hjónin Davíð Örn Jóhannsson og Jana Maren Óskarsdóttir opnuðu hringrásarverslun með fatnað og fylgihluti við Hlemm og vilja stuðla að endurnýtingu á fatnaði.
3
FréttirSamherjaskjölin
15138
Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja
Nú er ljóst að Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi verða ekki látnir lausir úr gæsluvarðhaldi í Namibíu. Þeir sitja inni grunaðir um að hafa þegið mútugreiðslur frá Samherja sem Þorsteinn Már Baldvinsson kannast ekki við.
4
Þrautir10 af öllu tagi
4258
306. spurningaþraut: Tungumálin oromo og amharíska, hvar eru þau töluð?
Gærdagsþrautin, hér. * Aukaspurning: Í hvaða borg er sú hin litríka brú er hér að ofan sést? * 1. Í hvaða landi var Bismarck helstur valdamaður 1871-1890? 2. Í hvaða landi er Chernobyl? 3. Hver keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision bæði 1999 og 2005? 4. Hvaða þjóð varð heimsmeistari í fótbolta karla árið 1970 eftir að hafa unnið Ítali...
5
Fréttir
1879
Lítill stuðningur í umsögnum við verðtryggingarfrumvarp
Frumvarp um skref til afnáms verðtryggingar, sem ríkisstjórnin lofaði samhliða lífskjarasamningum, fellur ekki í kramið hjá aðilum vinnumarkaðarins, fjármálafyrirtækjum og Seðlabankanum.
6
Aðsent
10184
Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir
Mamma þarf líka að vinna
Hverjum gagnast efnahagsaðgerðir stjórnvalda þegar kemur að atvinnumálum?
7
FréttirLaxeldi
3184
Eigandi Arnarlax boðar „nýja tíma“ með aflandseldi en fagnar samtímis 10 þúsund tonna strandeldi í Djúpinu
Stærsti eigandi Arnarlax, norski laxeldisrisinn Salmar, setur aukinn kraft í þróun á aflandseldi á sama tíma og fyrirtækið fær jákvæð viðbrögð frá yfirvöldum á Íslandi um að stórauka framleiðsluna í fjörðum landsins.
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
2
Viðtal
2193
Misstu vinnuna í Covid og opnuðu hringrásarverslun
Hjónin Davíð Örn Jóhannsson og Jana Maren Óskarsdóttir opnuðu hringrásarverslun með fatnað og fylgihluti við Hlemm og vilja stuðla að endurnýtingu á fatnaði.
3
Aðsent
10184
Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir
Mamma þarf líka að vinna
Hverjum gagnast efnahagsaðgerðir stjórnvalda þegar kemur að atvinnumálum?
4
FréttirSamherjaskjölin
15138
Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja
Nú er ljóst að Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi verða ekki látnir lausir úr gæsluvarðhaldi í Namibíu. Þeir sitja inni grunaðir um að hafa þegið mútugreiðslur frá Samherja sem Þorsteinn Már Baldvinsson kannast ekki við.
5
Úttekt
6135
Öryggi stúdenta ótryggt í vaxandi atvinnuleysi
Félagsefnahagslegar afleiðingar Covid-kreppunnar hafa snert þúsundir landsmanna undanfarið ár. Í vaxandi atvinnuleysi stendur námsfólk utan þess öryggisnets sem aðrir samfélagshópar geta stólað á.
6
ViðtalHamingjan
7134
Iðkar þakklæti: „Ekkert getur gert okkur hamingjusöm nema við sjálf“
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir segir að hamingjan sé ákvörðun, hún sé einnig ferðalag en ekki ákvörðunarstaður. Hún segist iðka þakklæti daglega með því að taka eftir því góða í kringum sig.
7
Fréttir
75131
Losun hvers Íslendings tvöfalt meiri en losun hvers Svía
Losun gróðurhúslofttegunda á Íslandi væri fimmfalt meiri ef ekki væri fyrir endurnýjanlega orkugjafa hérlendis. Engu að síður er losun á hvern Íslending mikil í alþjóðlegum samanburði.
Mest lesið í vikunni
1
ViðtalHeimavígi Samherja
94544
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
3
ViðtalHeimavígi Samherja
20170
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
4
Spurt & svaraðHeimavígi Samherja
137402
Samherji kaupir dagskrárefni af sjónvarpsstöð á Akureyri
Fjölmiðillinn N4 rekur sjónvarpsstöð á Akureyri. Miðillinn hefur tekið að sér dagskrárgerð, kostaða af Samherja, en telja það vel falla inn í þá starfsemi sem miðillinn heldur úti. „Við erum ekki fréttastöð,“ segir dagskrárgerðarmaðurinn Karl Eskil Pálsson.
5
FréttirHeimavígi Samherja
62506
Umdeild aðkoma Samherja að fjölmiðlum
Blaðamannafélag Íslands fordæmdi í fyrra aðgerðir Samherja gagnvart fjölmiðlum. Þorsteinn Már Baldvinsson átti fimmtung í Morgunblaðinu. Samherji hefur keypt umfjöllun frá sjónvarpsstöðinni N4 á Akureyri. Sjónvarpsstöðin Hringbraut braut fjölmiðlalög í samstarfi við Samherja.
6
FréttirHeimavígi Samherja
50372
Samherji notaði sex milljarða frá Kýpur og Afríku til að kaupa kvóta og fiskvinnslu á Akureyri
Stórfelldar lánveitingar Samherja frá Kýpur til félaga á Akureyri sína hvernig peningarnir komast til Íslands frá fiskmiðunum í Afríku sem Samherji hefur hagnast svo vel á.
7
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
142
Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjölfarið á skjálftahrinunni á Reykjanesi.
Mest lesið í mánuðinum
1
Leiðari
194615
Jón Trausti Reynisson
Harmleikur Katrínar Jakobsdóttur
Ólíkt fyrri forsætisráðherrum talar Katrín Jakobsdóttir ekki niður til fólks.
2
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
127994
„Ég lærði að gráta í þögn“
Á því rúma ári sem Sigurósk Tinna Pálsdóttir var vistuð á meðferðarheimilinu Laugalandi var hún brotin þannig niður að allt hennar líf hefur litast af því. Hún lýsir óttanum og vanlíðaninni sem var viðvarandi á heimilinu. Þegar Tinna greindi frá kynferðisbrotum sem hún hafði orðið fyrir var henni ekki trúað og hún neydd til að biðjast afsökunar á að hafa sagt frá ofbeldinu. „Ég gerði ekki neitt, það voru þau.“
3
Aðsent
991.265
Dagný Halla Ágústsdóttir, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir
Dökka hlið TikTok algóriþmans
Opið bréf til foreldra um notkun barna á TikTok - frá þremur unglingum sem nota TikTok.
4
Viðtal
16459
„Ég var svo bugaður að mig langaði helst að hefja nýtt líf“
Síðasta árið hefur Vilhelm Neto tekið á kvíðanum og loksins komist á rétt ról á leiklistarferlinum.
5
Rannsókn
3951.060
Syndir Varnarliðsins: Blýmengun í drykkjarvatni á Ásbrú
Rannsókn Stundarinnar sýnir að enn mælist blý í drykkjarvatni á Ásbrú í Reykjanesbæ, og var allt að tvö þúsund sinnum meiri en leyfilegt var þegar verst lét. Blý getur haft óafturkræf og alvarleg áhrif á heilsu fólks, sérstaklega barna.
6
Pistill
358870
Bragi Páll Sigurðarson
Hvítur, gagnkynhneigður karlmaður talar frá Reykjavík
Í þessu samfélagi hönnuðu fyrir hvíta, gagnkynhneigða, ófatlaða sæmilega stæða karla, ætti að vera rými fyrir alla hina að hafa jafnháværar raddir.
7
ViðtalHeimavígi Samherja
94544
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
Nýtt á Stundinni
Pistill
26
Illugi Jökulsson
Það er bannað í Búrma
„Fasisminn er í alvöru á uppleið,“ skrifar Illugi Jökulsson um beitingu hryðjuverka- og sóttvarnalaga til að kæfa niður lýðræði.
ViðtalHamingjan
7134
Iðkar þakklæti: „Ekkert getur gert okkur hamingjusöm nema við sjálf“
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir segir að hamingjan sé ákvörðun, hún sé einnig ferðalag en ekki ákvörðunarstaður. Hún segist iðka þakklæti daglega með því að taka eftir því góða í kringum sig.
Fréttir
75131
Losun hvers Íslendings tvöfalt meiri en losun hvers Svía
Losun gróðurhúslofttegunda á Íslandi væri fimmfalt meiri ef ekki væri fyrir endurnýjanlega orkugjafa hérlendis. Engu að síður er losun á hvern Íslending mikil í alþjóðlegum samanburði.
Þrautir10 af öllu tagi
2846
308. spurningaþraut: North, Saint, Chicago og Psalm?
Þraut frá í gær, hlekkur. * Fyrri aukaspurning. Á myndinni hér að ofan er stjórnmálakona ein. Hvað heitir hún? * Aðalspurningar: 1. Hlaupsárdaginn 29. febrúar 1996 lauk lengsta hernaðarumsátri um nokkra borg á seinni tímum. Það hafði staðið í þrjú ár, tíu mánuði, þrjár vikur og þrjá daga. Hvaða borg var þetta? 2. Árið 1066 var háð fræg orrusta þar...
Fólkið í borginni
17
„Ég er vanur því að allt sé grátt“
Sakaris Emil Joensen flutti til Reykjavíkur frá Færeyjum til að elta drauma sína sem tónlistaframleiðandi.
Viðtal
2193
Misstu vinnuna í Covid og opnuðu hringrásarverslun
Hjónin Davíð Örn Jóhannsson og Jana Maren Óskarsdóttir opnuðu hringrásarverslun með fatnað og fylgihluti við Hlemm og vilja stuðla að endurnýtingu á fatnaði.
Menning
8
Sígildir sunnudagar snúa aftur í Hörpu
Klassíska tónleikaröðin sem átti að endurvekja síðastliðinn nóvember hefur göngu sína á ný. Á morgun verður frumflutt ný kammerópera eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
Úttekt
6136
Öryggi stúdenta ótryggt í vaxandi atvinnuleysi
Félagsefnahagslegar afleiðingar Covid-kreppunnar hafa snert þúsundir landsmanna undanfarið ár. Í vaxandi atvinnuleysi stendur námsfólk utan þess öryggisnets sem aðrir samfélagshópar geta stólað á.
Þrautir10 af öllu tagi
4067
307. spurningaþraut: Hákarlaskip, Tuvalu, hver fæddist í Halifax fyrir 30 árum?
Prófiði nú þrautina frá í gær — hér er hana að finna. * Aukaspurningar eru tvær að þessu sinni. Sú fyrri er svona: Hér að ofan má sjá skopteikningu frá tíma þorskastríðanna. Teiknarinn var í áratugi einn vinsælasti og afkastamesti teiknari landsins og stíll hans flestum kunnur. Hvað hét hann? * Aðalspurningar eru hins vegar tíu að þessu sinni, og...
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
Viðtal
5
Seldi paprikustjörnur til Kína
Draugur upp úr öðrum draug, fyrsta einkasýning Helenu Margrétar Jónsdóttir, stendur yfir í Hverfisgallerí til 13. mars. Helena leikur sér að víddum. Ofurraunveruleg málverk hennar eru stúdíur í hversdagsleika, formgerð, dýpt og flatneskju. Á verkum hennar má finna klassískt íslenskt sælgæti, eitthvað sem margir teygja sig í þegar þeir eru dálítið þunnir, sem er einkennandi fyrir titilveru sýningarinnar.
Mynd dagsins
19
Glæsilegt hjá Grænlendingum
Ferðamenn sem koma hingað frá Grænlandi eru nú, einir þjóða, undanþegnir aðgerðum á landamærum og þurfa því hvorki að fara í skimun, sóttkví eða framvísa neikvæðu PCR-prófi. „Það hefur gengið vel, einungis 30 Covid-19 smit verið í öllu landinu." segir Jacob Isbosethsen (mynd) sendiherra Grænlands á Íslandi. Ef jafnmargir hefðu smitast hér og og á Grænlandi hefðu 195 manns fengið Covid-19. Í morgun var talan örlítið hærri, 6049 einstaklingar hafa fengið farsóttina hér heima.
Þín áskrift hefur áhrif
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni með áskriftum og styrkjum frá febrúar 2015. Með því að kaupa áskrift styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Athugasemdir