Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Eygló kölluð „galin kerlingarklessa“ á fundi þingmanna

Karl Gauti Hjalta­son, þing­mað­ur Flokks fólks­ins, sem lengi var sýslu­mað­ur í Vest­manna­eyj­um, fór hörð­um orð­um um Eygló Harð­ar­dótt­ur, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­mann úr kjör­dæm­inu, á upp­töku.

Eygló kölluð „galin kerlingarklessa“ á fundi þingmanna
Karl Gauti Hjaltason og Eygló Harðardóttir Karl Gauti var sýslumaður í Vestmannaeyjum á meðan Eygló var í stjórnmálum í kjördæminu.

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Flokks fólksins, kallaði Eygló Harðardóttur, fyrrverandi ráðherra, „galna kerlingarklessu“ á Klaustur bar 20. nóvember síðastliðinn.

Karl sat ásamt Ólafi Ísleifssyni, flokksbróður sínum, og fjórum þingmönnum Miðflokksins á barnum. Ræddi hópurinn meðal annars möguleg vistaskipti Karls og Ólafs yfir í Miðflokkinn. Stundin hefur undir höndum upptöku af samskiptum þeirra, en þingmennirnir voru háværir og vakti hegðun þeirra athygli í vitna viðurvist.

„Hún bjó í Vestmannaeyjum, þess vegna studdi hana enginn,“ sagði Karl við kollega sína. „Það var ekkert í henni, það var ekkert í henni. Það var ekkert að frétta hjá þessari konu. Galin kerlingarklessa.

Eygló var þingmaður Framsóknarflokksins frá 2008 til 2017 og félags- og húsnæðismálaráðherra í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar frá 2013 til 2017. Hún bjó um langt skeið í Vestmannaeyjum, þar sem Karl Gauti var sýslumaður frá 1998 til 2014.

Þingmennirnir á barnum létu ýmis óviðurkvæmileg orð falla í garð stjórnmálakvenna, líkt og fjallað hefur verið um hérhér, hérhérhér og hér. Haft var eftir Karli Gauta í Stundinni að Inga Sæland gæti „grenjað“ en ekki stjórnað. 

Rekinn úr flokknum 

Flokkur fólksins tilkynnti rétt í þessu að „í ljósi trúnaðarbrests sem upp er kominn“ í þingflokknum hafi stjórnin ákveðið að víkja þeim Karli Gauta og Ólafi Ísleifssyni úr flokknum. Við ákvörðunina var stuðst við samþykktir flokksins, þar sem segir meðal annars að „sé félagsmaður staðinn að því að vinna gegn meginmarkmiðum og hagsmunum Flokks fólksins, skal hann sviptur félagsaðild“. Í yfirlýsingu stjórnar kom fram að hún harmi þá rýrð sem umræddir þingmenn hafa kastað á Flokk fólksins, með óafsakanlegri þátttöku sinni á fundi með þingmönnum Miðflokksins. Undir yfirlýsinguna skrifar formaður flokksins, Inga Sæland. 

Karl Gauti taldi sig hins vegar geta verið áfram í Flokki fólksins, eins og fram kom í fréttum í gær. Honum liði illa yfir málinu og hefði beðið Ingu afsökunar. 

„Ég harma ummæli sem ég lét falla á veitingastað fyrir stuttu síðan og hafa birst í nokkrum fjölmiðlum. Af því tilefni vil ég taka fram að ég er ekki á förum úr Flokki fólksins, styð stefnu flokksins og ber traust til formanns hans, Ingu Sæland,“ sagði Karl í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum.

Telja þeim ekki stætt á þingi

Þingkonur sem voru lítilsvirtar í samtali þingmanna Miðflokksins og Flokksins líta svo á að þátttakendum í þessu samtali sé ekki stætt að sitja áfram á Alþingi. Fjöldi þingmanna hefur fordæmt málflutning þeirra og forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, sagði ummælin óafsakanleg og óverjandi. Hópur þingmanna sendi í gær erindi á forsætisnefnd Alþingis þar sem þess var óskað að siðanefnd Alþingis tæki málið fyrir. 

Fyrr í dag var þeim tilmælum beint að Karli Gauta að hann myndi ekki sitja fund umhverfis- og samgöngunefndar, þegar Íris Róbertsdóttir, bæjarsjóri Vestmannaeyja var gestur nefndarinnar. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og formaður nefndarinnar, lét sig einnig hverfa af fundinum áður en Íris mætti. 

„Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan,“ sagði Bergþór meðal annars um Írisi. „Og á þeim forsendum segi ég að hún hrynji niður listann,“ svaraði Sigmundur Davíð og Bergþór tók undir það: „Eðlilega.“

Vildu fá þá yfir

Í fréttum Stundarinnar hefur einnig komið fram að Miðflokkurinn sóttist eftir því að fá Karl Gauta og Ólaf Ísleifsson yfir til sín, þar sem þeir sátu saman að sumbli á Klaustri. 

Nú eru þeir Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólafsson „komnir í leyfi“ frá þingstörfum fyrir Miðflokkinn, en Sigmundur Davíð, sem einnig tók þátt í samtalinu tilkynnti Miðflokksmönnum það með tölvupósti í dag. 

Í tölvupóstinum sagðist Sigmundur Davíð oft hafa setið slíkar samræður án þess að stöðva þær og gerði lítið úr því að þær tengdust kyni fólksins sem þar átti í hlut eða flokksaðild. „Ég hef hlustað á þingmenn flestra flokka úthúða flokksfélögum sínum og nota orðbragð sem í sumum, jafnvel mörgum, tilvikum er enn grófara en það sem birst hefur að undanförnu. Þingmenn af báðum kynjum eiga þar í hlut og fórnarlömbin eru auk þess af báðum kynjum.“

Í gær þvertók Gunnar Bragi þó fyrir það að málið væri ástæða til afsagnar og sagðist ekki hafa brotið af sér, aðeins hegðað sér asnalega. Aðspurður sagðist hann vel geta staðið undir því að verða sendiherra og hann myndi íhuga það yrði honum boðin slík staða. Viðtalið við Gunnar Braga var tekið áður en Stundin greindi frá áformum hans um hefndaraðgerðir gegn Lilju Alfreðsdóttur, sem hann lýsti í samsætinu á Klaustri. 

Aðeins Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, sagðist taka ábyrgð sína alvarlega í gær og að hún væri að íhuga að víkja vegna málsins. Ef af því verður hverfur eina þingkona Miðflokksins af þingi. 

Framhaldið veltur á hinum 

Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur meðal annars kennt siðfræði í opinberri stjórnsýslu, hefur verið í forsvari fyrir Gagnsæi - samtök gegn spillingu. Samtökin birtu í dag færslu á Facebook þar sem bent var á að það er ekki persónuleg ákvörðun þessara þingmanna hvort þeir muni segja af sér.

„Framhald þessa máls veltur ekki á þingmönnunum sex: Viðbrögð þeirra eru fyrirsjáanleg. Þeir munu reyna að halda sætum sínum og segjast sjá eftir öllu saman eins lengi og aðrir leyfa þeim það. Framhaldið veltur á hinum: Hvort flokksfélagarnir sniðganga þá eða fyrirgefa þeim „stráksskapinn“, hvort aðrir þingmenn neita að vinna með þeim eða láta eins og ekkert hafi í skorist – svona þegar verstu lætin eru liðin hjá.

Nú er það Alþingi sjálft sem þarf að sýna hvort það ætlar að samsama sig menningarstigi sexmenninganna, eða loksins reka af sér slyðruorðið og sýna að ruddaskapur, klámkjaftur og ofbeldisfullt þrugl hefur afleiðingar.
Þetta gera hinir 57 þingmennirnir og flokkar sexmenninganna með því einfaldlega að sniðganga þá og sýna þeim að það er hægt að fyrirgera rétti sínum til valda og áhrifa, jafnvel þó að formlega takist manni að hanga á þingsæti sínu.“

Uppfært 3. desember: 

Karl Gauti sendi frá sér yfirlýsingu um helgina þar sem hann fullyrðir að orðin um að  Eygló Harðardóttir sé „galin kerlingarklessa“ og að það sé „ekkert í henni“ séu ekki sín heldur einhvers annars sem sat á Klaustri Bar. „Ég þekki mitt orðfæri og mína rödd. Þessi orð voru ekki mín og sú rödd sem tal­ar er það ekki held­ur,“ segir Karl Gauti. Erfitt er að greina á upptökunni hvort Karl Gauti eða Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, lætur orðin falla. Karl Gauti er úr Vestmannaeyjum, eins og Eygló, en Gunnar Bragi var samráðherra Eyglóar í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem einnig var viðstaddur umræðurnar. Gunnar Bragi hefur sjálfur sagt að hann muni lítið eftir því sem hann sagði í umræðunum og sé hissa á þeim orðum sem hann hefur heyrst segja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Berg­þór gerð­ur að nefnd­ar­for­manni með tveim­ur at­kvæð­um – Full­trú­ar annarra flokka sátu hjá

Berg­þór Óla­son klæmd­ist og út­húð­aði stjórn­mála­kon­um á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typp­ið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar hon­um for­mennsku með hjá­setu í at­kvæða­greiðslu, en að­eins Berg­þór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu at­kvæði með því að hann yrði formað­ur.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ing­ar Berg­þórs og Gunn­ars Braga á um­mæl­um um Al­bertínu skiptu ekki máli

Eft­ir að siðanefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að um­mæli Gunn­ars Braga og Berg­þórs Óla­son­ar um Al­bertínu Frið­björgu Elías­dótt­ur og MeT­oo væru brot á siða­regl­um sögð­ust þing­menn­irn­ir hafa ver­ið að lýsa erfiðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kem­ur lýsingu BÓ og GBS á sam­skipt­um þeirra við Al­bertínu Frið­björgu Elías­dótt­ur, sbr. kafli 2.5., verð­ur ekki séð að lýsing­ar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxt­um,“ seg­ir for­sæt­is­nefnd.

Mest lesið

Kaup Kviku á Ortus: Kjartan hagnaðist um nærri 200 milljónir sama ár
2
Fréttir

Kaup Kviku á Ort­us: Kjart­an hagn­að­ist um nærri 200 millj­ón­ir sama ár

Einn af þeim al­menn­ings­hluta­fé­lag­ið Kvika keypti hluta­bréf í breska veð­lána­fyr­ir­tæk­inu Ort­us af ár­ið 2022 var fé­lag í eigu fjár­fest­is­ins Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann og Ár­mann Þor­valds­son, þá­ver­andi að­stoð­ar­for­stjóri Kviku og nú­ver­andi for­stjóri, eru við­skipta­fé­lag­ar og áttu með­al ann­ars báð­ir hluta­bréf í Ort­us á sama tíma.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
4
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.
Þórður Snær Júlíusson
6
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
8
FréttirLaxeldi

Rík­is­stjórn­in vill gefa kvót­ann í lax­eld­inu um ald­ur og ævi

Í frum­varpi mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi er kveð­ið á um að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in í land­inu hafi „ótíma­bund­in“ rekstr­ar­leyfi til að stunda sjókvía­eldi í ís­lensk­um fjörð­um. Hing­að til hafa rekstr­ar­leyf­in ver­ið tíma­bund­in í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórn­völd á Ís­landi ekki geta bann­að sjókvía­eldi án þess að baka sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um.
Kostnaður við árshátíð fram úr skattfrelsi: „Ekki einhver trylltur glamúr“
9
Viðskipti

Kostn­að­ur við árs­há­tíð fram úr skatt­frelsi: „Ekki ein­hver tryllt­ur glamúr“

Kostn­að­ur á hvern starfs­mann við árs­há­tíð Lands­virkj­un­ar fór fram úr skatt­frjáls­um kostn­aði um 34 til 230 þús­und á mann, eft­ir því hvernig á það er lit­ið, og gæti starfs­fólk­ið því þurft að greiða skatt af þeim krón­um. Lands­virkj­un ætl­ar, að sögn upp­lýs­inga­full­trúa, að fara að lög­um og regl­um um skatt­skil en gef­ur ekki uppi hvernig upp­gjör­inu er hátt­að gagn­vart starfs­fólk­inu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Verðmætin okkar felast líka í að nýta náttúruna“
6
FólkForsetakosningar 2024

„Verð­mæt­in okk­ar fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una“

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hafa sömu vök­ulu augu sem hún hef­ur haft sem orku­mála­stjóri og nýta þau, og rödd sína, með sterk­ari hætti í embætti for­seta. Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta en verð­mæt­in fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una. „Fyr­ir mér felst þetta í jafn­vægi og virð­ingu í sam­skipt­um, við þurf­um ekki að deila svona mik­ið.“
Jón Gnarr segir að ísraelskir landnemar í Palestínu þurfi að hypja sig
8
FréttirForsetakosningar 2024

Jón Gn­arr seg­ir að ísra­elsk­ir land­nem­ar í Palestínu þurfi að hypja sig

Jón Gn­arr lýs­ir yf­ir harðri and­stöðu við stríð­ið í Palestínu í ný­legu við­tali í hlað­varp­inu Vakt­inn. Hann vill taf­ar­laust vopna­hlé, póli­tíska end­ur­nýj­un í Ísra­el og að land­töku­byggð­ir Ísra­els í Palestínu verði lagð­ar nið­ur. „Það þarf bara að jafna þetta við jörðu og segja þessu liði að hypja sig.“
Það er búið að einkavæða hafið og færa örfáum á silfurfati
9
Allt af létta

Það er bú­ið að einka­væða haf­ið og færa ör­fá­um á silf­urfati

Kjart­an Páll Sveins­son, formað­ur Strand­veiði­fé­lags­ins, elsk­ar haf­ið út af líf­inu, eins og hann orð­ar það, og vill ekki að það sé tek­ið af hon­um eða öðr­um Ís­lend­ing­um. Hann seg­ir haf­ið hafa ver­ið tek­ið af þjóð­inni, einka­vætt og fært ör­fá­um á silf­urfati. Hann vill að strand­veiði fái stærri hluta úr pott­in­um og pott­ur­inn fyr­ir aðra en kvótakónga stækki.
Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál
10
FréttirForsetakosningar 2024

Sig­ríð­ur Hrund greiddi fyr­ir við­tal á NBC – Verð­ið trún­að­ar­mál

Sig­ríð­ur Hrund Pét­urs­dótt­ur for­setafram­bjóð­andi greiddi ásamt nokkr­um öðr­um kon­um fyr­ir birt­ingu við­tals við hana hjá banda­ríska fjöl­miðl­in­um NBC en verð­ið er trún­að­ar­mál. Hún seg­ist hafa vilj­að grípa tæki­fær­ið til þess að benda á það hve op­ið fram­boðs­ferl­ið er á Ís­landi og til þess að sýna að venju­leg kona gæti boð­ið sig fram til for­seta.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
4
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár