Frásögn af atviki hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum, en þar sakar kona miðaldra karlmann um að hafa keyrt viljandi á sig á bílastæði í Garðabæ. Konan birti bílnúmer mannsins á Facebook.
Hún skrifar: „Afsakið hvað ég var svona lengi að taka tveggja ára son minn út úr bílnum á meðan ég var með 9 mánaða son minn í fanginu. Auðvitað var ósanngjarnt af mér að láta þig bíða eftir stæðinu við hliðina a mér, og skiljanlega keyrðir þú utan í mig þegar ég ætlaði að loka hurðinni. Svo minntirðu mig á að við ættum nú að fara varlega í umferðinni, því ég leit ekki aftur fyrir mig til að sjá þig og stóra mikilvæga jeppann þinn. Þér til samlætis, þá fannstu nú annan merkilegan karlmann og þið gátuð hlegið að mér saman, þegar ég stóð og öskraði á þig fyrir að hafa keyrt á mig.“
Viðbrögð netverja eru harkaleg og hefur maðurinn ítrekað verið nafngreindur í athugasemdum auk þess sem heimilisfang hans er tilgreint. Þá er hann kallaður „myglublettur“ og ýmsum öðrum gífuryrðum. Konan hefur tilkynnt lögreglu um atvikið.
Bílstjórinn segir atburðarásina allt aðra
Þegar Stundin hafði samband við manninn sagðist hann ekki hafa lesið atvikslýsingu konunnar, enda ætti hann ekki Facebook-aðgang. Sjálfur útskýrir hann atburðarásína á þá leið að konan hafi bakkað líkama sínum á jeppann hans, að gerðinni Mitsubishi Outlander, þegar hann var kominn inn að bílastæðinu við hlið hennar.
„Svo bakkar hún á bílinn og
heldur að ég hafi keyrt á sig“
„Það er stúlka þarna og ég sé að hún er að fara í aftursætið á bílnum, svo ég stoppa af því að ég ætlaði að leggja. Hún er að stússa þarna með börn í aftursætinu, ég sá að hún var þarna með börn. Það tekur alveg smá tíma, nokkrar mínútur. Ég bíð þarna, ég gerði ráð fyrir því að hún hafi séð mig. Svo snýr hún sér eitthvað við og ég er kominn þarna hálfur inn í stæðið, svo bakkar hún á bílinn og heldur að ég hafi keyrt á sig.“
Viðbrögð hennar hafi verið mjög hörð og hún æpt á hann á miðju bílastæðinu á meðan hann reyndi að stilla til friðar. „Ég reyndi bara að biðja hana forláts og biðja hana að róa sig niður.“ Jeppabílstjórinn segir að maður sem hann þekkti ekki hafi komið aðvífandi og lagt hönd á öxl hans. Að öðru leyti hafi þeir engin samskipti átt. Konan hafi hins vegar beint reiði sinni að þeim manni sem hafi svo látið sig hverfa.
Athugasemdir