Stjórn Landverndar sendi frá sér harðorða ályktun varðandi löggjöf ríkisstjórnarinnar um laxeldi sem tryggir rekstrarleyfi óháð niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Stjórnin vitnar í fyrrverandi framkvæmdastjóra Landverndar, Guðmund Inga Guðbrandsson, sem er nú umhverfisráðherra, en hann sagði sambærilegt inngrip í umhverfisvernd „með öllu ólíðandi í lýðræðisþjóðfélagi“ fyrir tveimur árum.
Lagabreytinguna kallar stjórn Landverndar misbeitingu valds þar sem hagsmunir tveggja fyrirtækja eru í húfi og er það gert án nokkurrar umræðu eða möguleika til umsagna.
Bakgrunnur málsins er að kvöldið 9. október samþykkti Alþingi lög sem gera ráðherra heimilt að veita fyrirtækjum í laxeldi bráðabirgðaleyfi til allt að tíu mánaða. Tvö fyrirtæki í laxeldi, Arctic Sea Farm og Fjarðalax, höfðu þá fimmtudaginn áður verið svipt starfsleyfi sínu af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, á þeim grundvelli að umhverfismatsskýrsla fyrirtækjanna hefði verið ófullnægjandi, enda hafi engir aðrir kostir en laxeldi í opnum kvíum verið til skoðunar.
Lögin brjóti á bága við Árósarsamninginn sem er meðal annars grundvöllur þess að óháða úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindaráðs varð til. Samningurinn tryggir „rétt almennings til þátttöku í undirbúningi ákvarðana og skyldu ríkja til að tryggja almenningi réttláta málsmeðferð í málum sem varða umhverfið“.
Lögin fengu, eins og áður var sagt, enga umræðu né voru möguleikar til umsagna á þeim.
Í ályktuninni telur stjórnin að ef málalok verða að lögin fá að standa er komið fordæmi sem löggjafi geti nýtt til þess að snúa við úrskurðum óháðra úrskurðanefnda ef þrýstingur hagsmuna annarra er nógu mikill.
Í frásögn Matvælastofnunar um niðurfellingu leyfis til laxeldis segir að úrskurðarnefndin hefði talið „verulega ágalla“ á umhverfismatinu sem laxeldisfyrirtækin létu gera á eigin framkvæmd. „Nefndin taldi að svo hafi ekki verið þar sem tefla hefði þurft fram fleiri en einum valkosti við mat á umhverfisáhrifum, enda sé nauðsynlegt að fá fram samanburð umhverfisáhrifa fleiri kosta sem lögbundin krafa er gerð um, allt í þeim tilgangi að leyfisveitandi geti tekið upplýsta afstöðu að rannsökuðu máli til þess að meta hvort eða með hvaða hætti hægt sé að leyfa framkvæmd þannig að skilyrði laga séu uppfyllt. Þar sem ekki hafi verið sýnt fram á í mati á umhverfisáhrifum að enginn annar mögulegur framkvæmdakostur hafi getað komið til greina verði að telja það verulegan ágalla á matinu að engum öðrum kosti hafi verið lýst, að öðru leyti en því að vísað væri til þess að núllkostur hefði engin áhrif í för með sér.“
Yfirlýsing stjórnar Landverndar:
Með öllu ólíðandi í lýðræðisþjóðfélagi
Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála var sett á í kjölfar innleiðingar Árósasamningsins. Hún á að tryggja almenningi og samtökum þeirra skýlausan kærurétt í málefnum umhverfisins. Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnvöldum og kæruleiðin kemur í stað dómstólaleiðar skv. Árósasamningnum. Annmarkar á umhverfismati framkvæmdaraðila eru fyrst kæranlegir við útgáfu leyfa.
Nýjasta útspil ríkisstjórnar Íslands og Alþingis að breyta lögum í kjölfar niðurstöðu úrskurðanefndarinnar er klár misbeiting valds. Lögum er breytt vegna hagsmuna tveggja fyrirtækja í miklum flýti án nokkurrar umræðu eða möguleika til umsagna. Með þeim gjörningi eru tvær stoðir Árósarsamningsins brotnar: réttur almennings til þátttöku í undirbúningi ákvarðana og skylda ríkja til að tryggja almenningi réttláta málsmeðferð í málum sem varða umhverfið.
Takmarkaðir möguleikar umhverfisverndarsamtaka til þess að tryggja að farið sé að lögum í málefnum umhverfisins hafa verið að engu gerðir í þessu máli. Verði þetta málalok er ljóst að fordæmi er komið sem löggjafinn getur nýtt sér í framtíðinni til að snúa við úrskurðum hinnar óháðu úrskurðarnefndar, sé þrýstingur annarra hagsmuna nógu mikill.
Á 100 afmæli fullveldisins er kominn tími til þess að Íslendingar taki náttúru- og umhverfisvernd alvarlega. Ein mesta ábyrgð fullvalda ríkja er að viðhalda og vernda eigin náttúru og auðlindir til þess að komandi kynslóðir geti notið ávaxta þeirra eins og þær sem nú ráða. Lágmark er að bera virðingu fyrir þeim lögum og reglum sem þó eru við lýði.
Það er við hæfi að enda þessa yfirlýsingu á tilvitnun í þáverandi framkvæmdastjóra Landverndar og Umhverfisráðherra núverandi ríkisstjórnar varðandi hliðstætt mál frá 2016: „Það sem að forsætisráðherra boðaði í gær, er í rauninni að fikta í löggjöfinni eftir á þannig að niðurstaða þessa óháða úrskurðaraðila sé líklegri til að henta málstað ríkisstjórnarinnar. Þetta er náttúrulega að okkar mati, með öllu ólíðandi í lýðræðisþjóðfélagi“.
Stjórn Landverndar: Rósbjörg Jónsdóttir, formaður, Guðmundur Björnsson, Helga Ögmundsdóttir, Hugrún Geirsdóttir, Lovísa Ásbjörnsdóttir, Margrét Auðunsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Pétur Halldórsson, Snorri Baldursson, Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir.
Athugasemdir