Selfoss-leiðin svokallaða hefur verið notuð af lögregluembættum víða um land í málum er varða heimilisofbeldi. Leiðin felur í sér samkomulag á milli lögreglu og sakbornings og er notuð í þeim tilvikum þar sem lögregla telur að friðhelgi brotaþola megi vernda með vægari hætti en nálgunarbanni eða brottvísun af heimili.
Þessi leið hefur verið notuð og í þróun hjá Lögreglunni á Suðurlandi allt frá árinu 2014, samkvæmt svari lögregluembættisins við spurningum Stundarinnar um tilurð úrræðisins. Þar segir að að jafnaði sé sakborningi gefinn kostur á að undirrita yfirlýsingu við lok skýrslutöku af honum, þegar sakarefni hefur verið borið undir hann og honum gefinn kostur á að taka afstöðu til þess. Yfirlýsingin feli efnislega það sama í sér og nálgunarbann eða brottvísun af heimili. Hún sé hins vegar sett fram á öðrum grunni í þeirri viðleitni að gefa sakborningi færi á að aðhafast eitthvað eða láta af tiltekinni hegðun með yfirlýsingu. Yfirlýsingin …
Athugasemdir