Sá maður sem misgert er við, brotaþoli, fjölskylda hans eða annar honum nákominn, getur borið fram beiðni til lögreglu um að maður, sakborningur, sem brotið hefur gegn honum eða raskað friði hans á annan hátt, sæti nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.
Þannig hljómar þriðja grein laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Af greininni mætti ætla að ofbeldi sé ekki nauðsynlegt til að beita megi úrræðinu, heldur geti verið nóg að raska friði einstaklingsins sem í hlut á. Á þetta bendir Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir, lögmaður Kvennaathvarfsins. „Það er skýrt í lögunum að það ætti að vera nóg að raska friði fólks til að óska eftir nálgunarbanni. Refsivert athæfi þarf ekki að hafa komið til. En þrátt fyrir að þetta sé skýrt í lögum er eins og það þurfi alltaf að liggja fyrir kæra hjá lögreglu og jafnvel mörg dæmi um brot, til þess að hún geri …
Athugasemdir