Þegar stjórnendur Bókasafns Kópavogs tóku ákvörðun um að loka rússnesku deildinni árið 2016 var þeim sjö hundruð bókum sem tilheyrðu því safni pakkað saman og komið á rússneska sendiráðið. Þar gátu bækurnar ekki verið og því var þeim komið áfram til meðlima Rússnesku menningarmiðstöðvarinnar, félagsskapar sem hefur þann tilgang að efla tengsl á milli Rússa og Íslendinga.
Tekin var ákvörðun um að stofna bókasafn utan um bækurnar, sem voru um sjö hundruð talsins, og var gert samkomulag við prest Rétttrúnaðarkirkjunnar um að koma því fyrir í samkomuhúsi Rússa við Öldugötu 44, þar sem söfnuður kirkjunnar á Íslandi hefur aðstöðu. Húsið er opið daglega og þar fara meðal annars fram guðsþjónustur um helgar.
Engin svör og enginn áhugi
„Við byrjuðum að byggja upp bókasafnið og fórum að fá mikið af gefins bókum til viðbótar,“ rifjar María Ylfa Lebedeva upp, en hún er ein þeirra sem standa að menningarmiðstöðinni. Þegar þær voru …
Athugasemdir