Staða karlmanna á Íslandi út frá menntun er verri en víðast hvar í Evrópu, samkvæmt skýrslu OECD um stöðu menntunar í álfunni. Kynjamunur á Íslandi er konum í hag í menntakerfinu, en körlum í hag í atvinnulífinu, samkvæmt meginályktunum skýrslunnar, Education at a Glance, sem kemur út í dag.
Af löndum Evrópu sem eru þátttakendur í OECD eru fá dæmi um að karlmenn á aldrinum 25 til 34 ára hafi minni menntun. Um 24 prósent íslenskra karlmanna á þessum aldri hafa aðeins lokið grunnskólanámi. Mun færri konur, eða 15 prósent, eru í sömu stöðu. „Staða karla er aðeins verri á Ítalíu, Spáni og Portúgal af löndum Evrópu sem eiga aðild að OECD menntatölfræðinni,“ segir í samantekt Mennta- og menningarmálaráðuneytisins um skýrsluna. „Um 24% karla á þessum aldri hafa ekki lokið námi eftir grunnskóla en hlutfallið er 15% fyrir konur. Munurinn milli kynjanna er óvíða jafn mikill og á Íslandi eða 9 prósentustig og að því leyti svipar Ísland einnig til landa í sunnanverðri álfunni.“
„Munurinn milli kynjanna er óvíða jafn mikill og á Íslandi“
Munurinn milli kynjanna hefur aukist undanfarinn áratug, þótt þeim fari almennt tölfræðilega fækkandi sem aðeins hafa grunnskólapróf. Á einum áratug hefur fækkaði í þessum hópi, sem aðeins hefur grunnskólapróf, um 7 prósentustig hjá körlum, en um 13 prósentustig hjá konum.
Þessi níu prósentastiga munur á kynjunum er meiri en annars staðar á Norðurlöndunum. Í Danmörku er munur kynjanna 7 prósent, en í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er hann aðeins þrjú til fjögur prósent.
Mun líklegra er að konur en karlar hefji háskólanám. „Það má því segja að líkurnar á því að kona hefji háskólanám sé 1,5 í samanburði við karla eða að karlar séu 0,6 sinnum líklegir til að hefja háskólanám miðað við konur. Samsvarandi líkur fyrir karla er 0,8 að meðaltali innan OECD og er ekki lægra en 0,7 á hinum Norðurlöndunum. Líkurnar eru aðeins lægri í Ísrael,“ segir í samantekt ráðuneytisins.
Þróunin hefur verið á þá leið að kynjamunur háskólamenntunar á Íslandi eykst. Í fyrra voru 39 prósent karlmanna á aldrinum 25 til 34 ára með háskólapróf, en voru 29 prósent 2007. Mun fleiri konur, eða 57 prósent, hafa háskólagráðu á þessum aldri, en voru 37 prósent fyrir áratug.
„Það er því talsverður munur á menntunarstigi fólks í þessum aldurshópi eftir kyni og hallar verulega á karla þar sem 18 prósentustigum munar á kynjunum konum í vil,“ segir í samantektinni.
Athugasemdir