Bjarni leyfði Hannesi Hólmsteini að víkja frá verksamningi
Í bréfasamskiptum sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, birtir um samskipti sín við fjármálaráðuneytið og Félagsvísindastofnun HÍ kemur fram að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi engar athugasemdir gert við tafir á skilum skýrslu Hannesar.
Dómarar mótmæla endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra launa
Ákvörðun fjármálaráðherra um að krefja 260 einstaklinga um endurgreiðslu á ofgreiddum launum síðastliðinna þriggja ára er harðlega mótmælt af dómurum. „Aðgerðirnar fela í sér atlögu framkvæmdavaldsins að dómsvaldinu sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskri réttarsögu,“ segir í ályktun Dómarafélags Íslands.
2
Rannsókn
2
Furðulegt ferðalag íslenskrar síldar til Úkraínu um Panama
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki seldu uppsjávarfisk til Evrópulandsins Úkraínu í gegnum ríki í öðrum heimsálfum. Eitt af þessum löndum var skattaskjólið Panama sem varð alræmt eftir gagnalekann frá Mossack Fonseca árið 2016. Fisksölufyrirtækin vilja ekki svara spurningum um viðskiptin en þrír sérfræðingar segja þau líta út fyrir að vera gerð af skattalegum ástæðum, gerð til þess eins að stýra því hvar hagnaður myndist.
3
Fréttir
2
Bjarni furðar sig á dómurum og segir þá eiga að skila því sem ofgreitt var
„Fólkið í landinu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag ríkisins, æðstu embættismennina, að skila því sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum,“ skrifar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, um mótmæli dómara við því að þurfa að endurgreiða ofgreidd laun.
4
Vettvangur
Hin margklofna Moldóva á milli Rúmeníu og Rússlands
Yfirvöld í Transnistríu ásökuðu nýlega yfirvöld í Úkraínu um að hafa gert árásir á skotmörk þar í landi. Hvað er Transnistría? kunna sumir að hafa spurt, enda er það ekki að finna á landakortum. Það er aðskilnaðarhérað í Moldóvu, sem vissulega er að finna á kortinu. En jafnvel það ríki er okkur að mestu ókunnugt.
5
Fréttir
Ríkið hefur ofgreitt kjörnum fulltrúum og embættismönnum samtals 105 milljónir
Vel á þriðja hundrað kjörinna fulltrúa, ráðherra og embættismanna hafa á síðustu árum fengið greidd of há laun frá Fjársýslu ríkisins, sem studdist við rangt viðmið við launahækkanir. Samtals nemur ofgreiðslan 105 milljónum króna. 45 þessara einstaklinga eru ekki lengur á launaskrá ríkisins. Tólf mánaða endurgreiðsluáætlun hefur verið samþykkt.
6
Viðtal
Við þurfum að tala um Eritreu
Samson Habte, fréttastjóri fjölmiðilsins Erisat, fékk skjól í Reykjavík en hann neyddist til að flýja heimaland sitt, Eritreu, vegna starfa sinna. Þar eru þúsundir í fangelsum án dóms og laga, margir vegna skoðana sinna, og frjálsir fjölmiðlar eru bannaðir. Samson segist vera rödd óvinarins í augum einræðisstjórnar Eritreu. Fréttir sem Samson og nokkur landflótta eritresk starfssystkin hans víða um heim senda gegnum gervihnött til Eritreu ná til um 70 prósent þjóðarinnar.
7
Fréttir
1
22 börn biðu eftir brottflutningi í byrjun júní
Tugir umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa beðið lengur en ár eftir að vera flutt af landi brott eftir að umsóknum þeirra hefur verið hafnað. Tuttugu og tvö börn biðu brottflutnings í byrjun mánaðar, samkvæmt svari Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á Alþingi.
Prentútgáfa Stundarinnar kemur næst út þann 29. júlí.
Hannes Hólmsteinn Gissurarsonprófessor við stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, hafði fullt samráð við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra þegar hann kaus að skila skýrslu sinni um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins miklu seinna en samið var um árið 2014. Þetta kemur fram í bréfasamskiptum sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, birti á bloggsíðu sinni. Þá kemur fram í samskiptum Hannesar við fjármálaráðuneytið og Félagsvísindastofnun HÍ að hann hafi verið að leggja lokahönd á skýrsluna í um tvö og hálft ár.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði samning um verkið við Félagsvísindastofnun þann 7. júlí árið 2014. Áætluð verklok voru júlí 2015 og en þeim hefur seinkað um rúm þrjú ár. Forstöðumaður Félagsvísindastofnunar getur ekki sagt hvenær skýrslan verður gerð opinber.
Hannes birti bréfasamskipti sín við fjármálaráðuneytið, Félagsvísindastofnun HÍ og fjölmiðla í kjölfar beiðni Fréttablaðsins um afrit af samskiptunum. Segist hann á bloggsvæði sínu ekkert hafa við það að athuga að samskiptin séu birt á opinberum vettvangi.
Kostnaður ráðuneytisins er samkvæmt samningi fjármálaráðuneytisins við Félagsvísindastofnun 10 milljónir króna. Hannes hefur sagt töfina á skilum engu breyta varðandi umsaminn kostnað við skýrslugerðina.
Að leggja lokahönd á skýrsluna í tvö og hálft ár
Bréfasamskiptin spanna um rúmlega tveggja ára skeið og fullyrðir Hannes ítrekað yfir tímabilið að stutt sé í að skýrslunni verði skilað.
Þann 14. október 2015 sendi fréttamaður Rúv fyrirspurn til fjármálaráðuneytisins um tildrög skýrslunnar. Fjármálaráðuneytið framsendi fyrirspurnina á Félagsvísindastofnun sem svaraði samdægurs. „Gert er ráð fyrir að stuttri skýrslu verði skilað fyrir áramót en lokaskýrslu fljótlega eftir áramót,“ segir í svari Félagsvísindastofnunar.
Þá virðist hvorki fjármálaráðuneytið né Félagsvísindastofnun hafa átt í skriflegum samskiptum við Hannes í eitt og hálft ár frá fyrirspurn fréttamanns Rúv.
Þann 2. mars árið 2017 skrifaði Hannes bréf til fjármálaráðuneytisins og Félagsvísindastofnunar þar sem hann svaraði munnlegum fyrirspurnum. Þar fullyrti Hannes að styttri útgáfu af skýrslunni yrði skilað rúmri viku síðar, þann 10. mars, en lengri útgáfu þann 8. ágúst.
Í sama bréfi tiltekur Hannes ástæður þess hvers vegna skýrslan hafi tafist. Segir hann þær vera margar, til að mynda að efnið hafi verið viðameira en hann hafi haldið, honum hafi verið neitað um aðgang að gögnum og að ekkert hafi sérstaklega legið á skýrslunni, „ólíkt til dæmis skýrslu RNA“. Þá segir Hannes að fullt samráð hafi verið haft við Bjarna Benediktsson um þennan feril og hann hafi „ekki gert neinar athugasemdir við hann.“
„Það er aðeins spurning um nokkra daga, hvenær ég lýk styttri skýrslunni“
Stuttu skýrslunni var þó ekki skilað þann 10. mars og sendi Hannes því annað bréf til fjármálaráðuneytisins og Félagsvísindastofnunar þann 16. mars 2017. „Það gengur ljómandi vel að setja saman stuttu skýrsluna, þótt auðvitað miði mér stundum hægar en ég hefði búist við, því að alltaf er ég að rekast á eitthvað nýtt eða eitthvað, sem ég hef ekki tekið eftir áður og þarf að sannreyna. Ég hygg, að það sé spurning um daga frekar en vikkur [sic], hvenær ég lýk henni á þann hátt, að ég geti sýnt ykkur hana,“ segir Hannes í bréfinu. Þá áætlar hann að hann muni ganga frá lengri skýrslunni um sumarið og ljúka henni um haustið.
Viku síðar, þann 23. mars, ítrekar Hannes í tölvupósti til fjármálaráðuneytisins að mjög stutt sé í að hann skili stuttu skýrslunni. „Ég er kominn til Íslands, og það er aðeins spurning um nokkra daga, hvenær ég lýk styttri skýrslunni. Viðaukinn var í rauninni tilbúinn fyrir löngu, þótt ég þurfi að fara aftur yfir hann, og lengri skýrslunni lýk ég síðar í sumar,“ skrifar Hannes.
Daginn eftir skrifar Hannes á ný til fjármálaráðuneytisins og Félagsvísindastofnunar. Þar segir hann sig vera kominn að niðurlaginu sem verði um fimm blaðsíður og mjög stutt sé í að hann sendi hana í yfirlestur.
Rúmum sjö vikum síðar, þann 15. maí, skrifar Hannes næst til fjármálaráðuneytisins og Félagsvísindastofnunar. „Ég hef í raun lokið skýrslunni, á aðeins eftir um 3 bls. Conclusions,“ skrifar Hannes. Þá segist hann gjarnan vilja vita, hvernig Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðar í máli Geirs H. Haarde og að honum þyki eðlilegast að birta skýrsluna 8. október, sama dag og hryðjuverkalögin voru sett.
Allt á áætlun samkvæmt Hannesi
Þann 21. júní skrifar Hannes ráðuneytinu og Félagsvísindastofnun á ný og segir allt vera á áætlun. Það reyndist þó ekki vera því að rúmum þremur mánuðum síðar, þann 26. september skrifaði Hannes á ný til ráðuneytisins og boðaði frekari tafir. Sagðist hann hafa lokið skýrslunni fyrir nokkru og að hún væri í yfirlestri og endurbótum. Hins vegar hafi hann haft fregnir af því að niðurstöðu í máli Mannréttindadómstóls Evrópu væri að vænta fljótlega og áætlaði hann því að skýrslunni yrði skilað í lok október frekar en 8. október eins og miðað var við.
„Ég er að reyna að ljúka skýrslunni, svo að setja megi hana á Netið [sic]. Það verður eftir nokkra daga,“ segir svo í bréfi Hannes þann 4. nóvember til ráðuneytisins og Félagsvísindastofnunar. Þá segir hann að gott væri að fá síðasta reikninginn greiddan strax eftir skilin.
Samkvæmt samningnum um gerð skýrslunnar var 2,5 milljóna króna greiðsla áætluð við verklok.
Afhending skýrslunnar tafðist vegna aðferðafræðilegra krafna Félagsvísindastofnunar
Þann 10. nóvember segir í bréfi Hannesar til Félagsvísindastofnunar að hann vilji gjarnan fara að skila skýrslunni. Þá segist hann ekkert hafa á móti því að að skýrslan sé sett á netið strax. „Best væri að setja hana á Netið [sic] í næstu viku eða um næstu helgi. Síðasta reikninginn fyrir verkið þyrfti líka að senda í fjármálaráðuneytið og greiða sem fyrst,“ segir jafnframt í bréfinu.
Í samtali við Mbl.is sagði Hannes þann 14. nóvember að skýrslan yrði birt þann mánudaginn 20. nóvember.
„Það er ljóst að afhending skýrslunnar mun tefjast um einhverja mánuði í viðbót“
Síðustu bréfasamskiptin sem Hannes birtir eru á milli ráðuneytisins og Félagsvísindastofnunar þann 17. nóvember 2017. Í bréfi ráðuneytisins til Félagsvísindastofnunar er upplýst um að ráðuneytinu hafi borist „eindregnar ábendingar um að efnistök og umfjöllum sem þá varða sé verulega áfátt og uppfylli ekki fræðilegar kröfur eða akademísk viðmið sem gera verður til háskóla eða stofnana þeirra“. Þá minnir ráðuneytið Félagsvísindastofnun á að áréttað hafi verið við gerð samningsins að faglegar og fræðilegar kröfur yrðu í heiðri hafðar.
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir
Mynd: Háskóli Íslands
Félagsmálastofnun svaraði bréfi ráðuneytisins samdægurs. „Ég mun hafa samband við Hannes og gera honum grein fyrir því að ég muni skila skýrslunni fyrir hönd stofnunarinnar þegar ég tel hana uppfylla aðferðafræðilegar kröfur Félagsvísindastofnunar. Það er ljóst að afhending skýrslunnar mun tefjast um einhverja mánuði í viðbót,“ segir í bréfinu.
Sama dag og Félagsvísindastofnun tilkynnti ráðuneytinu um að afhending skýrslunnar myndi tefjast um nokkra mánuði skrifaði Hannes pistill á vefsvæði Pressunnar. Fyrirsögnin pistilsins var: „Ég fresta skýrslunni: Hvers vegna?“ Í pistlinum segist Hannes hafa lokið við skýrsluna en hann hafi ákveðið að fresta skilum til 16. janúar 2018, vegna þess að sanngjarnt væri að gefa þeim „sem minnst er á í henni, kost á að skýra mál sitt, leiðrétta og gera athugasemdir. Hafa sumir þeirra kvartað undan því, að þeim gefist ekki nægur tími til þess.“
Þann 26. janúar í ár fékk Félagsvísindastofnun afhent drög að skýrslu Hannesar. Að sögn Guðbjargar Andreu Jónsdóttur, forstöðumanns Félagsvísindastofnunar, voru skýrsludrögin send Hannesi í apríl eftir yfirlestur stofnunarinnar. „Hann er að fara yfir athugasemdir sem voru gerðar í yfirlestrinum,“ sagði Guðbjörg í samtali við Stundina í júní. „Við bíðum eftir að fá hana aftur og ég geri ráð fyrir að við skilum þegar allir eru orðnir sáttir.“
Stundin hafði á ný samband við Guðbjörgu í ágúst. Þá sagði hún enga dagsetningu ákveðna hvað varðar útgáfu skýrslu Félagsvísindastofnunar, en hún hyggst taka stöðuna með Hannesi seinni hluta ágúst.
27. júlí síðastliðinn birti Hannes hins vegar skýrslu með titlinum „Lessons for Europe from the 2008 Icelandic bank collapse“ á vef New Direction. Í svari við fyrirspurn Stundarinnar sagði Hannes að hún væri „alls ekki sama skýrslan“ og fyrir ráðuneytið.
„Ég ákvað að sleppa því að lesa hana,“ sagði Guðbjörg, aðspurð hvort skýrslan sé eins og sú óútkomna. „Ég ákvað að ég hefði annað við tímann að gera, því í raun kemur hún mér í sjálfu sér ekkert við.“ Hún segir titilinn og efnið vera sambærilegt óútkomnu skýrslu Hannesar.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Stundin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Mest lesið
1
Fréttir
6
Dómarar mótmæla endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra launa
Ákvörðun fjármálaráðherra um að krefja 260 einstaklinga um endurgreiðslu á ofgreiddum launum síðastliðinna þriggja ára er harðlega mótmælt af dómurum. „Aðgerðirnar fela í sér atlögu framkvæmdavaldsins að dómsvaldinu sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskri réttarsögu,“ segir í ályktun Dómarafélags Íslands.
2
Rannsókn
2
Furðulegt ferðalag íslenskrar síldar til Úkraínu um Panama
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki seldu uppsjávarfisk til Evrópulandsins Úkraínu í gegnum ríki í öðrum heimsálfum. Eitt af þessum löndum var skattaskjólið Panama sem varð alræmt eftir gagnalekann frá Mossack Fonseca árið 2016. Fisksölufyrirtækin vilja ekki svara spurningum um viðskiptin en þrír sérfræðingar segja þau líta út fyrir að vera gerð af skattalegum ástæðum, gerð til þess eins að stýra því hvar hagnaður myndist.
3
Fréttir
2
Bjarni furðar sig á dómurum og segir þá eiga að skila því sem ofgreitt var
„Fólkið í landinu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag ríkisins, æðstu embættismennina, að skila því sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum,“ skrifar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, um mótmæli dómara við því að þurfa að endurgreiða ofgreidd laun.
4
Vettvangur
Hin margklofna Moldóva á milli Rúmeníu og Rússlands
Yfirvöld í Transnistríu ásökuðu nýlega yfirvöld í Úkraínu um að hafa gert árásir á skotmörk þar í landi. Hvað er Transnistría? kunna sumir að hafa spurt, enda er það ekki að finna á landakortum. Það er aðskilnaðarhérað í Moldóvu, sem vissulega er að finna á kortinu. En jafnvel það ríki er okkur að mestu ókunnugt.
5
Fréttir
Ríkið hefur ofgreitt kjörnum fulltrúum og embættismönnum samtals 105 milljónir
Vel á þriðja hundrað kjörinna fulltrúa, ráðherra og embættismanna hafa á síðustu árum fengið greidd of há laun frá Fjársýslu ríkisins, sem studdist við rangt viðmið við launahækkanir. Samtals nemur ofgreiðslan 105 milljónum króna. 45 þessara einstaklinga eru ekki lengur á launaskrá ríkisins. Tólf mánaða endurgreiðsluáætlun hefur verið samþykkt.
6
Viðtal
Við þurfum að tala um Eritreu
Samson Habte, fréttastjóri fjölmiðilsins Erisat, fékk skjól í Reykjavík en hann neyddist til að flýja heimaland sitt, Eritreu, vegna starfa sinna. Þar eru þúsundir í fangelsum án dóms og laga, margir vegna skoðana sinna, og frjálsir fjölmiðlar eru bannaðir. Samson segist vera rödd óvinarins í augum einræðisstjórnar Eritreu. Fréttir sem Samson og nokkur landflótta eritresk starfssystkin hans víða um heim senda gegnum gervihnött til Eritreu ná til um 70 prósent þjóðarinnar.
7
Fréttir
1
22 börn biðu eftir brottflutningi í byrjun júní
Tugir umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa beðið lengur en ár eftir að vera flutt af landi brott eftir að umsóknum þeirra hefur verið hafnað. Tuttugu og tvö börn biðu brottflutnings í byrjun mánaðar, samkvæmt svari Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á Alþingi.
Mest deilt
1
Fréttir
3
„Ég mun aldrei fyrirgefa þeim“
Kristín Sóley Kristinsdóttir segist aldrei muni fyrirgefa samfélaginu í Garði fyrir að hafa brugðist dóttur hennar og úthrópað sem lygara eftir að hún greindi frá því þegar hún var tólf ára að maður í bænum hefði beitt hana kynferðisofbeldi, fyrst þegar hún var átta ár gömul. Maðurinn sem var á sextugsaldri á þessum tíma var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa ítrekað beitt Lilju, dóttur Kristínar Sóleyjar, ofbeldi.

Sonurinn varð sterkari eftir að hann kom út sem trans
Sigga Ey og systurnar héldu uppi málstað trans einstaklinga í Eurovision. Sonur hennar glímdi við mikla vanlíðan þegar hann var að komast á kynþroskaaldur. Þegar hann kom út sem trans rétti hann betur úr sér og varð frjáls.
4
Fréttir
„Mynd af mér á bikiníi skaðar engan“
Með því að birta myndir af líkama sínum hefur Lilja Gísladóttir kallað yfir sig athugasemdir fólks um að hún sé að „ýta undir að aðrir vilji vera feitir.“ Hún segir óskiljanlegt að fólk hafi svo miklar skoðanir á holdafari hennar, og annarra, því það hafi engin áhrif á aðra hvort hún sé mjó eða feit.
5
Fréttir
Konur í Bandaríkjunum hafa verið sviptar réttinum til þungunarrofs
Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri við fyrri niðurstöðu sem tryggðu rétt kvenna til að láta rjúfa meðgöngu. Rétturinn var tryggður fyrir fimmtíu árum síðan í máli Roe gegn Wade en nú hefur dómstóllinn ákveðið að stjórnarskrá landsins tryggi ekki sjálfsákvörðunarrétt kvenna. Fóstureyðingar urðu sjálfkrafa bannaðar í fjölda fylkja við uppkvaðningu dómsins.
6
Fréttir
2
Bjarni furðar sig á dómurum og segir þá eiga að skila því sem ofgreitt var
„Fólkið í landinu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag ríkisins, æðstu embættismennina, að skila því sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum,“ skrifar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, um mótmæli dómara við því að þurfa að endurgreiða ofgreidd laun.
7
Fréttir
4
Bjarni undir í rannsókn Ríkisendurskoðunar
Sú endurskoðunaráætlun sem lagt var af stað með í rannsókn Ríkisendurskoðunar á sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka snýr fyrst og fremst að Bankasýslu ríkisins. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi segir að fjármálaráðherra og ráðuneyti hans séu líka undir og að áætlunin taki breytingum eftir því sem rannsókninni vindi fram.
Mest lesið í vikunni
1
Fréttir
„Mynd af mér á bikiníi skaðar engan“
Með því að birta myndir af líkama sínum hefur Lilja Gísladóttir kallað yfir sig athugasemdir fólks um að hún sé að „ýta undir að aðrir vilji vera feitir.“ Hún segir óskiljanlegt að fólk hafi svo miklar skoðanir á holdafari hennar, og annarra, því það hafi engin áhrif á aðra hvort hún sé mjó eða feit.
2
Fréttir
4
Bjarni undir í rannsókn Ríkisendurskoðunar
Sú endurskoðunaráætlun sem lagt var af stað með í rannsókn Ríkisendurskoðunar á sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka snýr fyrst og fremst að Bankasýslu ríkisins. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi segir að fjármálaráðherra og ráðuneyti hans séu líka undir og að áætlunin taki breytingum eftir því sem rannsókninni vindi fram.
Mörg hundruð falla í innrás Rússa í Úkraínu á degi hverjum, manntjónið eykst sífellt og ólýsanlegar hörmungar þar víða daglegt brauð. Þess utan eru efnahagslegar hamfarir að eiga sér stað í Úkraínu en þær voru raunar hafnar áður en innrásin hófst. Útlitið var svart fyrir en nú er stór hluti landsins ein rjúkandi rúst og vegna landlægrar spillingar mun reynast erfitt að fá fjárhagsaðstoð erlendis frá til uppbyggingar að stríðslokum.
4
FréttirPlastið fundið
1
„Það er búið að borga fyrir þetta“
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra segir að það eigi að endurvinna íslenska plastið sem fannst í vöruhúsi í Svíþjóð, enda sé búið að borga fyrir það.
5
Viðtal
Reykvísk skrifstofukona umlukin svartadauða
Auður Haralds rithöfundur segir að Guð sé algjörlega aðgerðarlaus og þess vegna sé titill bókar hennar sem var að koma út: Hvað er Drottinn að drolla? Sagan fjallar um reykvíska skrifstofukonu í nútímanum sem fer í tímaferðalag alla leið aftur til ársins 1346 og lendir inni í miðjum svartadauða.
6
Fréttir
6
Dómarar mótmæla endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra launa
Ákvörðun fjármálaráðherra um að krefja 260 einstaklinga um endurgreiðslu á ofgreiddum launum síðastliðinna þriggja ára er harðlega mótmælt af dómurum. „Aðgerðirnar fela í sér atlögu framkvæmdavaldsins að dómsvaldinu sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskri réttarsögu,“ segir í ályktun Dómarafélags Íslands.
7
Rannsókn
2
Furðulegt ferðalag íslenskrar síldar til Úkraínu um Panama
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki seldu uppsjávarfisk til Evrópulandsins Úkraínu í gegnum ríki í öðrum heimsálfum. Eitt af þessum löndum var skattaskjólið Panama sem varð alræmt eftir gagnalekann frá Mossack Fonseca árið 2016. Fisksölufyrirtækin vilja ekki svara spurningum um viðskiptin en þrír sérfræðingar segja þau líta út fyrir að vera gerð af skattalegum ástæðum, gerð til þess eins að stýra því hvar hagnaður myndist.
Mest lesið í mánuðinum
1
Rannsókn
8
Hvað kom fyrir Kidda?
Hálfri öld eftir að tilkynnt var um bílslys í Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar er lögreglan loks að rannsaka hvað átti sér stað. Lík Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í slysinu, var grafið upp og bein hans rannsökuð. Sonur og hálfbróðir Kristins urðu til þess yfirvöld skoða loksins, margsaga vitni og myndir af vettvangi sem urðu til þess að málið var tekið upp að nýju.
2
Fréttir
3
„Ég mun aldrei fyrirgefa þeim“
Kristín Sóley Kristinsdóttir segist aldrei muni fyrirgefa samfélaginu í Garði fyrir að hafa brugðist dóttur hennar og úthrópað sem lygara eftir að hún greindi frá því þegar hún var tólf ára að maður í bænum hefði beitt hana kynferðisofbeldi, fyrst þegar hún var átta ár gömul. Maðurinn sem var á sextugsaldri á þessum tíma var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa ítrekað beitt Lilju, dóttur Kristínar Sóleyjar, ofbeldi.
3
Fréttir
Sonurinn varð sterkari eftir að hann kom út sem trans
Sigga Ey og systurnar héldu uppi málstað trans einstaklinga í Eurovision. Sonur hennar glímdi við mikla vanlíðan þegar hann var að komast á kynþroskaaldur. Þegar hann kom út sem trans rétti hann betur úr sér og varð frjáls.
4
Fréttir
„Mynd af mér á bikiníi skaðar engan“
Með því að birta myndir af líkama sínum hefur Lilja Gísladóttir kallað yfir sig athugasemdir fólks um að hún sé að „ýta undir að aðrir vilji vera feitir.“ Hún segir óskiljanlegt að fólk hafi svo miklar skoðanir á holdafari hennar, og annarra, því það hafi engin áhrif á aðra hvort hún sé mjó eða feit.
5
ViðtalÚkraínustríðið
17
Íslenski fréttaritarinn í boðsferð með Rússum: „Ísland ekki á góðri leið“
Haukur Hauksson hefur verið fréttaritari í Moskvu í þrjá áratugi og hefur nú farið í þrjár boðsferðir með rússneska hernum í Austur-Úkraínu. Haukur telur fjöldamorð Rússa í Bucha „hlægilegt dæmi“ um „setup“, en trúir því ekki að rússneski herinn blekki hann.
6
FréttirSamherjaskjölin
5
Toppar ákæru- og lögregluvalds í Namibíu á Íslandi vegna Samherjamáls
Ríkissaksóknari Namibíu og yfirmaður namibísku spillingarlögreglunnar, hafa verið á Íslandi frá því fyrir helgi og fundað með hérlendum rannsakendum Samherjamálsins. Fyrir viku síðan funduðu rannsakendur beggja landa sameiginlega í Haag í Hollandi og skiptust á upplýsingum. Yfirmenn namibísku rannsóknarinnar hafa verið í sendinefnd varaforsetans namibíska, sem fundað hefur um framsalsmál Samherjamanna við íslenska ráðherra.
7
Menning
1
Fundu týndar dagbækur Bíbíar: „Hún fékk aldrei séns“
Sagnfræðingarnir Sólveig Ólafsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon og prófessorinn Guðrún Valgerður Stefánsdóttir fundu nýjar heimildir eftir Bjargeyju Kristjánsdóttur, eða Bíbí, þegar þau voru að kynna nýja bók hennar í Skagafirði. Saga Bjargeyjar er átakanleg en henni var komið fyrir á öldrunarheimili á Blönduósi þegar hún var á fertugsaldri en hún var með efnaskiptasjúkdóm sem lítil þekking var á árið 1927 þegar hún fæddist.
Nýtt á Stundinni
ÞrautirSpurningaþrautin
799. spurningaþraut: Glókollur og prímtölur, það er ljóst
Fyrri aukaspurning: Hvern má sjá hér málaðan sem Súpermann? * Aðalspurningar: 1. Hvað kallast á íslensku sú sjónvarpssería sem á ensku er nefnd Blackport? 2. Glókollur heitir fugl af söngvaraætt sem gerðist staðfugl á Íslandi laust fyrir aldamótin 2000. Og þar með hlaut glókollur ákveðna nafnbót hér á landi. Hver er hún? 3. Jailhouse Rock er lag eftir þá kunnu...
Pistill
2
Þorvaldur Gylfason
Krafan um uppgjör
Framrás heimsins gengur í bylgjum eins og veðrið þar sem árstíðirnar taka hver við af annarri. Öldugangur tímans tekur á sig ýmsar myndir.
Vettvangur
Hin margklofna Moldóva á milli Rúmeníu og Rússlands
Yfirvöld í Transnistríu ásökuðu nýlega yfirvöld í Úkraínu um að hafa gert árásir á skotmörk þar í landi. Hvað er Transnistría? kunna sumir að hafa spurt, enda er það ekki að finna á landakortum. Það er aðskilnaðarhérað í Moldóvu, sem vissulega er að finna á kortinu. En jafnvel það ríki er okkur að mestu ókunnugt.
ÞrautirSpurningaþrautin
798. spurningaþraut: Betula betuloideae er víst að ná sér á strik aftur!
Fyrri aukaspurning: Hér að ofan má sjá einn vinsælasta rithöfund heimsins um þessar mundir. Hvað heitir hún? * Aðalspurningar: 1. Fyrir allnokkrum árum reið gífurleg flóðalda yfir strendur Indlandshafs í kjölfar jarðskjálfta út af ströndum indónesískrar eyju, sem heitir ... 2. Um svona flóðbylgju er notað orð sem upphaflega þýðir „hafnaralda“. Hvaða orð er það? 3. Og úr hvaða tungumáli...
Fréttir
Landið sem felur sannleikann bak við lás og slá
Amnesty International segir að þáttaskil hafi orðið í mannréttindamálum í Eritreu fyrir tuttugu árum þegar hópur stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks var fangelsaður. Staða mannréttinda hafi verið slæm en versnað til muna þegar yfirvöld réðust með þessum hætti gegn tjáningarfrelsinu. Ekki er enn vitað um afdrif fólksins. Samson Habte, fréttastjóri sem flúði Eritreu fyrir níu árum, segir að heimalandið feli sannleikann bak við lás og slá.
Viðtal
Við þurfum að tala um Eritreu
Samson Habte, fréttastjóri fjölmiðilsins Erisat, fékk skjól í Reykjavík en hann neyddist til að flýja heimaland sitt, Eritreu, vegna starfa sinna. Þar eru þúsundir í fangelsum án dóms og laga, margir vegna skoðana sinna, og frjálsir fjölmiðlar eru bannaðir. Samson segist vera rödd óvinarins í augum einræðisstjórnar Eritreu. Fréttir sem Samson og nokkur landflótta eritresk starfssystkin hans víða um heim senda gegnum gervihnött til Eritreu ná til um 70 prósent þjóðarinnar.
ÞrautirSpurningaþrautin
797. spurningaþraut: Konur í NATO, innrás Frakka á England og hæð Heklu
Fyrri aukaspurning: Hvað heitir þessi eyja? * Aðalspurningar: 1. Hver var sá hæstsetti sem þurfti að segja af sér vegna Watergate-hneykslisins? 2. En hvers vegna nefnist Watergate-hneykslið Watergate-hneyksli? 3. Á NATO-fundinum sem lauk á dögunum mættu fjórar konur sem leiðtogar ríkja sinna. Ein þeirra var vitaskuld Katrín Jakobsdóttir héðan frá Íslandi en hvaðan komu hinar konurnar þrjár? Þið þurfið að...
Fréttir
2
Bjarni furðar sig á dómurum og segir þá eiga að skila því sem ofgreitt var
„Fólkið í landinu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyrir efsta lag ríkisins, æðstu embættismennina, að skila því sem ofgreitt var úr opinberum sjóðum,“ skrifar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, um mótmæli dómara við því að þurfa að endurgreiða ofgreidd laun.
Fréttir
6
Dómarar mótmæla endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra launa
Ákvörðun fjármálaráðherra um að krefja 260 einstaklinga um endurgreiðslu á ofgreiddum launum síðastliðinna þriggja ára er harðlega mótmælt af dómurum. „Aðgerðirnar fela í sér atlögu framkvæmdavaldsins að dómsvaldinu sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskri réttarsögu,“ segir í ályktun Dómarafélags Íslands.
Rannsókn
2
Furðulegt ferðalag íslenskrar síldar til Úkraínu um Panama
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki seldu uppsjávarfisk til Evrópulandsins Úkraínu í gegnum ríki í öðrum heimsálfum. Eitt af þessum löndum var skattaskjólið Panama sem varð alræmt eftir gagnalekann frá Mossack Fonseca árið 2016. Fisksölufyrirtækin vilja ekki svara spurningum um viðskiptin en þrír sérfræðingar segja þau líta út fyrir að vera gerð af skattalegum ástæðum, gerð til þess eins að stýra því hvar hagnaður myndist.
Fréttir
Ríkið hefur ofgreitt kjörnum fulltrúum og embættismönnum samtals 105 milljónir
Vel á þriðja hundrað kjörinna fulltrúa, ráðherra og embættismanna hafa á síðustu árum fengið greidd of há laun frá Fjársýslu ríkisins, sem studdist við rangt viðmið við launahækkanir. Samtals nemur ofgreiðslan 105 milljónum króna. 45 þessara einstaklinga eru ekki lengur á launaskrá ríkisins. Tólf mánaða endurgreiðsluáætlun hefur verið samþykkt.
Fréttir
1
22 börn biðu eftir brottflutningi í byrjun júní
Tugir umsækjenda um alþjóðlega vernd hafa beðið lengur en ár eftir að vera flutt af landi brott eftir að umsóknum þeirra hefur verið hafnað. Tuttugu og tvö börn biðu brottflutnings í byrjun mánaðar, samkvæmt svari Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á Alþingi.
Þín áskrift hefur áhrif
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni með áskriftum og styrkjum frá febrúar 2015. Með því að kaupa áskrift styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Athugasemdir