Hefði Kant hunsað danska fulltrúann og afmælishátíð fullveldisins?
Svanur Sigurbjörnsson mátar mótmæli við komu Piu Kjærsgaard á hátíðarfund Alþingis við siðfræði þýska heimspekingsins Immanuels Kant.
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
2
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
135
Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjölfarið á skjálftahrinunni á Reykjanesi.
3
FréttirSamherjaskjölin
63362
Þorsteinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, heldur áfram að kenna Jóhannesi Stefánssyni einum um ætlaðar „óeðlilegar“ greiðslur í Namibíu. Samherji hefur aldrei útskýrt hvernig það gat gerst að mútugreiðslur frá Samherjafélögum til „hákarlanna“ svökölluðu héldu áfram í þrjú ár eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja.
4
Fréttir
8
Sendiráð Íslands í Washington dregst inn í umræðu um bresti sonar Bandaríkjaforseta
Sendiráð Íslands í Washington er í húsi þar sem Hunter Biden. sonur Bandaríkjaforseta, var með skrifstofu. Hunter braut öryggisreglur hússins ítrekað og fékk ákúrur vegna þeirra sendiráða sem eru í húsinu. Geir H. Haarde var sendiherra Íslands í Washington á þessum tíma.
5
FréttirHeimavígi Samherja
1565
Þorsteinn Már og Helga skulduðu fyrirtækjum Samherja í Belís og Kýpur milljónir án gjalddaga
Ársreikningar félaga Samherja á Kýpur sýna innbyrðis viðskipti við Þorstein Má Baldvinsson og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur. Þau voru sektuð vegna brota á gjaldeyrishaftalögunum eftir hrunið vegna millifærslna inn á reikninga þeirra en þær sektir voru svo afturkallaðar vegna mistaka við setningu laganna.
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
7
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
962
Stórir skjálftar ríða yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið
Skjálftar um og yfir 5 á Richter hafa riðið yfir Reykjanesið. Staðsetningin er í kringum Fagradalsfjall. Sá fyrsti mældist 5,7 að stærð, 3,3 kílómetrum suðsuðvestur af Keili. Skjálftarnir teygja sig í átt að höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt frumniðurstöðum Veðurstofunnar.
Prentútgáfa Stundarinnar kemur næst út þann 12. mars.
Samstaða færði okkur undnan Danmörku og samstaða gæti enn verið besta leiðin skrifar Svanur Sigurbjörnsson. Að hunsa Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins, er ekki endilega rétta leiðin til slikrar samstöðu.Mynd: AFP
Það er ekki nýlunda að fólk í stjórnmálum noti allskyns frávik í hegðun til að mótmæla því sem það er ósátt við. Ég er að tala um friðsamleg mótmæli, til dæmis svokallaða borgaraleg óhlýðni (e. civil disobedience)eða hunsun (e. boycotting). Ýmist eru þetta hópar fólks sem láta þannig finna til sín með samtakamætti sínum eða áhrifamikið fólk í pólitík sem fær athygli fjölmiðla fyrir frávik sitt.
Í vikunni var mótmælt á afmælishátíð 100 ára afmælis fullveldis Íslands á Þingvöllum.Nokkrir þingmenn í stjórnarandstöðu mótmæltu viðurvist öfga-þjóðernissinnaðs hátíðargests frá Danmörku sem okkur var sendur sem fulltrúi þings þeirra. Hefði heimspekingurinn og siðfræðingurinn Immanuel Kant (1724-1804) gert slíkt hið sama?
Immanuel KantKant var uppi á þeim tíma sem konungsræði ríkti í löndum Evrópu og frelsi einstaklinga var lítið. Miklu máli skipti að hlýða boðum og bönnum og láta ekkert henda sig sem skæri mann út úr fjöldanum. Regla Kants var þó á undan hans samtíð því að hann er ekki að tala um blinda löghlýðni heldur það sem siðferðilega skilar góðum vilja. Reglan á því erindi enn í dag til borgara í frjálslyndum Vestrænum ríkjum samtímans.
Mynd: Wikipedia
Kant er þekktur fyrir mikilvægt framlag til siðfræðinnar og ber þar hæst áhersla hans á mannvirðingu, gagnrýna hugsun og reglu til viðmiðunar fyrir siðferðilegar ákvarðanir. Regla hans var í megin dráttum sú að breytni manns ætti að geta orðið að þeirri lífsreglu sem maður sjálfur og allir aðrir gætu hugsað sér að fylgja. Þannig ætti maður að máta breytnina við bæði sjálfan sig til framtíðar (lífsregla) og allt skynsamlega hugsandi fólk. Ákvörðunina yrði maður að taka af fúsum og frjálsum vilja og af góðum vilja. Annað viðmið Kants var að aldrei mætti maður nota annað fólk sem tæki í eigin tilgangi því að allt fólk hefði sitt eigið innra virði – væri tæki sjálfs síns. Þessi hugsun Kants og fleiri siðfræðinga sem styrkt hafa hugtak mannvirðingarinnar lögðu grunninn fyrir mannréttindi nútímans.
Hvernig kemur þessi hunsun íslensku þingmannanna á hátíðinni út noti maður siðfræði Kants til viðmiðunar?
Einn þingmaður mætti ekki og annar fór út þegar danski fulltrúinn tók til máls.Setjum þetta í form reglu; Í hvert sinn sem óásættanlegur fulltrúi annars lands er sendur sem fulltrúi á opinbera hátíð íslenska lýðveldisins (eða fullveldisins) ætla ég (þingmaðurinn) að hunsa hátíðina eða ganga út af henni á viðkvæmu augnabliki.
Fyrir þingmanninn sjálfan er þetta merki um sterka sannfæringu og standa í fæturna gagnvart því sem viðkomandi telur ólíðandi í stjórnmálastefnu fulltrúans. Mótmælum er þó hægt að koma á framfæri á ýmsa vegu og því er hunsun ekki eina leiðin. Á bakvið hunsunina gæti einnig legið sú skoðun að ríkisstjórnin og Alþingi beri ábyrgð á komu danska fulltrúans og því beinist mótmælin gegn Alþingi að auki.
Við orðum þetta oft svona: „Hvað ef allir höguðu sér svona?“Við getum því spurt: „Hvað ef allir þingmenn Alþingis hefðu annað hvort ekki mætt í hátíðina eða staðið upp og farið þegar danski þingforsetinn tæki sér stöðu í pontu?“Lýsti það góðu siðferði þeirra? Það er ljóst að það hefði verið sérkennilegt. Allt í einu, á afmælishátíð fullveldis Íslendinga, hefðu allir látið sig hverfa vegna eins erlends fulltrúa sem þeim líkaði ekki við. Afmælishátíðin hefði liðast í sundur og fulltrúinn hefði furðað sig á slíkum ólíkindum og ekki borið því vel söguna. Íslendingar almennt hefðu líkast til einnig orðið forviða.
Það hefur einnig heyrst í fréttum að danski fulltrúinn sé handhafi íslenska stórriddarakrossins og að einn íslenskur handhafi ætli sér að skila inn sinni orðu þar sem hann vilji ekki vera í félagi með svo óverðugum orðubera eins og þessum danska fulltrúa.Yrði slík athöfn að almennri reglu meðal orðuhafa myndi rigna inn orðum til Bessastaða.Orðan væri dæmd ómerk út frá einu tilviki. Kannski er orðan ekki sérlega mikill heiðursvottur en það sést ekki á svip handhafa við viðtöku hennar og það liggur eitthvað meira að baki virði hennar en þau tilvik „misheppnaðra“ orðuveitinga sem liggja í sögu hennar.
Siðferði tengt hlutverki
Þegar maður metur breytni manneskju skiptir máli íhvaða hlutverki hún er gagnvart samfélagi sínu. Óháðir einstaklingar í þjóðfélaginu geta óátalið ákveðið að hunsa hátíðina vegna komu danska fulltrúans, enda bera þeir engar skyldur og gegna engu opinberu hlutverki þar. Öðru máli gildir um alþingismenn. Þeir eru fulltrúar kjósenda sinna og tilheyra löggjafarsamkomu Íslands – Alþingi, hvort sem að þeir eru hluti af ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu. Þeir eru því aldrei að gegna persónulegum erindum eða haga hegðun sinni líkt og í einkalífi þegar þeir koma saman í nafni hlutverks síns, stöðu og vinnu.
Danir völdu fulltrúannOkkur getur líka illa við bakgrunn Piu Kjærsgaard, skrifa Svanur, en við ráðum engu um hver hann er.
Mynd: Alþingi
Afmælishátíð Alþingis á Þingvöllum vegna 100 ára afmælis fullveldisins er opinber viðburður sem felur í sér þátttöku alþingismanna.Án þeirra er ekkert Alþingi.Danski fulltrúinn hefur sínar stjórnmálaskoðanir og komst í ríkisstjórn danska þingsins með fulltingi danskra kjósenda. Íslenskir alþingismenn geta haft sínar skoðanir á því hvort fulltrúinn hafi verðskuldað stöðu sína en hingað er hann kominn sem fulltrúi Danmerkur en ekki sjálfs síns.Fulltrúinn var valinn til að segja eitthvað jákvætt um 100 ára sögu fullveldis Íslands og þau tengsl sem löndin áttu saman. Hann er því ekki kominn til að básúna eigin stjórnmálaskoðanir, nema að hann gangi á skjön við hlutverk sitt.Danir völdu fulltrúann og um það höfum við ekkert vald eða lögsögu. Okkur getur líkað illa við bakgrunn fulltrúans en við ráðum engu um hver hann er.
Á móti reglunni um að hunsa óviðurkvæmilega fulltrúa erlendra ríkja er sú regla að gegna starfi sínu sem alþingismaður, mæta í vinnuna og sýna samstöðu og virðingu afmælishátíðar sem varðar mikilvægt skref í sögu þjóðarinnar. Mæti allir alþingismenn á slíka hátíð Alþingis á Þingvöllum sýnir það samstöðu og sameiningu um að fagna þessum tímamótum. Það er bæði starf alþingismannsins og góð regla gagnvart vinnuveitendum sínum, þjóðinni.Hún er sterkust þegar allir taka þátt.Aftur reglan um að hunsa viðburðinn vegna eins gests er veikust þegar allir fara eftir henni – afleiðingarnar væru óviðeigandi (upplausn samkomunnar) og úr öllu samhengi við hlutverk gestsins.
Hvað er líklegt að Kant hefði gert? Eru aðrir valkostir?
Mér sýnist á þessum hugleiðingum að Kant hefði ekki hunsað hátíðina. Öll yfirveguð breytni hefur ákveðinn tilgang. Hér vill mótmælandinn koma skilaboðum bæði til danska fulltrúans og stjórnvalda (og þjóða þeirra) en þarf á sama tíma að heiðra hátíð og vinnuskyldu sína með mætingu sinni. Gæti ekki önnur leið en hunsun gengið upp sem siðferðilega réttmæt regla? Kant talaði um að undanþágur geti gilt um góðar reglur (eins og að mæta í vinnuna og heiðra starf sitt) en þær komi aðeins til af nauð. Var viðvera þessa danska fulltrúa nauð af því tagi sem réttlæta myndi fyrir hvern og einn þingmann að mæta ekki á hátíðina? Hafa einstaka þingmenn sérstaka stöðu sem leyfir þeim undantekningar frekar en öðrum?
En Kant hafði málsbætur fyrir mótmælandann því að siðferðisgildi breytninnar á að meta samkvæmt því hugarfari sem að baki liggur en ekki útkomunni. Gott hugarfar þingmannsins um að standa vörð um mannréttindi teldist því siðferðilega dyggðugt í huga Kants. Það sem vantar í umræðu Kants er hvernig við tökumst á við þann vanda þegar reglur og þau gildi sem á bak við þær standa skarast á, til dæmis í flóknum samfélagslegu samhengi eins og í stjórnmálunum. Það er því ekki víst að gildi frelsis, þ.e. réttur þingmanns til að fara eftir eigin samvisku þjóni alltaf best málstað hans því að gildi samstöðu um þjóðfélagsleg verðmæti geta á lúmskan hátt skilað meiri árangri. Með því að allir þingmenn láti það ekki á sig fá að Danir sendi fulltrúa sem þekktur er af rasískum hugmyndum iðka þeir samstöðu um hátíðina og þau gildi sem hún stendur fyrir. Þau gildi sem frelsuðu okkur undan konungsstjórn og gáfu okkur rétt til sjálfsákvörðunar fengju þannig athygli og upplyftingu.Þess utan væri heill Alþingis í heiðri hafður og orðstír þess lyft. Ekki veitir af. Það voru einmitt óæskileg áhrif frá Danmörku sem við vildum losna undan fyrir 100 árum. Samstaða var leiðin þá og gæti enn verið besta leiðin. Það má auðvitað iðka samstöðu á ýmsan máta t.d. með því að bjóða ekki slíkum fulltrúa hingað, en það var of seint að bregðast við með þeim hætti. Hver aðgerð á sinn tíma og stað.Í því liggur hluti siðferðilegrar dómgreindar; að vara sig á taktleysi og finna góðar leiðir til að koma baráttu sinni fyrir góðu mannlífi á framfæri.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Stundin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Mest lesið
1
ViðtalHeimavígi Samherja
20160
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
2
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
135
Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjölfarið á skjálftahrinunni á Reykjanesi.
3
FréttirSamherjaskjölin
63362
Þorsteinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, heldur áfram að kenna Jóhannesi Stefánssyni einum um ætlaðar „óeðlilegar“ greiðslur í Namibíu. Samherji hefur aldrei útskýrt hvernig það gat gerst að mútugreiðslur frá Samherjafélögum til „hákarlanna“ svökölluðu héldu áfram í þrjú ár eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja.
4
Fréttir
8
Sendiráð Íslands í Washington dregst inn í umræðu um bresti sonar Bandaríkjaforseta
Sendiráð Íslands í Washington er í húsi þar sem Hunter Biden. sonur Bandaríkjaforseta, var með skrifstofu. Hunter braut öryggisreglur hússins ítrekað og fékk ákúrur vegna þeirra sendiráða sem eru í húsinu. Geir H. Haarde var sendiherra Íslands í Washington á þessum tíma.
5
FréttirHeimavígi Samherja
1565
Þorsteinn Már og Helga skulduðu fyrirtækjum Samherja í Belís og Kýpur milljónir án gjalddaga
Ársreikningar félaga Samherja á Kýpur sýna innbyrðis viðskipti við Þorstein Má Baldvinsson og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur. Þau voru sektuð vegna brota á gjaldeyrishaftalögunum eftir hrunið vegna millifærslna inn á reikninga þeirra en þær sektir voru svo afturkallaðar vegna mistaka við setningu laganna.
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
7
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
962
Stórir skjálftar ríða yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið
Skjálftar um og yfir 5 á Richter hafa riðið yfir Reykjanesið. Staðsetningin er í kringum Fagradalsfjall. Sá fyrsti mældist 5,7 að stærð, 3,3 kílómetrum suðsuðvestur af Keili. Skjálftarnir teygja sig í átt að höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt frumniðurstöðum Veðurstofunnar.
Mest deilt
1
FréttirSamherjaskjölin
63361
Þorsteinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, heldur áfram að kenna Jóhannesi Stefánssyni einum um ætlaðar „óeðlilegar“ greiðslur í Namibíu. Samherji hefur aldrei útskýrt hvernig það gat gerst að mútugreiðslur frá Samherjafélögum til „hákarlanna“ svökölluðu héldu áfram í þrjú ár eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja.
2
ViðtalHeimavígi Samherja
20159
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
3
Aðsent
8157
Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir
Mamma þarf líka að vinna
Hverjum gagnast efnahagsaðgerðir stjórnvalda þegar kemur að atvinnumálum?
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
5
Fréttir
17106
Undanþága til hjúskapar barna verður felld úr gildi
Samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra verður ekki lengur heimilt að veita undanþágu til barna undir 18 ára aldri til að ganga í hjúskap.
6
FréttirSamherjaskjölin
981
Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja
Nú er ljóst að Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi verða ekki látnir lausir úr gæsluvarðhaldi í Namibíu. Þeir sitja inni grunaðir um að hafa þegið mútugreiðslur frá Samherja sem Þorsteinn Már Baldvinsson kannast ekki við.
7
FréttirLaxeldi
2976
Eigandi Arnarlax boðar „nýja tíma“ með aflandseldi en fagnar samtímis 10 þúsund tonna strandeldi í Djúpinu
Stærsti eigandi Arnarlax, norski laxeldisrisinn Salmar, setur aukinn kraft í þróun á aflandseldi á sama tíma og fyrirtækið fær jákvæð viðbrögð frá yfirvöldum á Íslandi um að stórauka framleiðsluna í fjörðum landsins.
Mest lesið í vikunni
1
ViðtalHeimavígi Samherja
86470
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
2
MyndbandHeimavígi Samherja
88161
Hvað finnst Akureyringum um Samherja?
Stundin spurði Akureyringa út í mikilvægi og áhrif stórfyrirtækisins Samherja á lífið í Eyjafirði.
3
RannsóknHeimavígi Samherja
127460
Áhrif Namibíumálsins á íbúa Akureyrar: „Fólki þykir almennt rosalega vænt um Samherja“
Hvaða áhrif hefur það á 20 þúsund manna samfélag á Íslandi þegar stærsta fyrirtækið í bænum, útgerð sem veitir rúmlega 500 manns vinnu og styrkir góð málefni um allt að 100 milljónir á ári, er miðpunktur í alþjóðlegri spillingar- og sakamálarannsókn sem teygir sig víða um heim? Stundin spurði íbúa Akureyrar að þessari spurningu og kannaði viðhorf íbúa í Eyjafirði og á Íslandi öllu til Samherjamálsins í Namibíu. Rúmt ár er liðið frá því málið kom upp og nú liggja fyrir ákærur í Namibíu gegn meðal annars Samherjamönnum og embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóri eru með málið til meðferðar á Íslandi.
4
ViðtalHeimavígi Samherja
20159
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
5
Spurt & svaraðHeimavígi Samherja
93322
Samherji kaupir dagskrárefni af sjónvarpsstöð á Akureyri
Fjölmiðillinn N4 rekur sjónvarpsstöð á Akureyri. Miðillinn hefur tekið að sér dagskrárgerð, kostaða af Samherja, en telja það vel falla inn í þá starfsemi sem miðillinn heldur úti. „Við erum ekki fréttastöð,“ segir dagskrárgerðarmaðurinn Karl Eskil Pálsson.
6
FréttirHeimavígi Samherja
56433
Umdeild aðkoma Samherja að fjölmiðlum
Blaðamannafélag Íslands fordæmdi í fyrra aðgerðir Samherja gagnvart fjölmiðlum. Þorsteinn Már Baldvinsson átti fimmtung í Morgunblaðinu. Samherji hefur keypt umfjöllun frá sjónvarpsstöðinni N4 á Akureyri. Sjónvarpsstöðin Hringbraut braut fjölmiðlalög í samstarfi við Samherja.
7
FréttirHeimavígi Samherja
43351
Samherji notaði sex milljarða frá Kýpur og Afríku til að kaupa kvóta og fiskvinnslu á Akureyri
Stórfelldar lánveitingar Samherja frá Kýpur til félaga á Akureyri sína hvernig peningarnir komast til Íslands frá fiskmiðunum í Afríku sem Samherji hefur hagnast svo vel á.
Mest lesið í mánuðinum
1
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
94276
Ingjaldur hafnar öllum ásökunum og kennir bróður sínum um
Ingjaldur Arnþórsson, fyrrverandi forstöðumaður Varpholts og Laugalands, segist orðlaus yfir lýsingum hóps kvenna á ofbeldi sem hann eigi að hafa beitt þær. Hann segist aldrei hafa beitt ofbeldi eða ofríki í störfum sínum. Augljóst sé að einhver sem sé verulega illa við sig standi að baki lýsingunum.
2
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
103520
„Kerfið brást dóttur minni og fjölskyldunni allri“
Dagný Rut Magnúsdóttir segir að orð geti ekki lýst því hvernig sér hafi liðið á meðferðarheimilinu Laugalandi. Þetta hafi verið hræðilegur tími. Hún var þar um nokkurra mánaða skeið þegar hún var fimmtán ára. Pabbi hennar, Magnús Viðar Kristjánsson, óttast að hún jafni sig aldrei að fullu eftir reynsluna sem hún hafi orðið fyrir á meðferðarheimilinu. Hann segir að kerfið hafi ekki aðeins brugðist Dagnýju heldur allri fjölskyldunni.
3
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
93836
„Upphafið að versta tímabili lífs míns“
„Ég er búin að vera að reyna að safna kjarki í mörg ár til að stíga fram og segja frá því sem ég upplifði á meðferðarheimilunum Varpholti og Laugalandi þegar ég var unglingur. Ég vissi alltaf að ég þyrfti að segja frá því sem gerðist,“ segir Kolbrún Þorsteinsdóttir, sem var fyrst vistuð á meðferðarheimilinu Varpholti, sem árið 2000 var flutt í Laugaland í Eyjafirði. Ingjaldur Arnþórsson stýrði báðum heimilunum.
4
Leiðari
194615
Jón Trausti Reynisson
Harmleikur Katrínar Jakobsdóttur
Ólíkt fyrri forsætisráðherrum talar Katrín Jakobsdóttir ekki niður til fólks.
5
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
127994
„Ég lærði að gráta í þögn“
Á því rúma ári sem Sigurósk Tinna Pálsdóttir var vistuð á meðferðarheimilinu Laugalandi var hún brotin þannig niður að allt hennar líf hefur litast af því. Hún lýsir óttanum og vanlíðaninni sem var viðvarandi á heimilinu. Þegar Tinna greindi frá kynferðisbrotum sem hún hafði orðið fyrir var henni ekki trúað og hún neydd til að biðjast afsökunar á að hafa sagt frá ofbeldinu. „Ég gerði ekki neitt, það voru þau.“
6
Aðsent
991.265
Dagný Halla Ágústsdóttir, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir
Dökka hlið TikTok algóriþmans
Opið bréf til foreldra um notkun barna á TikTok - frá þremur unglingum sem nota TikTok.
7
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili
1981.560
Varnarlaus börn á vistheimili upplifðu ótta og ofríki
Sex konur stíga fram í Stundinni og lýsa alvarlegu ofbeldi sem þær segjast hafa orðið fyrir á meðan þær dvöldu á meðferðarheimilunum Varpholti og Laugalandi, sem stýrt var af sömu aðilum. Forstöðumaður heimilanna hafnar ásökunum. Ábendingar um ofbeldið bárust þegar árið 2000 en Barnaverndarstofa taldi ekkert hafa átt sér stað. Konurnar upplifa að málum þeirra hafi verið sópað undir teppið. „Við vorum bara börn.“
Nýtt á Stundinni
Þrautir10 af öllu tagi
3
307. spurningaþraut: Hákarlaskip, Tuvalu, hver fæddist í Halifax fyrir 30 árum?
Prófiði nú þrautina frá í gær — hér er hana að finna. * Aukaspurningar eru tvær að þessu sinni. Sú fyrri er svona: Hér að ofan má sjá skopteikningu frá tíma þorskastríðanna. Teiknarinn var í áratugi einn vinsælasti og afkastamesti teiknari landsins og stíll hans flestum kunnur. Hvað hét hann? * Aðalspurningar eru hins vegar tíu að þessu sinni, og...
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálftavirkni í dag.
Viðtal
3
Seldi paprikustjörnur til Kína
Draugur upp úr öðrum draug, fyrsta einkasýning Helenu Margrétar Jónsdóttir, stendur yfir í Hverfisgallerí til 13. mars. Helena leikur sér að víddum. Ofurraunveruleg málverk hennar eru stúdíur í hversdagsleika, formgerð, dýpt og flatneskju. Á verkum hennar má finna klassískt íslenskt sælgæti, eitthvað sem margir teygja sig í þegar þeir eru dálítið þunnir, sem er einkennandi fyrir titilveru sýningarinnar.
Mynd dagsins
10
Glæsilegt hjá Grænlendingum
Ferðamenn sem koma hingað frá Grænlandi eru nú, einir þjóða, undanþegnir aðgerðum á landamærum og þurfa því hvorki að fara í skimun, sóttkví eða framvísa neikvæðu PCR-prófi. „Það hefur gengið vel, einungis 30 Covid-19 smit verið í öllu landinu." segir Jacob Isbosethsen (mynd) sendiherra Grænlands á Íslandi. Ef jafnmargir hefðu smitast hér og og á Grænlandi hefðu 195 manns fengið Covid-19. Í morgun var talan örlítið hærri, 6049 einstaklingar hafa fengið farsóttina hér heima.
Stundarskráin
3
Innsetningar, djass og afmæli
Tónleikar, viðburðir og sýningar á næstunni.
Fréttir
1669
Lítill stuðningur í umsögnum við verðtryggingarfrumvarp
Frumvarp um skref til afnáms verðtryggingar, sem ríkisstjórnin lofaði samhliða lífskjarasamningum, fellur ekki í kramið hjá aðilum vinnumarkaðarins, fjármálafyrirtækjum og Seðlabankanum.
FréttirSamherjaskjölin
981
Losna ekki úr gæsluvarðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja
Nú er ljóst að Bernhard Esau og Tamson Hatuikulipi verða ekki látnir lausir úr gæsluvarðhaldi í Namibíu. Þeir sitja inni grunaðir um að hafa þegið mútugreiðslur frá Samherja sem Þorsteinn Már Baldvinsson kannast ekki við.
Aðsent
8157
Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir
Mamma þarf líka að vinna
Hverjum gagnast efnahagsaðgerðir stjórnvalda þegar kemur að atvinnumálum?
FréttirLaxeldi
2976
Eigandi Arnarlax boðar „nýja tíma“ með aflandseldi en fagnar samtímis 10 þúsund tonna strandeldi í Djúpinu
Stærsti eigandi Arnarlax, norski laxeldisrisinn Salmar, setur aukinn kraft í þróun á aflandseldi á sama tíma og fyrirtækið fær jákvæð viðbrögð frá yfirvöldum á Íslandi um að stórauka framleiðsluna í fjörðum landsins.
Þrautir10 af öllu tagi
4157
306. spurningaþraut: Tungumálin oromo og amharíska, hvar eru þau töluð?
Gærdagsþrautin, hér. * Aukaspurning: Í hvaða borg er sú hin litríka brú er hér að ofan sést? * 1. Í hvaða landi var Bismarck helstur valdamaður 1871-1890? 2. Í hvaða landi er Chernobyl? 3. Hver keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision bæði 1999 og 2005? 4. Hvaða þjóð varð heimsmeistari í fótbolta karla árið 1970 eftir að hafa unnið Ítali...
FréttirHeimavígi Samherja
1565
Þorsteinn Már og Helga skulduðu fyrirtækjum Samherja í Belís og Kýpur milljónir án gjalddaga
Ársreikningar félaga Samherja á Kýpur sýna innbyrðis viðskipti við Þorstein Má Baldvinsson og Helgu Steinunni Guðmundsdóttur. Þau voru sektuð vegna brota á gjaldeyrishaftalögunum eftir hrunið vegna millifærslna inn á reikninga þeirra en þær sektir voru svo afturkallaðar vegna mistaka við setningu laganna.
Mynd dagsins
3
Allir á tánum
Það var mikið um að vera við veg 42, vestan Kleifarvatns nú í morgun. Vegagerðin var að kanna aðstæður, starfsmenn á Jarðvársviði Veðurstofu Íslands (mynd) voru að mæla gas á hverasvæðinu í Seltúni, sem og grjóthrun. Þarna voru líka ferðalangar að vonast eftir hinum stóra, kvikmyndagerðarmaður að festa augnablik á filmu, enda höfðu mælst yfir 1000 jarðskjálftar á svæðinu fyrstu tíu tímana í dag. Þar af tveir yfir 3 að stærð, sá stærri átti upptök sín rétt norðan við Seltún, klukkan 03:26 í morgun.
Þín áskrift hefur áhrif
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni með áskriftum og styrkjum frá febrúar 2015. Með því að kaupa áskrift styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Athugasemdir