Til Pia Kjærsgaard, formand for Folketinget.
Det islandske samfund er ikke perfekt, men en af de uheldige faktorer vi har været så heldige at være for det meste fri for, er fjendtlighed mod udlændinge – deriblant og ikke mindst fjendtlighed til udsatte og sårbare flygtninge – hvilket du og dit parti har stået for i Danmark. Til trods for at du desværre har haft alt for stor succes blandt danskere med din propaganda imod multikultur og udlandske kulturforskelle og indflydelse, er det således et ønske blandt flertallet af islændinge, at udføre begge dele med venlighed og gæstfrihed.
Det er faktisk islændingenes tro at gæstfrihæd er en af nationens hoved dyder, helt tilbage til oldtiden. Men den er dog sat på en alvorlig prøve nu, da Altingets ledelse har gjort den alvorlige fejl at invitere dig til at holde en vigtig tale før Altinget i dag.
Vi vil naturligvis modtage dig med vores sædvanlige og tilhørende gæstfrihed. Dog skal du være klar over at flertallet af islændinge ville hellere have foretrukket at være fri for dig på Þingvellir i dag og foragter dine synspunkter.
Illugi Jökulsson forfatter og journalist
Þetta er dönsk þýðing á bréfi sem á íslensku hljóðar svo:
Til Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins.
Íslenskt þjóðfélag er ekki fullkomið, en einn er sá ófögnuður sem við höfum verið svo heppin að vera að mestu laus við. Það er sá fjandskapur í garð útlendinga – þar á meðal og ekki síst varnarlausra flóttamanna – sem þú og þinn flokkur hafið gert út á í Danmörku. Þótt þú hafir því miður náð alltof góðum árangri meðal Dana með áróðri gegn fjölmenningu og erlendum menningaráhrifum, þá er vilji meirihluta Íslendinga að taka hvoru tveggja með velvilja og gestrisni.
Það er raunar trú Íslendinga að gestrisni sé ein af höfuðdyggðum þjóðarinnar frá fornu fari. Það reynir hins vegar verulega á þá gestrisni þegar gest eins og þig ber að garði. Úr því að yfirstjórn Alþingis gerði þau mistök að bjóða þér að halda mikilvæga ræðu á fundi Alþingis í dag munum við að sjálfsögðu taka þér af vanalegri og tilhlýðilegri gestrisni. En þú mátt vita að meirihluti Íslendinga hefði kosið að vera laus við þig af Þingvöllum í dag og fyrirlítur skoðanir þínar.
Illugi Jökulsson rithöfundur og blaðamaður
Athugasemdir