Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Berst fyrir viðurkenningu á ranglætinu sem fólst í því að vista hann í fangelsi

Ólaf­ur Haf­steinn Ein­ars­son, fatl­að­ur mað­ur sem var vist­að­ur án dóms í kvennafang­elsi, átti fund með dóms­mála­ráð­herra í mars en hef­ur ekki enn feng­ið af­greiðslu á máli sínu. Ólaf­ur krefst þess að rann­sókn fari fram á máli hans og annarra sem voru vist­að­ir með hon­um.

Vonaðist eftir viðurkenninguÞegar Ólafur fór á fund ráðherra vonaðist hann til þess að brugðist yrði við frásögn hans og ranglætið sem hann upplifði yrði viðurkennt, í það minnsta rannsakað.

Ólafur Hafsteinn Einarsson sendi harðort bréf til dómsmálaráðherra þar sem hann kallaði eftir formlegu svari ráðherra varðandi beiðni hans um opinbera rannsókn á starfsemi kvennafangelsisins Bitru á Suðurlandi, þar sem Ólafur og aðrir fatlaðir einstaklingar voru vistaðir án dómsúrskurðar. Bréfið var sent ráðherra þann 12. mars og óskað eftir svari fyrir 1. júlí. Þann 3. júlí barst bréf frá dómsmálaráðuneytinu þess efnis að vegna sumarfría væri ekki unnt að svara bréfinu strax, en verið væri að vinna að svari. Tæpum tveimur mánuðum síðar hefur enn ekkert svar borist. Almennt er miðað við að svar við fyrirspurnum berist innan tveggja vikna.

Fatlaðir vistmenn bjuggu í opna fangelsinu Bitru, samhliða föngum, en einn þeirra sat inni fyrir manndráp. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár