Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

„Ég er ekki kona“

Prod­hi Man­isha er pan­kyn­hneigð­ur trans­mað­ur sem jafn­framt er húm­an­isti ut­an trú­fé­lags. Þessi ein­kenni hans voru grund­völl­ur þess að hon­um var veitt staða flótta­manns á Ís­landi. Hann var skráð­ur karl­mað­ur hjá Út­lend­inga­stofn­un á með­an hann hafði stöðu hæl­is­leit­anda en það breytt­ist þeg­ar hon­um var veitt hæli. Nú stend­ur ekki leng­ur karl á skil­ríkj­un­um hans, held­ur kona. Það seg­ir hann seg­ir ólýs­an­lega sárs­auka­fullt eft­ir alla hans bar­áttu. Hann leit­ar nú rétt­ar síns.

Prodhi Manesha var skilgreindur kona við fæðingu, hann hefur ekki undirgengist aðgerð eða hormónameðferð til þess að breyta því og hyggst ekki gera það. Flestir myndu líka taka undir að hann lítur út fyrir að vera kona, svona smágerður, með sítt hár og fínlegt andlit. Prodhi er samt ekki kona, heldur transmaður. Það hefur markað allt hans líf. Hann er fæddur í landi þar sem réttindi transfólks eru fótumtroðin og hann var ungur að árum þegar hann vissi að hann yrði að flytja þaðan.

Hann vill ekki nefna nafn landsins, kallar það ekki heimaland sitt heldur aldrei annað en vegabréfs-landið – my passport country. „Ég er tilbúinn til að ræða ástandið í landinu en ég nefni það ekki á nafn af mörgum ástæðum. Ein af þeim er sú, að ég vil ekki láta tengja mig því. Sumir kynnu að segja að það væri „nógu“ öruggt fyrir mig að búa þar. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Trans fólk

Trans manni vísað úr Laugardalslaug fyrir að nota karlaklefa
ÚttektTrans fólk

Trans manni vís­að úr Laug­ar­dals­laug fyr­ir að nota karla­klefa

Starfs­fólk Laug­ar­dals­laug­ar fór fram á að trans mað­ur­inn Prod­hi Man­isha not­aði ekki karla­klefa laug­ar­inn­ar, jafn­vel þótt mann­rétt­inda­stefna borg­ar­inn­ar taki skýrt fram að það sé óheim­ilt að mis­muna fólki eft­ir kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu eða kyn­ein­kenn­um. Formað­ur mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráðs vill leyfa kyn­vit­und að ráða vali á bún­ings­klef­um í sund­laug­um.
Sögðust hlæjandi og í kaldhæðni hata karlmenn og eru nú tekin í gegn á netinu
FréttirTrans fólk

Sögð­ust hlæj­andi og í kald­hæðni hata karl­menn og eru nú tek­in í gegn á net­inu

Forsprakk­ar fyr­ir rétt­ind­um trans ein­stak­linga á Ís­landi hafa sætt gagn­rýni og upp­nefn­um fyr­ir orð sem lát­in voru falla í kald­hæðni í hlað­varpi í des­em­ber síð­ast­liðn­um, en er fjall­að um á DV.is í dag. Alda Villi­ljós og Sæ­borg Ninja segja frétt DV um að þau telji karl­menn eiga skil­ið að deyja al­gjör­an út­úr­snún­ing.
Togarajaxlinn sem var kona
ViðtalTrans fólk

Tog­arajaxl­inn sem var kona

Anna Kristjáns­dótt­ir var lengi kona í karl­manns­lík­ama. Dreng­ur­inn Kristján klæddi sig í kven­manns­föt og leyndi því að hann var stúlka. Gekk í hjóna­band og eign­að­ist þrjú börn. Laum­að­ist í föt eig­in­kon­unn­ar. En kon­an varð á end­an­um yf­ir­sterk­ari og fór í kyn­leið­rétt­ingu. Anna er sátt í dag eft­ir að hafa sigr­ast á erf­ið­leik­um við að fá að lifa sem trans­kona.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu