Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Kenndu hvort öðru að treysta

Mæðg­in­in María Sól­rún og Magnús Maríu­son standa að baki ADAM, sem er loka­kvik­mynd Al­þjóð­legr­ar barna­kvik­mynda­há­tíð­ar í Reykja­vík 2018 og fer að því loknu í al­menn­ar sýn­ing­ar í Bíó Para­dís. Hún leik­stýrði syni sín­um sem fer með að­al­hlut­verk í mynd­inni. Hér segja þau frá því hvað þau hafa lært af hvort öðru og hvernig sam­starf þeirra skil­aði sér í æv­in­týr­inu um ADAM.

Kenndu hvort öðru að treysta
Góð saman María Sólrún og Magnús við Balatonvatn í fyrrasumar, þar sem þau dvöldu við að skrifa handrit að næstu mynd, sem þau eru þegar komin með framleiðanda á. Mynd: Úr einkasafni

„Þegar Magnús hringdi í mig einn daginn frá Finnlandi og spurði hvort við ættum ekki að gera eina stuttmynd saman þá stökk ég bara með út í ævintýrið og stakk upp á að gera úr því mynd í fullri lengd, án þess að pæla hvort það væri skynsamlegt, hvort ég hefði tíma eða fjármagn til þess. Tók áhættu sem maður þorir frekar þegar maður er yngri. En ég þakka Magnúsi fyrir að taka af skarið. Og afraksturinn af ævintýrinu var síðan ADAM.“

Þannig lýsir leikstjórinn og handritshöfundurinn María Sólrún aðdraganda þess að hún og sonur hennar tóku ákvörðun um að gera í sameiningu kvikmynd í fullri lengd. Sú ákvörðun varð upphafið að nokkuð löngu, persónulegu og lærdómsríku ferli fyrir þau bæði. Þau framleiddu myndina saman, ásamt Jim Stark. Að verkefninu komu nokkrir af nánustu aðstandendum þeirra mæðgina, auk þess að þeirra eigið nærumhverfi í Neukölln í Berlín er sögusviðið. Dóttir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu