Pétur Guðmundsson, landeigandi í Ófeigsfirði á Ströndum, hafnaði því alfarið að skoða möguleikann á stofnun þjóðgarðs í norðurhluta Árneshrepps, í stað þess að heimila framkvæmdir við svokallaða Hvalárvirkjun, sem myndi hafa „talsvert neikvæð“ umhverfisáhrif á svæðinu og skerða stærsta ósnortna víðerni Vestfjarða.
Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarformaður Ikea á Íslandi, sendi sveitarstjórn Árneshrepps erindi í október með tilboði um að hann stæði undir kostnaði við gerð skýrslu um áhrif þess á svæðið að stofna þjóðgarð.
Pétur í Ófeigsfirði, sem hefur sumardvöl í firðinum, sem annars er í eyði eins og svæðið allt norðan Norðurfjarðar, skrifaði Evu Sigurbjörnsdóttur, oddvita sveitarstjórnar, bréf til sveitarstjórnar um efnið 27. nóvember síðastliðinn.
„Eva Sigurbjörnsdóttir hafði samband við mig út af athugasemdum frá Sigurði Gísla Pálmasyni. Við þeim athugasemdum vil ég bregðast með eftirfarandi. Þjóðgarður verður ekki stofnaður nema með leyfi landeigenda. Frá minni hendi kemur ekki til greina að samþykkja þjóðgarð í landi Ófeigsfjarðar,“ segir í …
Skráðu þig inn til að lesa
Þú færð tvær fríar áskriftargreinar í mánuði. Þú hefur síðan val um að styrkja óháða blaðamennsku með áskrift á hagstæðu verði, frá aðeins
2.390 krónum á mánuði.
Athugasemdir