1. Gellur úr gelluvögnum
Árni Sigfússon segir að besti matur sem hann fái séu gellur í brúnni lauksósu.
„Við Eyjapeyjarnir smíðuðum sérstaka gelluvagna, eða sérlega útfærða kassabíla, skárum gellur af þorskhausunum áður er þeir fóru í bræðslu og drógum svo gelluvagninn á milli húsa og seldum ferskar gellur. Þetta gaf ágætis vasapening og afgangurinn, sem ekki seldist, var að sjálfsögðu eldaður heima.
Uppáhaldsuppskriftin var frá mömmu – að dýfa gellunum í þeytt egg með mjólk, velta upp úr hveiti, krydduðu með salti og pipar, setja á smjörlegna steikarpönnu með söxuðum lauk og steikja báðar hliðar. Hella síðan sjóðandi vatni í botn pönnunnar, bæta í einum pakkateningi af kjötkrafti og leyfa þessu að malla í 15 mínútur.
Þá var hrærð smá sósa, eða hveitijafningur, út í (smá hveiti með vatni hrist saman) – eða Maizena-blanda fyrir dökka sósu notuð ef þurfti að þykkja sósuna. Þetta er besta fæða sem hugsast getur og er ...
Skráðu þig inn til að lesa
Þú færð tvær fríar áskriftargreinar í mánuði. Þú hefur síðan val um að styrkja óháða blaðamennsku með áskrift á hagstæðu verði, frá aðeins
1.990 krónum á mánuði.
Athugasemdir