Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Gillzenegger um Steinunni Valdísi: „Á hana dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir“

Stein­unn Val­dís Ósk­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, ræddi í dag um áskor­un Eg­ils Gillzeneggers á menn að nauðga henni. Hann kall­aði Stein­unni Val­dísi vænd­is­konu.

Gillzenegger um Steinunni Valdísi: „Á hana dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir Grét í þjóðmálaþættinum Silfrinu í dag þegar hún rifjaði upp málið. Mynd: RÚV

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og þingmaður, ræddi um nauðgunarhótanir „nafngreindra manna“ í Silfrinu á RÚV í dag. 

„Ég sat undir því að þekktir nafngreindir menn hvöttu aðra karlmenn til þess að fara heim til mín og nauðga mér. Þeir hvöttu til nauðgana á mér vegna starfa minna í stjórnmálum og vegna þeirra mála sem ég hafði barist fyrir,“ sagði Steinunn Valdís.

Steinunn Valdís var ein 137 kvenna sem greindu frá kynferðislegri áreitni, ofbeldi og mismunun í stjórnmálum í yfirlýsingu í síðustu viku.

„Steinunn er portkonan sem vildi breyta orðinu ráðherra í ráðfrú fyrir konur.“

„Steinunn Valdís Óskarsdóttir, alþingismaður. Steinunn er portkonan sem vildi breyta orðinu ráðherra í ráðfrú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Steinunni Valdísi dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verkefni að sér. Fréttastofan ákvað að gefa Ásgeiri Kolbeinssyni frí í þetta skiptið, en Fréttastofan vill ekki hafa það á samviskunni að Ásgeir finnist hangandi í ljósakrónu í vesturbænum.“

Síðar var Egill Einarsson fenginn af fyrirtækinu Já til þess að hanna forsíðu símaskrár landsmanna, og valdi hann að birta mynd af sjálfum sér á kápunni með fimleikastúlkum úr Gerplu. Þá gaf hann út bækur og þætti, meðal annars Mannasiði Gillz, Lífsleikni Gillz og Heilræði Gillz. Þar ætlaði hann að leiða „kynbræður sína í allan sannleika um hvað það er að vera karlmaður, hvernig á að heilla hitt kynið og bregðast við hinum ýmsu aðstæðum.“

Sjálfur sagði Egill að um húmor hafi verið að ræða, ekki settan fram af honum, heldur persónunni Gillzenegger.

Meiri umræða um nauðgun

Símaskráin 2011Gillzenegger var gert hátt undir höfði þrátt fyrir húmor sem snerist um að hvetja til nauðgana á nafngreindum konum.

Árið sem símaskráin kom út kærðu tvær ungar stúlkur hann fyrir nauðgun, önnur þeirra 18 ára gömul stúlka sem sótti fjarþjálfun hjá Agli. Hvorugt málið fór fyrir dóm, heldur var þeim vísað frá, annars vegar af lögreglu og hins vegar af ríkissaksóknara þar sem þau þóttu ekki líkleg til sakfellingar. Áður hafði Egill sent yfirlýsingu á fjölmiðla þar sem hann sakaði aðra stúlkuna um að hafa sent á sig handrukkara til að kúga af sér fé, auk þess sem hann kærði hana og tvær vinkonur hennar, sem báru vitni í málinu, fyrir rangar sakargiftir. Það mál var einnig fellt niður. 

Í kjölfarið stefndi Egill fjórum ungmennum fyrir meiðyrði. Áður höfðu þau fengið viðvörun, þar sem farið var fram á að þeir myndu draga ummæli sín til baka, viðurkenna að þau væru ekki rétt og borgað Agli hálfa milljón króna, ella yrði þeim stefnt fyrir dóm. 

Eftir að Hæstiréttur sýknaði eitt þeirra, Inga Kristjón Sigmarsson, af ærumeiðingum fyrir að skrifa „Fuck you rapist bastard“ á mynd af Agli sem hann birti á Instagram á þeim forsendum að um gildisdóm væri að ræða, vísaði Egill málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu, þar sem hann vann málið. „Það er ljóst að dómur Hæstaréttar stenst ekki kröfur Mannréttindasáttmálans um takmörk tjáningarfrelsis. Það er ekki þægileg tilfinning að vera saklaus maður sitjandi undir ummælum sem þessum,“ sagði Egill í samtali við Vísi af því tilefni. 

Í viðtali við unglingablaðið Monitor 2012 kvartaði Egill undan þeim áhrifum á líf hans sem nauðgunarkærur og umræða um það höfðu.

„Já, ég er fín fyrirmynd. Eða ég vona það. Hvað er fyrirmynd? Þeir sem eru alltaf að tönglast á að einhver sé vond fyrirmynd hafa örugglega frekar takmarkaða trú á ungu fólki. Ég veit að vinstrisinnaðir femínistar eru ekkert sammála því að ég sé góð fyrirmynd. Mér finnst ólíklegt að það muni gerast að ungir strákar velji sér einhverjar lopahúfur sem fyrirmyndir. Er eitthvað að því að ungir strákar velji sér fyrirmynd sem er reyklaus, dóplaus, í góðu formi og neiti að láta valta yfir sig?“

Hér er færsla Gillzeneggers í heild um Steinunni Valdísi og fleiri nafngreindar konur.

Færsla Gillzeneggers 

Fréttastofan leggur mikla áherslu á að eftirfarandi konur fái mök og það strax: (Ef Ásgeir Kolbeinsson treystir sér ekki í þetta verkefni þá hefur Fréttastofan náð samningum við eftirfarandi menn til að afgreiða „dömurnar“: Buka Wamukota Damnida Wanjala, Yao Vinza Yohanze Mohumbu og Jamal Johnson.) 

Drífa Snædal, framkvæmdastýra þingflokks vinstri grænna. Drífa Snædal fór mikinn í Kastljósinu á dögunum þar sem hún sat á móti Agli Helgasyni og reyndi að rífa kjaft. Aldrei hefur kvenmaður misst jafn mikið magn af saur í Kastljósinu áður. Drífa talaði í hringi og vissi ekki hvort það voru páskar eða jól. Fréttastofan hafði samband við Þórhall Gunnarsson ritstjóra Kastljóss og hafði hann þetta um málið að segja: „Ég vil helst ekki tjá mig um málið en ég get sagt að það er ennþá verið að reyna að þrífa stúdíóið og á mínum 35 ára ferli hef ég aldrei séð annað eins“. Fréttastofan hefur tilnefnt Ásgeir Kolbeinsson og Jamal Johnson í að tittlinga Drífu ASAP.

Kolbrún Halldórsdóttir, alþingismaður. Kolbrún hefur aldrei fengið stifan lim og því hefur Fréttastofan ákveðið að senda Ásgeir, Jamal, Buka og Yao alla í þetta verkefni. Kolbrún toppaði sjálfa sig í leiðindum þegar hún stakk upp á því að nýfædd börn yrðu ekki sett í blá eða bleik föt. Kolbrún er í fullri vinnu við að vera óþolandi og tala með rassgatinu og það er kominn tími til að þagga niður í henni endanlega og munu þessir herramenn sem Fréttastofan taldi upp áðan fylla hana eins og hátíðarkalkún. Það mun vonandi vera til þess að hún steingrjóthaldikjafti og fari að haga sér.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, alþingismaður. Steinunn er portkonan sem vildi breyta orðinu ráðherra í ráðfrú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Steinunni Valdísi dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verkefni að sér. Fréttastofan ákvað að gefa Ásgeiri Kolbeinssyni frí í þetta skiptið, en Fréttastofan vill ekki hafa það á samviskunni að Ásgeir finnist hangandi í ljósakrónu í vesturbænum.

Anna Margrét Björnsdóttir, blaðamaður. Fréttastofan verðlaunar að sjálfsögðu fólk sem gerir góða hluti og hún Anna Margrét Björnsdóttir er að gera mjög góða hluti og fær hún Blástursverðlaun Fréttastofunnar í ár. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttastofunnar hefur Anna bætt öll met í blæstri á samstarfsfélögum sínum og yfirmönnum á Fréttablaðinu. Heimildarmaður Fréttastofunnar vildi ekki koma undir nafni en hann hafði þetta að segja: „Ég hef aldrei séð annað eins, hún gengur um fyrirtækið eins og mennsk Nilfisk ryksuga. Hún er duglegri að ryksuga inni hjá yfirmönnunum en af og til verðum við strákarnir niðri lucky og hún „ryksugar“ okkur ef þú veist hvað ég á við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Grátt uppgjör blaðakonu við MeToo: „Blaðamenn eru ekki aktívistar“
MenningMetoo

Grátt upp­gjör blaða­konu við MeT­oo: „Blaða­menn eru ekki aktív­ist­ar“

Sænska blaða­kon­an Åsa Lind­er­borg hef­ur skrif­að bók þar sem hún ger­ir upp Met­oo-um­ræð­una í Sví­þjóð með gagn­rýn­um hætti. Lind­er­borg var í mót­sagna­kenndri stöðu í Met­oo-um­ræð­unni þar sem hún hef­ur bæði gagn­rýnt hana og líka ver­ið gagn­rýnd fyr­ir að hafa vald­ið sjálfs­morði leik­hús­stjór­ans Benny Fredrik­son með skrif­um sín­um um hann.

Mest lesið

Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál
1
FréttirForsetakosningar 2024

Sig­ríð­ur Hrund greiddi fyr­ir við­tal á NBC – Verð­ið trún­að­ar­mál

Sig­ríð­ur Hrund Pét­urs­dótt­ur for­setafram­bjóð­andi greiddi ásamt nokkr­um öðr­um kon­um fyr­ir birt­ingu við­tals við hana hjá banda­ríska fjöl­miðl­in­um NBC en verð­ið er trún­að­ar­mál. Hún seg­ist hafa vilj­að grípa tæki­fær­ið til þess að benda á það hve op­ið fram­boðs­ferl­ið er á Ís­landi og til þess að sýna að venju­leg kona gæti boð­ið sig fram til for­seta.
RÚV frestaði sýningu dagskrárliða til að forðast tap á síðasta ári
2
Greining

RÚV frest­aði sýn­ingu dag­skrárliða til að forð­ast tap á síð­asta ári

RÚV fékk 5,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og afl­aði 2,9 millj­arða króna tekna af sam­keppn­is­rekstri, sem er að­al­lega sala á aug­lýs­ing­um. Tekj­ur fyr­ir­tæk­is­ins hafa auk­ist mik­ið á síð­ustu ár­um, ann­ars veg­ar vegna þess að íbú­um lands­ins hef­ur fjölg­að og hins veg­ar vegna þess að aug­lýs­inga­tekj­ur hafa auk­ist.
Kaup Kviku á Ortus: Kjartan hagnaðist um nærri 200 milljónir sama ár
4
Fréttir

Kaup Kviku á Ort­us: Kjart­an hagn­að­ist um nærri 200 millj­ón­ir sama ár

Einn af þeim al­menn­ings­hluta­fé­lag­ið Kvika keypti hluta­bréf í breska veð­lána­fyr­ir­tæk­inu Ort­us af ár­ið 2022 var fé­lag í eigu fjár­fest­is­ins Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann og Ár­mann Þor­valds­son, þá­ver­andi að­stoð­ar­for­stjóri Kviku og nú­ver­andi for­stjóri, eru við­skipta­fé­lag­ar og áttu með­al ann­ars báð­ir hluta­bréf í Ort­us á sama tíma.
„Hætta á misferli“ – Alvarlegar athugasemdir KPMG við fjárreiður Blaðamannafélagsins
7
Fréttir

„Hætta á mis­ferli“ – Al­var­leg­ar at­huga­semd­ir KP­MG við fjár­reið­ur Blaða­manna­fé­lags­ins

Fyrr­ver­andi formað­ur og fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Ís­lands milli­færði end­ur­tek­ið á sig fyr­ir­fram­greidd laun sem hann end­ur­greiddi vaxta­laust allt að hálfu ári síð­ar, keypti tíu tölv­ur fyr­ir sig á níu ár­um og greiddi út styrki án sam­þykk­is stjórn­ar. KP­MG ger­ir at­huga­semd­ir við þetta í nýrri skýrslu sem unn­in var að beiðni stjórna BÍ. Hjálm­ar Jóns­son, sem sagt var upp hjá fé­lag­inu í árs­byrj­un, seg­ir þetta allt eiga sér eðli­leg­ar skýr­ing­ar.
Þöggunarmálsóknir gegn fjölmiðlum mæta andstöðu Evrópuráðs
10
Erlent

Þögg­un­ar­mál­s­ókn­ir gegn fjöl­miðl­um mæta and­stöðu Evr­ópu­ráðs

Ráð­herr­a­ráð Evr­ópu­ráðs hef­ur birt til­mæli til allra að­ild­ar­ríkja, þar með tal­ið Ís­lands, um að vinna eigi gegn SLAPP-mál­sókn­um, sem séu skað­leg­ar lýð­ræð­inu og al­manna­hag. Slík­um mál­sókn­um hef­ur ver­ið beitt gegn al­menn­ingi og fjöl­miðl­um til að þagga nið­ur eða refsa fyr­ir óþægi­lega um­fjöll­un. Tölu­vert er um SLAPP-mál­sókn­ir á Ís­landi, en ekk­ert ból­ar á inn­leið­ingu slíkra til­mæla af rík­is­stjórn, seg­ir Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir, þing­kona Pírata.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þetta er móðgun við okkur“
5
Fréttir

„Þetta er móðg­un við okk­ur“

Heim­ild­in ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ist­ann: Bjarni Bene­dikts­son hef­ur ekki minn stuðn­ing sem for­sæt­is­ráð­herra til þess ein­fald­lega að spyrja: hvers vegna? Svör­in voru marg­vís­leg en þau átta sem svör­uðu sím­an­um höfðu marg­vís­leg­ar ástæð­ur fyr­ir því en áttu það öll sam­eig­in­legt að treysta ekki Bjarna sök­um fer­ils hans sem stjórn­mála­manns og sér í lagi síð­ustu mán­uði þar sem hann hef­ur far­ið frá því að vera fjár­mála­ráð­herra yf­ir í það að vera ut­an­rík­is­ráð­herra og loks for­sæt­is­ráð­herra.
Sakar nýjan matvælaráðherra um lygar
7
Fréttir

Sak­ar nýj­an mat­væla­ráð­herra um lyg­ar

Ólaf­ur Stephen­sen, Fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­anda, seg­ir að ný­skip­að­ur mat­væla­ráð­herra hafi sagt ósátt þeg­ar hún sagði að all­ir um­sagnar­að­il­ar hafi ver­ið kall­að­ir á fund at­vinnu­vega­nefnd­ar til að ræða frum­varp til breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um. Ólaf­ur seg­ir að Fé­lag at­vinnu­rek­anda hafi ekki feng­ið boð á fund áð­ur en um­deild­ar breyt­ing­ar á lög­un­um voru sam­þykkt­ar.
„Verðmætin okkar felast líka í að nýta náttúruna“
8
FólkForsetakosningar 2024

„Verð­mæt­in okk­ar fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una“

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hafa sömu vök­ulu augu sem hún hef­ur haft sem orku­mála­stjóri og nýta þau, og rödd sína, með sterk­ari hætti í embætti for­seta. Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta en verð­mæt­in fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una. „Fyr­ir mér felst þetta í jafn­vægi og virð­ingu í sam­skipt­um, við þurf­um ekki að deila svona mik­ið.“
Jón Gnarr segir að ísraelskir landnemar í Palestínu þurfi að hypja sig
9
FréttirForsetakosningar 2024

Jón Gn­arr seg­ir að ísra­elsk­ir land­nem­ar í Palestínu þurfi að hypja sig

Jón Gn­arr lýs­ir yf­ir harðri and­stöðu við stríð­ið í Palestínu í ný­legu við­tali í hlað­varp­inu Vakt­inn. Hann vill taf­ar­laust vopna­hlé, póli­tíska end­ur­nýj­un í Ísra­el og að land­töku­byggð­ir Ísra­els í Palestínu verði lagð­ar nið­ur. „Það þarf bara að jafna þetta við jörðu og segja þessu liði að hypja sig.“

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
4
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu