Óvæntasta útspilið í myndun nýrrar ríkisstjórnar er ákvörðun Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra að skipa Guðmund Inga Guðbrandsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra náttúruverndarsamtakanna Landverndar, í umhverfisráðuneytið.
Guðmundur Ingi er menntaður líffræðingur og umhverfisfræðingur að mennt. Hann hefur stundað rannsóknir í vist- og umhverfisfræðum við Háskóla Íslands og við alþjóðamál og rannsóknir hjá Landgræðslu ríkisins.
Þá hefur hann kennt í nokkrum námskeiðum við Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólasetur Vestfjarða síðan 2006. Guðmundur Ingi hefur auk þess starfað sem landvörður.
Guðmundur Ingi er einn fárra utanþingsráðherra í íslenskum ríkisstjórnum á þessari öld. Áður gegndu Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir ráðherraembættum í vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, en Ólöf Nordal var einnig utan þings og svo Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir rökstyður ákvörðun sína meðal annars með þeim hætti að mikið álag verði á þingmönnum vegna aukinnar áherslu á hlutverk Alþingis, en einnig með því að Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir tóku þá afstöðu að greiða atkvæði gegn stjórnarsamstarfinu á flokksráðsfundi Vinstri grænna.
Svandís Svavarsdóttir verður heilbrigðisráðherra.
Ásmundur ráðherra
Þá vekur athygli að Ásmundur Einar Daðason hefur verið skipaður félagsmálaráðherra fyrir hönd Framsóknarflokkinn.
Sigurður Ingi Jóhannsson verður samgönguráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Willum Þór Þórsson verður formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Kynjahlutfall í ríkisstjórninni er körlum í hag, þeir eru sex en konurnar fimm.
Páll Magnússon aftur ósáttur
Hjá Sjálfstæðisflokki halda flestir ráðherrar sætum sínum. Sigríður Andersen verður áfram dómsmálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar- og ferðamálaráðherra, en Kristján Þór Júlíusson fer í sjávarútvegsráðuneytið. Þá verður Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, líkt og hann var fram til síðasta árs.
Svo virðist sem tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins séu afar ósáttir. Jón Gunnarsson, fráfarandi samgönguráðherra, yfirgaf þingflokksfund áður en honum lauk og fór út um bakdyr.
Páll Magnússon, fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, lýsir óánægju sinni á Facebook. „Í annað sinn á innan við ári hefur formaður Sjálfstæðisflokksins nú gengið framhjá Suðurkjördæmi þegar kemur að ráðherraskipan í ríkisstjórn sem flokkurinn á aðild að. Þetta gerist þrátt fyrir að kjördæmið sé annað höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins á landinu. Ég mótmælti því harðlega í samtali við formanninn í morgun að hlutur kjördæmisins skuli þannig vera fyrir borð borinn og tilkynnti honum að af þessari ástæðu gæti ég ekki stutt þann ráðherralista sem hann lagði fyrir þingflokkinn. Áréttað skal að ég greiddi atkvæði með stjórnarsáttmálanum og styð ríkisstjórnina.“
Athugasemdir