Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Segir formann fjárlaganefndar hafa beitt þrýstingi: Kæmi „mjög illa út persónulega fyrir mig“ að leggjast gegn tillögu ráðherra

Björn Þor­steins­son, fyrr­ver­andi rektor Land­bún­að­ar­há­skól­ans, seg­ist hafa feng­ið óþægi­legt sím­tal frá Har­aldi Bene­dikts­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­manni fjár­laga­nefnd­ar. Har­ald­ur seg­ist ekki hafa haft í nein­um hót­un­um.

Segir formann fjárlaganefndar hafa beitt þrýstingi: Kæmi „mjög illa út persónulega fyrir mig“ að leggjast gegn tillögu ráðherra

Björn Þorsteinsson, fyrrverandi rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, segir að Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður fjárlaganefndar, hafi hringt og varað sig við því að leggjast gegn tillögu ráðherra um val á settum rektor til eins árs þegar málið var til umfjöllunar í háskólaráði skólans.

Eins og DV greindi frá á dögunum vakti ráðningarferlið furðu innan skólans; kvartað var til umboðsmanns Alþingis vegna málsins og orðrómur uppi um pólitískt inngrip.

Stundin hafði samband við Björn Þorsteinsson, fyrrverandi rektor skólans sem var formaður háskólaráðs þegar dr. Sæmundur Sveinsson var settur tímabundið í stöðu rektors án þess að hafa undirgengist formlegt hæfnismat. 

„Haraldur hringdi í mig og mæltist eindregið til þess að ég legðist ekki gegn tillögu ráðherra í þessum efnum. Hann orðaði það sem svo, að ef ég setti mig upp á móti tillögunni þá gæti það komið „mjög illa út persónulega fyrir mig“,“ segir Björn í samtali við Stundina. 

Haraldur vísar þessu á bug en viðurkennir að hafa átt í samskiptum við Björn vegna málsins. „Ég kannast við að hafa átt samskipti við Björn í tengslum við val á rektor. Við ræddum saman um stöðuna sem var komin upp,“ segir Haraldur sem kannast þó ekki við að hafa þrýst á Björn með þeim hætti sem lýst hefur verið. 

Fulltrúi ráðherra vildi Sæmund

Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, setti dr. Sæ­mund Sveins­soní stöðu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands þann 1. október síðastliðinn. Eins og DV greindi frá í byrjun mánaðar hafði starfið áður verið auglýst og þrír umsækjendur verið metnir hæfir. Aðeins einn þeirra var talinn búa yfir nægri stjórnunarreynslu en hann reyndist ekki geta tekið við starfinu.

Sirrý Hallgrímsdóttir

Háskólaráð Landbúnaðarháskólans brást við þessu með því að útbúa lista í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið yfir hugsanleg rektorsefni. Var þá stefnt að því að fá einhvern sem væri ótengdur ýmsum ágreiningsmálum sem höfðu skekið skólann mánuðina og árin á undan. 

Að því er fram kemur í fundargerð háskólaráðs frá 7. september stakk fulltrúi ráðherra í háskólaráðinu, Sigríður Hallgrímsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Illuga Gunnarssonar, betur þekkt sem pistlahöfundurinn Sirrý – upp á því að Sæmundur Sveinsson fengi stöðuna. 

Haraldur hringdi í Björn

Björn segir í samtali við Stundina að fyrir fundinn hafi fulltrúi ráðherra nefnt Sæmund við sig. Björn hafi þá bent á að ef til stæði að fá innanhússmann til að gegna starfinu væri ef til vill heppilegast að leita til einhvers sem hefði stjórnunarreynslu. 

„Í kjölfar þessa hringdi Haraldur Benediktsson í mig og mæltist eindregið til þess að ég legðist ekki gegn tillögu ráðherra um settan rektor. Hann sagði að ef ég gerði það þá gæti það komið mjög illa út fyrir mig persónulega.“ 

Björn vill taka fram að Haraldur hafi oft verið sér hjálplegur og átt þátt í að tekist hafi að rétta fjárhag skólans af meðan hann var rektor. Honum hafi þó orðið verulega brugðið þegar Haraldur lét þessi orð falla.

„Ég átta mig ekki á því hvað hann meinti, hvað það væri sem gæti komið mér illa persónulega, og hafði ekki geð í mér að spyrja hann.“

Mál eiginkonu hans var til meðferðar

Eftir þetta ákvað Björn að halda sig til hlés á fundinum. Mál eiginkonu hans, Önnu Guðrúnar Þórhallsdóttur, prófessors við skólann, hefði verið til skoðunar í kjölfar tölvupósts sem hún sendi samstarfsmönnum sínum um vorið og var unnið að því á þessum tíma, í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, að finna ad hoc-rektor til að taka ákvörðun um viðbrögð við málinu í ljósi vanhæfis Björns. Að þessu leyti var Björn, fráfarandi rektor og prófessor við skólann, í óþægilegri stöðu. 

„Ég ákvað að hafa mig ekki í frammi á fundinum. Aðrir háskólaráðsmenn báru ekki fram neinar mótbárur, svo Sæmundur var kallaður í viðtal. Ég treysti því auðvitað að stjórnsýsla ráðuneytisins í máli Önnu yrði í lagi, að staðið yrði við það sem áður stóð til, að settur yrði ad hoc-rektor til að fjalla um málið.“

Eins og Stundin greindi frá í morgun tilkynnti Sæmundur Sveinsson Önnu Guðrúnu prófessor í síðustu viku að hann hefði í hyggju að segja henni upp störfum. Anna hafði ekki fengið áminningu og hefur gegnt prófessorsstöðu við skólann í 25 ár.

Ástæða uppsagnarinnar er tölvupóstur hennar til samstarfsmanna þar sem hún gagnrýndi hvernig staðið var að ráðstefnu um landgræðslu og loftslagsmál í Hörpu síðasta vor. Komst siðanefnd skólans að þeirri niðurstöðu að tiltekin ummæli í tölvupóstinum fælu í sér ómaklegar aðdróttanir og brot á siðareglum skólans. Sæmundur, sem nú er rektor, sat í undirbúningsnefnd fyrir ráðstefnuna sem Anna Guðrún gagnrýndi og kom að skipulagningu hennar. 

„Ég hélt að það væri samhljómur um að það yrði íþyngjandi og óheppilegt fyrir Sæmund að taka á máli Önnu Guðrúnar, meðal annars í ljósi aðkomu hans að undirbúningi ráðstefnunnar sem hún gagnrýndi,“ segir Björn sem ræddi við Kristján Þór Júlíusson ráðherra um málið þann 27. september. Hann segist hafa skilið Kristján sem svo að hann væri sammála sér og að áfram yrði unnið að því að fá ad hoc-rektor, sem stæði utan ágreiningsmálanna í skólanum, til að taka ákvörðun í málinu. Nú í síðustu viku tilkynnti hins vegar Sæmundur Sveinsson rektor um fyrirhugaða uppsögn Önnu Guðrúnar og veitti henni 14 daga frest til að neyta andmælaréttar síns. 

„Eftir á að hyggja, þegar ég velti fyrir mér orðum Haraldar, þá veit ég ekki hvað það er sem hefði getað komið mér „persónulega verr“ heldur en einmitt það sem nú hefur verið gert gagnvart eiginkonu minni.“

Kannast við samskipti en ekki þrýsting eða hótanir

Stundin hafði samband við Harald Benediktsson og spurði hvort hann kannaðist við að hafa beitt Björn þrýstingi þegar val á settum rektor var til umfjöllunar í háskólaráði Landbúnaðarháskólans.

„Nei, ég get ekki stundað neinar slíkar hótanir. Og hvers vegna ætti ég að gera það?“ sagði hann. Aðspurður hvort hann hefði átt í samskiptum við Björn vegna vals á rektor sagði hann: „Jú, ég kannast við að hafa átt samskipti við Björn í tengslum við val á rektor. Við ræddum saman um stöðuna sem var komin upp. Ég hef talað við hann og hann hefur leitað til mín. En ég hef enga þannig stöðu í þessu máli að geta farið að beita þrýstingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an þeir dæmdu Arn­fríð­ar­mál

Arn­fríð­ur Ein­ars­dótt­ir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveim­ur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku af­stöðu um hæfi henn­ar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og mál­ið var til með­ferð­ar. Hinir þrír sem vald­ir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig ná­ið með hæsta­rétt­ar­dómur­un­um með­an Hæstirétt­ur tók fyr­ir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál
1
FréttirForsetakosningar 2024

Sig­ríð­ur Hrund greiddi fyr­ir við­tal á NBC – Verð­ið trún­að­ar­mál

Sig­ríð­ur Hrund Pét­urs­dótt­ur for­setafram­bjóð­andi greiddi ásamt nokkr­um öðr­um kon­um fyr­ir birt­ingu við­tals við hana hjá banda­ríska fjöl­miðl­in­um NBC en verð­ið er trún­að­ar­mál. Hún seg­ist hafa vilj­að grípa tæki­fær­ið til þess að benda á það hve op­ið fram­boðs­ferl­ið er á Ís­landi og til þess að sýna að venju­leg kona gæti boð­ið sig fram til for­seta.
RÚV frestaði sýningu dagskrárliða til að forðast tap á síðasta ári
2
Greining

RÚV frest­aði sýn­ingu dag­skrárliða til að forð­ast tap á síð­asta ári

RÚV fékk 5,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og afl­aði 2,9 millj­arða króna tekna af sam­keppn­is­rekstri, sem er að­al­lega sala á aug­lýs­ing­um. Tekj­ur fyr­ir­tæk­is­ins hafa auk­ist mik­ið á síð­ustu ár­um, ann­ars veg­ar vegna þess að íbú­um lands­ins hef­ur fjölg­að og hins veg­ar vegna þess að aug­lýs­inga­tekj­ur hafa auk­ist.
Kaup Kviku á Ortus: Kjartan hagnaðist um nærri 200 milljónir sama ár
4
Fréttir

Kaup Kviku á Ort­us: Kjart­an hagn­að­ist um nærri 200 millj­ón­ir sama ár

Einn af þeim al­menn­ings­hluta­fé­lag­ið Kvika keypti hluta­bréf í breska veð­lána­fyr­ir­tæk­inu Ort­us af ár­ið 2022 var fé­lag í eigu fjár­fest­is­ins Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann og Ár­mann Þor­valds­son, þá­ver­andi að­stoð­ar­for­stjóri Kviku og nú­ver­andi for­stjóri, eru við­skipta­fé­lag­ar og áttu með­al ann­ars báð­ir hluta­bréf í Ort­us á sama tíma.
Þöggunarmálsóknir gegn fjölmiðlum mæta andstöðu Evrópuráðs
8
Erlent

Þögg­un­ar­mál­s­ókn­ir gegn fjöl­miðl­um mæta and­stöðu Evr­ópu­ráðs

Ráð­herr­a­ráð Evr­ópu­ráðs hef­ur birt til­mæli til allra að­ild­ar­ríkja, þar með tal­ið Ís­lands, um að vinna eigi gegn SLAPP-mál­sókn­um, sem séu skað­leg­ar lýð­ræð­inu og al­manna­hag. Slík­um mál­sókn­um hef­ur ver­ið beitt gegn al­menn­ingi og fjöl­miðl­um til að þagga nið­ur eða refsa fyr­ir óþægi­lega um­fjöll­un. Tölu­vert er um SLAPP-mál­sókn­ir á Ís­landi, en ekk­ert ból­ar á inn­leið­ingu slíkra til­mæla af rík­is­stjórn, seg­ir Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir, þing­kona Pírata.
„Hætta á misferli“ – Alvarlegar athugasemdir KPMG við fjárreiður Blaðamannafélagsins
9
Fréttir

„Hætta á mis­ferli“ – Al­var­leg­ar at­huga­semd­ir KP­MG við fjár­reið­ur Blaða­manna­fé­lags­ins

Fyrr­ver­andi formað­ur og fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Ís­lands milli­færði end­ur­tek­ið á sig fyr­ir­fram­greidd laun sem hann end­ur­greiddi vaxta­laust allt að hálfu ári síð­ar, keypti tíu tölv­ur fyr­ir sig á níu ár­um og greiddi út styrki án sam­þykk­is stjórn­ar. KP­MG ger­ir at­huga­semd­ir við þetta í nýrri skýrslu sem unn­in var að beiðni stjórna BÍ. Hjálm­ar Jóns­son, sem sagt var upp hjá fé­lag­inu í árs­byrj­un, seg­ir þetta allt eiga sér eðli­leg­ar skýr­ing­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þetta er móðgun við okkur“
5
Fréttir

„Þetta er móðg­un við okk­ur“

Heim­ild­in ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ist­ann: Bjarni Bene­dikts­son hef­ur ekki minn stuðn­ing sem for­sæt­is­ráð­herra til þess ein­fald­lega að spyrja: hvers vegna? Svör­in voru marg­vís­leg en þau átta sem svör­uðu sím­an­um höfðu marg­vís­leg­ar ástæð­ur fyr­ir því en áttu það öll sam­eig­in­legt að treysta ekki Bjarna sök­um fer­ils hans sem stjórn­mála­manns og sér í lagi síð­ustu mán­uði þar sem hann hef­ur far­ið frá því að vera fjár­mála­ráð­herra yf­ir í það að vera ut­an­rík­is­ráð­herra og loks for­sæt­is­ráð­herra.
Sakar nýjan matvælaráðherra um lygar
7
Fréttir

Sak­ar nýj­an mat­væla­ráð­herra um lyg­ar

Ólaf­ur Stephen­sen, Fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­anda, seg­ir að ný­skip­að­ur mat­væla­ráð­herra hafi sagt ósátt þeg­ar hún sagði að all­ir um­sagnar­að­il­ar hafi ver­ið kall­að­ir á fund at­vinnu­vega­nefnd­ar til að ræða frum­varp til breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um. Ólaf­ur seg­ir að Fé­lag at­vinnu­rek­anda hafi ekki feng­ið boð á fund áð­ur en um­deild­ar breyt­ing­ar á lög­un­um voru sam­þykkt­ar.
„Verðmætin okkar felast líka í að nýta náttúruna“
8
FólkForsetakosningar 2024

„Verð­mæt­in okk­ar fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una“

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hafa sömu vök­ulu augu sem hún hef­ur haft sem orku­mála­stjóri og nýta þau, og rödd sína, með sterk­ari hætti í embætti for­seta. Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta en verð­mæt­in fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una. „Fyr­ir mér felst þetta í jafn­vægi og virð­ingu í sam­skipt­um, við þurf­um ekki að deila svona mik­ið.“
Jón Gnarr segir að ísraelskir landnemar í Palestínu þurfi að hypja sig
10
FréttirForsetakosningar 2024

Jón Gn­arr seg­ir að ísra­elsk­ir land­nem­ar í Palestínu þurfi að hypja sig

Jón Gn­arr lýs­ir yf­ir harðri and­stöðu við stríð­ið í Palestínu í ný­legu við­tali í hlað­varp­inu Vakt­inn. Hann vill taf­ar­laust vopna­hlé, póli­tíska end­ur­nýj­un í Ísra­el og að land­töku­byggð­ir Ísra­els í Palestínu verði lagð­ar nið­ur. „Það þarf bara að jafna þetta við jörðu og segja þessu liði að hypja sig.“

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
4
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu