Sæll Páll. Þú segir í Vísi:
„Nú þekki ég Ásmund ágætlega og veit að [rasisti] er hann ekki.“
Hér held ég því miður að glöggskyggni fréttahauksins knáa bregðist þér.
Ekki skal ég efast um að Ásmundur Friðriksson sé það sem kallast „besti kall“ og sómi að honum á mörgum mannfagnaði.
En rasisti getur hann verið samt.
Rasistar eru ekki bara menn sem marsera um sköllóttir í nasistabúningum eða taka þig út undir vegg til að hvísla að sér brandara um hvað svart fólk sé illa gefið.
Rasistar eru einfaldlega þeir sem finnst að meðhöndla eigi „þeirra hóp“ (orðið „race“ er varla brúklegt lengur) á annan og já, betri hátt en aðra hópa sem eru á einhvern hátt „öðruvísi“.
Nú hefur Ásmundur Friðriksson margoft orðið uppvís að rangfærslum og beinum lygum um „hættuna“ sem stafar af innflytjendum og hælisleitendum og þeim mikla kostnaði sem af þeim hlýst.
Þessum rangfærslum er augljóslega beint gegn einum hópi, útlendingum frá ákveðnum heimshluta.
Ásmundur er yfirleitt tilþrifalítill þingmaður og hann fer ekki eins og landafjandi um fjárlagafrumvarpið til að reyna að finna allskonar leiðir til að efla hag gamla fólksins og örykja.
Nei, hann ber strax niður í þeim kafla sem fjallar um útgjöld til hælisleitenda og flóttamanna.
Útgjöld til fólks frá ákveðnum heimshluta.
Og hvað þýðir það?
Þú kannast við hið fornkveðna: Ef það lítur út eins og önd, syndir eins og önd og gargar eins og önd, þá er mjög líklegt að það sé önd.
Þannig er nú það og ertu nú alveg viss um að þú sért ekki í framboði með rasista?
Þú ættir að hugsa svolítið um það í stað þess að kvarta undan þeim sem blöskrar sú tilhugsun að Ásmundur Friðriksson sé frammámaður í stærsta stjórnmálaflokki landsins og kunni að verða bakdyr fyrir rasista inn í þann flokk.
Ekki er það ætlunin?
Athugasemdir