Lindarhvoll, einkahlutafélagið sem var sett á laggirnar til að halda utan um stöðugleikaeignir ríkissjóðs og koma þeim í verð, greiddi lögmannsstofunni Íslög ehf. 38,8 milljónir króna í fyrra.
Rekstur Lindarhvols hefur að mestu verið í höndum Steinars Þórs Guðgeirssonar hæstaréttarlögmanns og eiganda Íslaga, en stjórn Lindarhvols fól honum með samningi þann 28. apríl 2017 að veita ráðgjöf við daglegan rekstur þeirra eigna sem Lindarhvoli var falin umsýsla með.
Að því er fram kemur í greinargerð um starfsemi Lindarhvols frá því í fyrra var samið við Steinar með vísan til þess að hann hefði „séð um gerð stöðugleikasamninganna við öll þau átta slitabú sem inntu þau af hendi auk þess að hafa haft umsjón með móttöku og daglegum rekstri þessara eigna, fyrst í umboði Seðlabanka Íslands og svo í umboði ríkissjóðs“.
Samkvæmt ársreikningi Lindarhvols, sem barst ríkisskattstjóra fyrr í þessum mánuði, nam rekstrarkostnaður félagsins 56,6 milljónum í fyrra. Þar af runnu tæpar 39 milljónir til Íslaga ehf vegna aðkeyptrar þjónustu, þ.e. ráðgjafar Steinars Þórs. Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins, fjallaði fyrst um greiðslurnar til Steinars í dag.
Stjórnarmenn Lindarhvols eru þau Ása Ólafsdóttir, Haukur C. Benediktsson og Þórhallur Arason, stjórnarformaður Lindarhvols sem nýlega lét af störfum sem skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Fram kemur í ársreikningnum að stjórnarlaun á árinu 2016 hafi numið rúmum 12 milljónum og að launatengd gjöld hafi verið tæpar 2 milljónir.
Lindarhvoll ehf var sett á fót í ársbyrjun 2016 til að annast umsýslu, fullnustu og sölu þeirra eigna sem runnu ríkissjóði í skaut eftir að kröfuhafar fallinna viðskiptabanka og sparisjóða reiddu fram svonefnd stöðugleikaframlög. Málefni félagsins heyra undir fjármálaráðuneytið.
Eignirnar eru seldar í opnu söluferli en í ljósi þess að Lindarhvoll er einkaaðili lýtur félagið ekki stjórnsýslulögum ólíkt því sem venjulega tíðkast þegar höndlað er með eignir ríkissjóðs. Þannig tekur til dæmis eftirlitshlutverk umboðsmanns Alþingis ekki til starfsemi félagsins.
Athugasemdir