Vikum og mánuðum saman hefur almenningur í þessu landi klórað sér furðu lostinn í kollinum yfir hinni óskiljanlegu leynd sem hvílt hefur yfir málum barnaníðinganna sem fengu uppreist æru.
Dómsmálaráðherra dró lappirnar. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar dró lappirnar og gerði lítið úr glæpum hinn uppreistu. Aðrir Sjálfstæðismenn í sömu nefnd lögðu sig fram um að sjá ekki nöfn meðmælenda. Allt stjórnkerfið virtist leggjast á eitt.
Nú verður ekki dregin önnur ályktun en sú að þetta hafi allt verið gert í örvæntingarfullri tilraun til að koma í veg fyrir að það upplýstist að faðir forsætisráðherra hefði skrifað upp á fyrir annan barnaníðinginn.
Þetta er svo ógeðslegt að manni finnst maður verða skítugur bara af að leiða að þessu hugann.
Ömurleg afsökunarbeiðni Benedikts Sveinssonar, augljóslega samin af almannatengli (gera þeir hvað sem er fyrir peninga?), dugar ekki.
Það verður að snúa við hverjum steini, en eitt er augljóst.
Sjálfstæðisflokkurinn verður að fara úr ríkisstjórn nú þegar.
Athugasemdir