Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Einfaldara ef hann hefði farið í fangelsi

Þór­dís Elva Þor­valds­dótt­ir út­skýr­ir af hverju hún ákvað að mæta ger­anda sín­um og draga ekk­ert und­an þeg­ar hún greindi hon­um frá af­leið­ing­um gjörða hans.

Á þeim átta árum sem liðin eru frá því að Þórdís Elva Þorvaldsdóttir greindi fyrst frá því opinberlega að henni hefði verið nauðgað hefur umræðan um kynferðislegt ofbeldi gjörbreyst. Fjölmargir þolendur hafa stigið fram og skilað skömminni. Nú er hins vegar kominn tími til þess að færa fókusinn yfir á gerendurna, þá sem beita ofbeldinu. Með það að marki steig Þórdís Elva á svið með manninum sem nauðgaði henni og gaf út bókina Handan fyrirgefningar.

Hátt í þrjár milljónir manna hafa nú horft á Ted-fyrirlesturinn þar sem þau Tom Stranger segja frá leið þeirra í átt að frelsi frá ofbeldinu, sem hélt þeim báðum í fjötrum, löngu eftir að nauðgunin var framin. Í dag er Þórdís Elva á góðum stað í sínu bataferli og veit að sökin er ekki – og var aldrei – hennar. Bataferlinu verður þó aldrei lokið. „Ekki í þeim skilningi að ég geti látið eins og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár