Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Ekkert breytist hjá kátu fólki

„Af hverju er alltaf svona mik­ill drungi í bók­un­um þín­um?“ er spurn­ing sem Stein­ar Bragi hef­ur feng­ið eft­ir hvert ein­asta út­gefna verk. Hann hef­ur aldrei feng­ið spurn­ing­una oft­ar en nú, sem kem­ur hon­um i opna skjöldu. Sjálf­ur taldi hann sig nefni­lega hafa skrif­að gáska­fullt verk, fullt af lífs­gleði og húm­or.

„Hæ, er ekki best að henda viðtalinu? Ég var ekki þarna, rigning í of marga daga eða of mörg bókaflóð, ég er farinn að upplifa þau eins og einhver hafi gleymt að senda mig heim úr skólakerfinu og ég er fastur í munnlegum prófum en man ekki lengur fagið sem verið er að spyrja mig útúr. Ég ætla að skrifa færri bækur í framtíðinni og gefa þær ekki út.“

Þessi skilaboð sendi Steinar Bragi daginn eftir að við hittumst á kaffihúsi niðri við höfn. Þá var klukkan hálf þrjú en hún hefði alveg eins getað verið ellefu að morgni eða fimm um eftirmiðdag. Eins og marga daga á undan var dimmt yfir frá morgni til kvölds og rigning úti. Það var annað yfirbragð yfir Steinari Braga en síðast þegar við hittumst til að tala um bók eftir hann. Þá var hann sólbrúnn í nýjum skóm úr krókódílaleðri. Nýkominn heim úr Asíureisu, óvenju frísklegur og nýbúinn að gefa frá sér skáldsögu. Síðan eru liðin fimm ár, hann hefur farið í gegnum skilnað, ferðast um heiminn, gefið frá sér eina skáldsögu og kannski aðra undir nafninu Eva Magnúsdóttir, og nú nýlega smásagnasafnið Allt fer. Tryggir lesendur Steinars Braga kalla það eitt af hans allra bestu verkum og fyrir það er hann tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta. Í þetta sinn er hann líkari okkur hinum Reykvíkingunum í útliti og fasi, dálítið grár á litinn og geispandi. Honum fannst hann ekki hafa margt að segja en ég er ósammála, svo ég skrifa viðtalið í óþökk hans og vona að lesendur séu mér sammála.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu