Tilkynnt var um helgina að sveitarstjórnarkosningum verði seinkað í norðurhluta Kósóvó í þeim tilgangi að draga úr spennu sem myndast hefur á milli nágrannaríkjanna Kósóvó og Serbíu. Kosningarnar áttu að fara fram í lok desember en hefur verið frestað fram til 23. apríl 2023. Boðað var til kosninga í bæjunum Norður-Mitrovica, Zubin Potok, Zvecan og Leposavic eftir að bæjarstjórnarfulltrúar af serbnesku þjóðerni sögðu af sér í nóvember til þess að mótmæla banni við bílnúmeraplötum sem gefnar eru út í Serbíu.
Neita að nota Kósóvó-númer
Bannið hafði verið sett á af stjórnvöldum í Kósóvó. Um 50 þúsund íbúar í norðurhluta Kósóvó, sem eru að meirihluta af serbneskum uppruna, höfðu neitað að nota númeraplötur frá Kósóvó þar sem þau viðurkenna ekki sjálfstæði landsins og telja sig hluta af Serbíu. Langstærstur hluti íbúa Kósóvó eru af albönskum uppruna. Ákvörðunin um bílnúmeraplöturnar hafði valdið mikilli reiði í samfélagi Serba í Kósóvó og varð til …
Athugasemdir