Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðar lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í aðgerðum sem eru yfirstandandi í iðnaðarhverfi í Mosfellsbæ. Þetta staðfestir samskiptastjóri ríkislögreglustjóra.
Samkvæmt upplýsingum Stundarinnar beinast aðgerðir lögreglu að tilteknu iðnaðarbili í stóru húsi sem er á svæðinu og sagði sjónarvottur að verið væri að leita að einstaklingi. Það fékkst ekki staðfest hjá lögreglu en þaðan fengust engar upplýsingar um eðli eða tilgang aðgerðanna.
Aðgerðirnar hófust í Mosfellsbæ klukkan 13, samkvæmt upplýsingum Stundarinnar. Fækkað hefur í lögregluliði á svæðinu síðan þá en enn eru þar lögreglumenn að störfum.
Fyrr í dag greindi Fréttablaðið frá því að sérsveitin hefði handtekið mann við Holtasmára í Kópavogi.
Á sjötta tímanum barst tilkynng frá ríkislögreglustjóra þar sem fram kom að alls hafi fjórir verið handteknir í aðgerðum dagsins, sem hafi verið liður í rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi og vopnalagabrotum. Nánar má lesa um það hér.
Uppfært klukkan …
Athugasemdir (2)