Fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækið Sýn hefur gert samkomulag um sölu á stofnneti sínu til Ljósleiðarans. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar, þar sem bréf í Sýn ganga kaupum og sölum.
Kaupverðið sem samið var um er 3 milljarðar króna, og vænta stjórnendur Sýnar þess að hagnast um 2 milljarða króna á viðskiptunum. Kaupandinn, Ljósleiðarinn, er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Í raun eru það því sveitarfélög að kaupa stofnnet Sýnar.
Sýn ætlar að leigja þjónustu Ljósleiðarans til tíu ára.
Enn er málið þó ekki frágengið því enn á eftir að fara fram áreiðanleikakönnun og ganga frá fjármögnun kaupanna. Þá á Samkeppniseftirlitið líka eftir að leggja blessun sína yfir viðskiptin.
Skammt er síðan Sýn seldi óvirka innviði og í samskonar viðskiptum um sölu og endurleigu eigna fyrirtækisins. Samningur um kaupin var gerður 1. apríl á síðasta ári og samþykktur í nóvember síðastliðnum. Bandaríska sjóðsstýringafélagið Digital Bridge Group Inc. keypti þessa óvirku innviði og greiddi um sex milljarða króna fyrir.
Hagnaði þeirrar sölu hefur síðan verið ráðstafað til hluthafa Sýnar í gegnum kaup fyrirtækisins á eigin bréfum. Stjórn fyrirtækisins ákvað á síðasta ári að kaupa allt að 9,9 prósenta hlut í Sýn fyrir að hámarki 2 milljarða króna. Hluti hagnaðarins fór líka í að greiða niður tveggja milljarða króna skuld við Landsbankann.
Ekkert kemur fram í Kauphallartilkynningunni vegna sölu stofnnetsins hvernig hagnaðinum verði ráðstafað. Upplýsingar um það verða gefnar þegar endanlegir samningar liggja fyrir. Stefnt er að því að það verði fyrir 15. desember.
Best fyrir þessa oloígarka sem aldrei hafa difið hendi í kallt vatn og vita yfirleitt ekki kvað vinna er ,er að þeir borga aldrei reikniginn fyrir innviðina heldur láta ríkissjóð borga brúsann sen nú er half tómur .
Spítalinn er enn ekki orðinn fokheldur efir 50 ára bið eftir andvirði póst og síma .Vonandi að aldrei vrði selt fjöreggið okka ,ljósleiðarinn sem er lífæð okkar um stundir .
Siðblytndingjar svífast enskis ef um hagnað handa baara þeim er að ræða