Verðbólgan heldur enn áfram að hækka og mælist nú 8,8 prósent. Verðbólga á milli mánaða hækkar um 1,4 prósent, sem er mesta hækkun á milli mánaða í nokkurn tíma. Vísitala án húsnæðis hækkar um tæpt 1,1 prósent á milli mánaða en það er hækkun á bensín og olíum sem vegur þyngst í verðbólgumælingunni. Þær vörur hafa hækkað um 10,4 prósent á milli mánaða.
Húsnæðisþátturinn hefur verið snar liður í hækkun neysluverðsvísitölunnar, sem mælir verðbólgu, en nú eru hækkanir á öðru farin að þrýsta mjög á hana. Ef húsnæði er tekið út fyrir sviga er verðbólga síðustu 12 mánaða, það er hvað verð á vöru og þjónustu hefur hækkað miðað við sama tíma í fyrra, verið 6,5 prósent.
Verðbólgan hefur ekki hækkað jafn skarpt á milli mánaða síðan í febrúar 2013. Þá hefur verðbólga ekki mælst hærri frá því í október 2009, þegar hún mældist 9,7 prósent. Verðbólgu markmið Seðlabanka Íslands eru 2,5 prósent.
Athugasemdir