Nú er það ljóst að Framsóknarmaður mun gegna embætti borgarstjóra eftir eitt og hálft ár. Ég óska Einari Þorsteinssyni velfarnaðar í nýju starfi. Vonandi verð ég búin að venjast því að hinn geðþekki Einar sé ekki lengur fréttamaður á RÚV heldur embættismaður sem á að svara spurningum fjölmiðla. Þessi skyndilega breyting á hlutverki Einars ruglar mig í ríminu, kannski vegna þess að fjölmiðlar eiga að vera fjórða valdið, aðhald, rödd almennings, rödd okkar kjósenda. Ég hef reyndar aldrei kosið Framsókn, hvorki til Alþingis né í sveitarstjórnarkosningum, þótt ég eigi ættir að rekja til Skagafjarðar. Ef ég hefði nú gengið í Framsókn en ekki Alþýðuflokkinn í Hafnarfirði á unglingsaldri, væri ég ef til vill að taka sæti í bæjarstjórn í Mosfellsbæ eða að starfa í velferðarráðuneytinu.
Miðað við siglingu Framsóknarflokksins undanfarið þá hlaut að koma að því að Framsókn tæki borgarstjórastólinn, í fyrsta sinn í langri sögu Reykjavíkurborgar. Allt getur gerst …
Athugasemdir