Hvernig skyldi hafa verið fyrir ráðherrann Guðmund Inga Guðbrandsson að hlusta á útvarpsfréttirnar í hádeginu á miðvikudaginn var?
Kvöldið áður hafði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra mætt í Kastljós og fullyrt að ríkisstjórnin styddi öll harðlínustefnu sína í málefnum flóttamanna og hælisleitenda. Guðmundur Ingi var ekki sáttur við þá fullyrðingu. Hann hafði, sagði hann hverjum sem heyra vildi, mótmælt framgöngu Jóns á ríkisstjórnarfundi þá um morguninn.
Og því mætti Guðmundur Ingi í 10-fréttirnar í sjónvarpinu á þriðjudagskvöldið og mótmælti harðlega fullyrðingum Jóns.
„Nei, það er ekki rétt,“ sagði hann um orð Jóns um algjöra samstöðu í ríkisstjórninni, „og ég gerði mjög alvarlegar athugasemdir við þá vegferð sem ráðherrann er á [...] það voru raunar fleiri ráðherrar sem gerðu athugasemdir [...] í mínum huga er þetta bara rangt, það er bara þannig, þetta er rangt ...“
Og þegar Birta Björnsdóttir fréttamaður spurði hvort hann væri ánægður með störf dómsmálaráðherra í málinu, svaraði Guðmundur Ingi afdráttarlaust: „Nei, ég get ekki sagt að ég sé það, ég held að það sé alveg ljóst af mínum orðum.“
„Ýmis sjónarmið reifuð
En hvað gerðist svo í hádegisfréttunum daginn eftir? Þá var viðtal við forsætisráðherra um orð Guðmundar Inga. Og von að spurt væri því það er ekki á hverjum degi sem ráðherra sakar í rauninni annan ráðherra um blákalda lygi – en það var jú það sem gerðist.
Og forsætisráðherra sagði að vissulega hefði verið „heilmikil umræða“ í ríkisstjórninni og „ýmis sjónarmið reifuð“ en þegar Katrín var spurð sérstaklega um ágreining Jóns og Guðmundar Inga, þá svaraði hún aðeins:
„Ég veit ekki hvort það sé fordæmalaust að upplifun ráðherra sé ólík af ríkisstjórnarfundum og ráðherrafundum.“
Jahá. Nú er það vissulega beinlínis hlutverk forsætisráðherra að halda friðinn og því ekki að undra að Katrín reyni oft að fara bil beggja, en samt! Jón dómsmálaráðherra beinlínis lýgur því upp á Guðmund Inga að hann hafi samþykkt hina hörðu stefnu sína, og þegar Guðmundur Ingi reynir að bera það af sér, þá kallar forsætisráðherra það „ólíka upplifun“.
Hún getur ekki staðið með Guðmundi Inga opinberlega.
Hún getur ekki unnt honum þess að segja:
„Já, það er rétt, Guðmundur Ingi andmælti Jóni.“
Hún gat ekki komið því afdráttarlaust til skila að Guðmundur Ingi hefði ekki stutt Jón á ríkisstjórnarfundinum, umfram það að segja að „ýmis sjónarmið [hefðu verið] reifuð“.
Athugið að Guðmundur Ingi er ekki hvaða pólitíkus sem er. Hann fór ekki hina hefðbundnu flokkshestaleið inn á Alþingi og í ríkisstjórn. Hann var kallaður inn í ríkisstjórn sem fagmaður og hugsjónamaður í umhverfismálum en hafði ekki lært frá blautu barnsbeini að „éta skít“ í flokksstarfinu (orðalag Drífu Snædal, afsakaðu átján sinnum, Agnes biskup).
Að vilja ekki láta ljúga upp á sig
Það má því ætla að enn eimi frekar eftir því hjá honum en mörgum öðrum pólitíkus að vilja vera vandur að virðingu sinni.
Og vilja ekki láta ljúga upp á sig. Og vilja jafnvel fá stuðning frá sínum formanni við að reka lygina til föðurhúsanna.
En svona studdi formaður Vinstri grænna ráðherra sinn. Fer svona líka ljómandi „mildilega“ í það – til að styggja ekki vin sinn í Sjálfstæðisflokknum. Það er mikilvægast af öllu og til þess má öllu fórna.
Jahérna.
Nema — og því var laumað að mér í gær — að þetta sé allt saman aumlegt plott VG, þeirra Guðmundar Inga og Katrínar í sameiningu, til að sýna leifunum af grasrót flokksins að ráðherrar flokksins séu ekki sáttir, þótt þeir neyðist til að fara að vilja Sjálfstæðisflokksins til að stjórnin springi ekki!
Jahérna. Slíkt væri nú aldeilis til að „auka traust á stjórnmálunum“!
Nei, beint oní bankasöluhneykslið, þá er reiði fólks út af meðhöndlun ríkisstjórnarinnar á flóttamönnum og hælisleitendum eins og punkturinn yfir i-ið.
Og sýnir að þessi ríkisstjórn hefur gjörsamlega misst tengsl við aðra hópa samfélagsins en þröngan hóp miðaldra stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins.
Aumt er hlutskipti þeirra sem einu sinni höfðu hugsjónir og nenntu að að berjast fyrir þeim ?
Að vera svo skilduð af formanni VG í dag að vera í samskiptum við sjálfstæðisflokkinn og verja allir gjörðir flokksins ?
Það eina sem maður hefur fengið frá frambjóðendum VG er lýgi og óheilindi .