Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en ári.

Týndi árum á leigumarkaði

Guð­mund­ur Hrafn Arn­gríms­son, formað­ur Sam­taka leigj­enda, upp­lif­ir sig fast­an á leigu­mark­aði. Hann hef­ur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrj­aði að leigja eft­ir skiln­að en hef­ur ekki tek­ist það. Bar­átt­an, höfn­un­in og upp­lif­un sem hann lýs­ir sem áfalli seg­ir hann hafa haft mik­il og langvar­andi áhrif á and­lega heilsu hans og at­gervi. Hann seg­ir ár­in sem far­ið hafa í bar­átt­una ekki koma aft­ur og þess vegna séu þau í raun týnd.

Týndi árum á leigumarkaði

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, hefur verið á leigumarkaðnum í Reykjavík síðan 2015, eða í sjö ár samfleytt, og á þeim tíma búið í fjórum íbúðum. Hann freistaði þess í tvígang að komast inn á séreignamarkaðinn, flutti inn á foreldra sína og bjó á sófa á skrifstofu sinni til þess að safna fyrir útborgun í eitt skiptið, en tókst það ekki. „Staðan sem ég hef verið í hefur haft mjög mikil og langvarandi áhrif á andlega heilsu mína og atgervi,“ segir hann og útskýrir svo: „Þessi streita sem fylgir því að vera í þessari stöðu veldur kvíða og hefur ollið mér getuleysi til að ráðast á aðstæður mínar, vegna þess að í þessi skipti sem ég hef reynt að breyta veruleika mínum þá hefur það ekki tekist. Það er mjög íþyngjandi að finnast maður vera á stað sem maður vill alls ekki vera á og reyna af …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

Þú átt ekki að þurfa heppni
ViðtalNeyð á leigumarkaði

Þú átt ekki að þurfa heppni

Vil­borg Bjarka­dótt­ir, fyrr­ver­andi formað­ur Sam­taka leigj­enda á Ís­landi, seg­ir að þrátt fyr­ir að hún telji sig heppna með leigu­sala búi hún við þann veru­leika að leigu­samn­ing­ur henn­ar nær að­eins til eins árs í senn. Á hverju ári sé sá mögu­leiki fyr­ir hendi að heppn­in dugi henni ekki leng­ur og hún þurfi að finna nýj­an samastað fyr­ir sig og börn­in sín tvö.
Missti leiguíbúðina við brunann
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­íbúð­ina við brun­ann

Sögu Naz­ari dreym­ir um að eign­ast íbúð en er að eig­in sögn föst á óör­ugg­um leigu­mark­aði þar sem leigu­verð sé óbæri­lega hátt og lífs­gæði leigj­enda mun lak­ari en flestra íbúða­eig­enda, að­eins ungt fólk sem eigi efn­aða for­eldra geti keypt íbúð. Saga er nú í end­ur­hæf­ingu, með­al ann­ars vegna áfalls sem hún varð fyr­ir í sept­em­ber í fyrra en þá kvikn­aði í íbúð sem hún leigði.
Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráð­herra seg­ir leigu­mark­að­inn „óstöð­ug­an og óáreið­an­leg­an“

Nokkr­ir ráð­herr­ar og þing­menn segja leigu­mark­að­inn á Ís­landi óör­ugg­an. „Mis­kunn­ar­laus“ seg­ir einn. „Ónýt­ur“ seg­ir ann­ar. For­sæt­is­ráð­herra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglu­lega með­an hún var leigj­andi og mat­væla­ráð­herra seg­ir leigu­mark­að­inn óstöð­ug­an og óáreið­an­leg­an. Nokkr­ir keyptu íbúð til að tryggja ör­yggi fjöl­skyld­unn­ar.
Ástandið á leigumarkaði getur grafið undan geðheilsu leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ástand­ið á leigu­mark­aði get­ur graf­ið und­an geð­heilsu leigj­enda

El­ín Ebba Ásmunds­dótt­ir, sem hef­ur starf­að að geð­heil­brigðs­mál­um í fjöru­tíu ár, seg­ir að leigu­mark­að­ur­inn grafi und­an geð­heilsu fólks. Kvíði leigj­enda yf­ir því að ná ekki end­um sam­an og að þurfa jafn­vel að flytja gegn vilja sín­um sé mjög skað­leg­ur. Það sé um­hugs­un­ar­efni að sumt fólk græði á óför­um annarra og að yf­ir­völd leyfi það.
Kvartaði undan myglu og missti íbúðina
FréttirNeyð á leigumarkaði

Kvart­aði und­an myglu og missti íbúð­ina

Bryn­dís Ósk Odd­geirs­dótt­ir neyð­ist til að flytja með fjöl­skyldu sína úr íbúð sem hún hef­ur leigt frá því síð­ast­lið­ið haust. Hún seg­ir leigu­sal­ann hafa rift samn­ingi við þau í kjöl­far þess að hún kvart­aði und­an myglu í íbúð­inni. Hún tel­ur að lít­il við­brögð við fyr­ir­spurn­um henn­ar um leigu­íbúð­ir helg­ist af því að mað­ur­inn henn­ar er af er­lend­um upp­runa.
Stjórnvöld hafa hlúð að tekjuháum og millistétt á kostnað leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Stjórn­völd hafa hlúð að tekju­há­um og millistétt á kostn­að leigj­enda

Fólk á leigu­mark­aði er valda­laust gagn­vart leigu­sala varð­andi leigu­verð og hve lengi það fær að búa á sama stað. Ef ástand hús­næð­is er slæmt treg­ast leigj­end­ur oft við að kvarta af ótta við að missa hús­næð­ið. Þetta kem­ur fram í ný­legri rann­sókn þar sem rætt er við tæp­lega 30 leigj­end­ur. Höf­und­ar henn­ar segja stjórn­völd bera vissa ábyrgð á því að hóp­ur fólks sé fast­ur á leigu­mark­aði gegn vilja sín­um.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár