Konan sem er í viðtali hjá Eddu Falak í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur segist hafa átt margar vinkonur sem séu fastar í vændi og að karlmenn nýti sér neyð þeirra. Flestar þeirra séu mjög veikar, sérstaklega þær sem séu háðar ópíóðum því að þær þurfi skammtinn sinn daglega og stundum oft á dag til að forðast fráhvörf sem hún segir vera hræðilega erfið. Því grípi margar þeirra til alls kyns örþrifaráða til að „lifa daginn af“. Margar stundi vændi til að fjármagna neysluna. „Þetta rústar þeim og maður horfir uppá þær verða að engu,“ segir konan sem er nú á góðum batavegi eftir að hafa verið háð ópíóðum í nokkur ár. Á því tímabili segist hún hafa búið um tíma á götunni, í athvörfum fyrir heimilislaust fólk og flakkað á milli íbúða vina og kunningja í leit að skjóli.
Leiðirnar til að verða sér úti um efni oft skelfilegar
Hún segir …
Athugasemdir