Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Guðrún Helgadóttir látin: Hugsjónakona um jafnrétti og vellíðan allra barna

„Við full­orðna fólk­ið eig­um að kenna börn­um að horfa á blóm­in, fjöll­in, land­ið. Það gef­ur mikla ham­ingju að læra það. Öll feg­urð gef­ur manni ham­ingju“ sagði Guð­rún Helga­dótt­ir, rit­höf­und­ur og fyrr­ver­andi þing­mað­ur í við­tali í Stund­inni fyr­ir fjór­um ár­um. Guð­rún lést í nótt, 86 ára að aldri.

<span>Guðrún Helgadóttir látin: </span> Hugsjónakona um jafnrétti og vellíðan allra barna
Guðrún Helgadóttir sagði í Stundinni fyrir fjórum árum að það sem skipti öllu máli fyrir börn væri að þau fyndu að þau væru elskuð. ,,Það er að vera góð við þau. Ég kann enga uppeldisaðferð betri“

Guðrún Helgadóttir rithöfundur lést á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík í nótt. Guðrún var fædd­ í Hafnar­f­irði 7. sept­em­ber árið 1935 og var því 86 ára gömul. Guðrún starfaði í stjórnmálum, sat á Alþingi og í borgarstjórn. 

Hennar er minnst fyrir baráttu sína fyrir bættum mannréttindum. Þá var vellíðan barna henni alla tíð afar hugleikin og hún skrifaði fjölda barnabóka. 

Fyrsta bók Guðrúnar kom út árið 1974. Það var bókin um bræðurna Jón Odd og Jón Bjarna. Bækurnar um bræðurna urðu þrjár talsins. En auk þeirra skrifaði Guðrún meðal annars bækurnar Sitji guðs englar, Óvitar og bókina um Pál Vilhjálmsson sem síðar varð sjónvarpsstjarna á Íslandi.

Á vefsíðu Rithöfundasambands Íslands er Guðrúnar minnst í dag. Þar segir að hún hafi hlotið fjölda verðlauna fyrir skrif sín, allt frá því hún fékk barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir frumraun sína Jón Odd og Jón Bjarna 1975 þar til hún fékk Sögusteininn, heiðursverðlaun íslandsdeildar IBBY (The International Board on Books for Young People) árið 2018 en aðalmarkmið samtakanna er að stuðla að eflingu íslenskra barnabóka.  Í millitíðinni hafi Guðrún fengið Menningarverðlaun DV, bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana, bókaverðlaun barnanna, viðurkenningu rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins og Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bókina Undan illgresinu. Guðrún var gerð heiðursfélagi í Rithöfundasambandi Íslands árið 2002. Þá hlaut Guðrún stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1992.

„Fyrst af öllu verður barn að finna að það er elskað“
Guðrún Helgadóttir,
í samtali við Stundina árið 2018

Skömmu eftir að Guðrún fékk Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY árið 2018 ræddi Hólmfríður Helga Sigurðardóttir við hana fyrir Stundina. Þar sagði Guðrún frá því að hún hefði byrjað að skrifa barnabækur þar sem henni ofbauð það sem börnum hefði verið boðið upp á. Barnabækur hafi verið illa þýddar og myndskreyttar.  Síðan hafi orðið bylting sem rekja mætti til áttunda áratugarins þegar fleiri bókasafnsfræðingar og bókmenntafræðingar hafi komið til starfa. Nefnir Guðrún Silju Aðalsteinsdóttur sérstaklega í því sambandi, segir að Silja hafi vandað sig við að tala um barnabækur enda gert sér grein fyrir mikilvægi þeirra.

„Ég segi það stundum, þegar fólk er að býsnast yfir velgengni minni, að ég hafi verið eins og Bítlarnir, manneskja á réttum stað á réttum tíma. Ég var svo heppin að detta inn í þessa bylgju,“ sagði Guðrún í viðtalinu í Stundinni árið 2018 og bætti við að það gæti verið að henni hafi tekist að skrifa skemmtilegar bækur sem bæði fullorðnir og börn höfðu gaman af.

Á þessum tíma var Guðrún enn að skrifa, þó minna en áður að eigin sögn „Ég var svo óheppin að ég fór að verða svolítið lasin, hafandi verið heilsubelgur allt lífið. Það veldur því að ég hef gert minna af því,“ sagði hún en baðst undan því að ræða veikindi sín frekar „Við skulum ekki tala um heilsu, í guðs bænum,“ sagði Guðrún. 

Verið góð við börn 

Varðandi barnauppeldi sagðist Guðrún hafa eitt ráð til fólks og það hafi hún kennt sínum börnum og barnabörnum „Það er að vera góð við þau. Ég kann enga uppeldisaðferð betri. Það getur verið dálítill vandi á köflum en fyrst af öllu verður barn að finna að það er elskað. Það skiptir bara akkúrat öllu máli,“ sagði Guðrún og bætti við að ein leið til að vera góð við börn sé að lesa fyrir þau. „Ég er sannfærð um það að barn verði ekki hamingjusamara í annan tíma en þegar það situr á volgu læri mömmu og pabba, ömmu, afa eða systkina, hlustar á sögu og skoðar kannski í leiðinni myndirnar. Það eru virkilega sælustundir fyrir alla,“ sagði Guðrún. 

Þá sagðist hún vonast til þess að bækur hennar hafi og muni áfram hjálpa börnum við að opna augun og sjá lífið í kringum sig. „Við fullorðna fólkið eigum að kenna börnum að horfa á blómin, fjöllin, landið. Það gefur mikla hamingju að læra það. Öll fegurð gefur manni hamingju. Það þarf líka að opna huga þeirra fyrir umhverfinu, að kenna þeim til dæmis að hirða um hvernig félaganum líður. Þeir Jón Oddur og Jón Bjarni komust að því einhvers staðar í bókinni að það borgaði sig að vera góður. Ef börn eru opin fyrir lífinu, landinu, tungumálinu, þá held ég að þau verði afskaplega hamingjusöm.“

„Við fullorðna fólkið eigum að kenna börnum að horfa á blómin, fjöllin, landið“
Guðrún Helgadóttir,
í samtali við Stundina árið 2018

Þann 19. júní árið 2015 á 100 ára kosningaafmæli kvenna var nokkrum konum gefinn kostur á því í Stundinni að minnast kvenna sem hafa verið þeim fyrirmyndir og veitt þeim innblástur. Guðrún Helgadóttir var ein þeirra sem rætt var við. Hún fagnaði deginum og sagði hann minna okkur á kærkomin réttindi kvenna en sagði að baráttan fyrir jöfnum réttindum væri hvergi nærri lokið. „Við þurfum að halda áfram að vinna að sameiginlegum réttindum manna – kvenna sem og karla, og leiðrétta muninn á ríkum og fátækum. Það er mikið eftir ógert,“ sagði Guðrún Helgadóttir í Stundinni daginn sem 100 ár voru liðin frá því að konur fjörutíu ára og eldri  fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

RÚV frestaði sýningu dagskrárliða til að forðast tap á síðasta ári
1
Greining

RÚV frest­aði sýn­ingu dag­skrárliða til að forð­ast tap á síð­asta ári

RÚV fékk 5,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og afl­aði 2,9 millj­arða króna tekna af sam­keppn­is­rekstri, sem er að­al­lega sala á aug­lýs­ing­um. Tekj­ur fyr­ir­tæk­is­ins hafa auk­ist mik­ið á síð­ustu ár­um, ann­ars veg­ar vegna þess að íbú­um lands­ins hef­ur fjölg­að og hins veg­ar vegna þess að aug­lýs­inga­tekj­ur hafa auk­ist.
Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál
2
FréttirForsetakosningar 2024

Sig­ríð­ur Hrund greiddi fyr­ir við­tal á NBC – Verð­ið trún­að­ar­mál

Sig­ríð­ur Hrund Pét­urs­dótt­ur for­setafram­bjóð­andi greiddi ásamt nokkr­um öðr­um kon­um fyr­ir birt­ingu við­tals við hana hjá banda­ríska fjöl­miðl­in­um NBC en verð­ið er trún­að­ar­mál. Hún seg­ist hafa vilj­að grípa tæki­fær­ið til þess að benda á það hve op­ið fram­boðs­ferl­ið er á Ís­landi og til þess að sýna að venju­leg kona gæti boð­ið sig fram til for­seta.
Kaup Kviku á Ortus: Kjartan hagnaðist um nærri 200 milljónir sama ár
4
Fréttir

Kaup Kviku á Ort­us: Kjart­an hagn­að­ist um nærri 200 millj­ón­ir sama ár

Einn af þeim al­menn­ings­hluta­fé­lag­ið Kvika keypti hluta­bréf í breska veð­lána­fyr­ir­tæk­inu Ort­us af ár­ið 2022 var fé­lag í eigu fjár­fest­is­ins Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann og Ár­mann Þor­valds­son, þá­ver­andi að­stoð­ar­for­stjóri Kviku og nú­ver­andi for­stjóri, eru við­skipta­fé­lag­ar og áttu með­al ann­ars báð­ir hluta­bréf í Ort­us á sama tíma.
Þöggunarmálsóknir gegn fjölmiðlum mæta andstöðu Evrópuráðs
7
Erlent

Þögg­un­ar­mál­s­ókn­ir gegn fjöl­miðl­um mæta and­stöðu Evr­ópu­ráðs

Ráð­herr­a­ráð Evr­ópu­ráðs hef­ur birt til­mæli til allra að­ild­ar­ríkja, þar með tal­ið Ís­lands, um að vinna eigi gegn SLAPP-mál­sókn­um, sem séu skað­leg­ar lýð­ræð­inu og al­manna­hag. Slík­um mál­sókn­um hef­ur ver­ið beitt gegn al­menn­ingi og fjöl­miðl­um til að þagga nið­ur eða refsa fyr­ir óþægi­lega um­fjöll­un. Tölu­vert er um SLAPP-mál­sókn­ir á Ís­landi, en ekk­ert ból­ar á inn­leið­ingu slíkra til­mæla af rík­is­stjórn, seg­ir Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir, þing­kona Pírata.
„Hætta á misferli“ – Alvarlegar athugasemdir KPMG við fjárreiður Blaðamannafélagsins
9
Fréttir

„Hætta á mis­ferli“ – Al­var­leg­ar at­huga­semd­ir KP­MG við fjár­reið­ur Blaða­manna­fé­lags­ins

Fyrr­ver­andi formað­ur og fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Ís­lands milli­færði end­ur­tek­ið á sig fyr­ir­fram­greidd laun sem hann end­ur­greiddi vaxta­laust allt að hálfu ári síð­ar, keypti tíu tölv­ur fyr­ir sig á níu ár­um og greiddi út styrki án sam­þykk­is stjórn­ar. KP­MG ger­ir at­huga­semd­ir við þetta í nýrri skýrslu sem unn­in var að beiðni stjórna BÍ. Hjálm­ar Jóns­son, sem sagt var upp hjá fé­lag­inu í árs­byrj­un, seg­ir þetta allt eiga sér eðli­leg­ar skýr­ing­ar.
Hljómsveitarstjórar rabba saman: Daníel Bjarnason og Jakub Hruša
10
Viðtal

Hljóm­sveit­ar­stjór­ar rabba sam­an: Daní­el Bjarna­son og Jakub Hruša

Til er bók þar sem fræg­ir rit­höf­und­ar tala við aðra fræga rit­höf­unda um líf­ið og til­ver­una. Í til­efni komu sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­inn­ar í Bam­berg, sem er ein sú fremsta í Evr­ópu, lá beint við að fá tón­skáld­ið og hljóm­sveit­ar­stjór­ann Daní­el Bjarna­son til að ræða við Jakub Hruša, hinn þekkta hljóm­sveit­ar­stjóra henn­ar. Hér er sam­tal tveggja eld­klárra hljóm­sveit­ar­stjóra – um það sem hljóm­sveit­ar­stjór­ar ræða í góðu tómi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þetta er móðgun við okkur“
5
Fréttir

„Þetta er móðg­un við okk­ur“

Heim­ild­in ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ist­ann: Bjarni Bene­dikts­son hef­ur ekki minn stuðn­ing sem for­sæt­is­ráð­herra til þess ein­fald­lega að spyrja: hvers vegna? Svör­in voru marg­vís­leg en þau átta sem svör­uðu sím­an­um höfðu marg­vís­leg­ar ástæð­ur fyr­ir því en áttu það öll sam­eig­in­legt að treysta ekki Bjarna sök­um fer­ils hans sem stjórn­mála­manns og sér í lagi síð­ustu mán­uði þar sem hann hef­ur far­ið frá því að vera fjár­mála­ráð­herra yf­ir í það að vera ut­an­rík­is­ráð­herra og loks for­sæt­is­ráð­herra.
Sakar nýjan matvælaráðherra um lygar
7
Fréttir

Sak­ar nýj­an mat­væla­ráð­herra um lyg­ar

Ólaf­ur Stephen­sen, Fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­anda, seg­ir að ný­skip­að­ur mat­væla­ráð­herra hafi sagt ósátt þeg­ar hún sagði að all­ir um­sagnar­að­il­ar hafi ver­ið kall­að­ir á fund at­vinnu­vega­nefnd­ar til að ræða frum­varp til breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um. Ólaf­ur seg­ir að Fé­lag at­vinnu­rek­anda hafi ekki feng­ið boð á fund áð­ur en um­deild­ar breyt­ing­ar á lög­un­um voru sam­þykkt­ar.
„Verðmætin okkar felast líka í að nýta náttúruna“
8
FólkForsetakosningar 2024

„Verð­mæt­in okk­ar fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una“

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hafa sömu vök­ulu augu sem hún hef­ur haft sem orku­mála­stjóri og nýta þau, og rödd sína, með sterk­ari hætti í embætti for­seta. Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta en verð­mæt­in fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una. „Fyr­ir mér felst þetta í jafn­vægi og virð­ingu í sam­skipt­um, við þurf­um ekki að deila svona mik­ið.“
Jón Gnarr segir að ísraelskir landnemar í Palestínu þurfi að hypja sig
10
FréttirForsetakosningar 2024

Jón Gn­arr seg­ir að ísra­elsk­ir land­nem­ar í Palestínu þurfi að hypja sig

Jón Gn­arr lýs­ir yf­ir harðri and­stöðu við stríð­ið í Palestínu í ný­legu við­tali í hlað­varp­inu Vakt­inn. Hann vill taf­ar­laust vopna­hlé, póli­tíska end­ur­nýj­un í Ísra­el og að land­töku­byggð­ir Ísra­els í Palestínu verði lagð­ar nið­ur. „Það þarf bara að jafna þetta við jörðu og segja þessu liði að hypja sig.“

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
4
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu