Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Orkan klárast á endanum

Orku­þörf vegna orku­skipta í sam­göng­um gæti ver­ið allt að 15 terawatts­stund­ir. Það slag­ar hátt upp í alla orku sem fram­leidd er á Ís­landi í dag. Þó enn sé tals­vert af óbeisl­aðri orku í land­inu má áætla að við sé­um nú þeg­ar bú­in að virkja upp und­ir 45 pró­sent henn­ar.

Orkan klárast á endanum

Orkukostir sem undir eru í þriðja áfanga rammaáætlunar myndu samanlagt hafa uppsett afl upp á rétt rúmlega 4.000 megawött. Orkuframleiðsla allra virkjana sem geta verið í rekstri á Íslandi í dag hafa afl upp á 3.127, samkvæmt gögnum frá Orkustofnun. Það tekur þó til varaafls og fleiri þátta sem ekki eru í virkri notkun. Nær lagi er að tala um að uppsett afl virkjana sé um tæplega 3.000 megawött.

Miðað við þær forsendur hafa Íslendingar þegar virkjað um 40 prósent af þeirri orku sem raunhæft er að virkja í landinu, eins og staðan er í dag, án sérstaks tillits til umhverfisþátta. Þessar tölur byggja þó á fræðilegri getu virkjananna og kostanna til orkuframleiðslu en ekki því sem raunverulega kemur til með að fást á ári. 

Ekki takmarkalaus orka

Orkuframleiðsla undanfarin ár hefur verið á bilinu 19-20 terawattsstundir á ári. Þeir kostir sem eru undir í þriðja áfanga rammaáætlunar hafa áætlaða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár