Í tilkynningu sem Festi sendi Kauphöllinni rétt í þessu segir að stjórn fyrirtækisins telji að þörf sé að endurskoða starfsreglur stjórnar vegna þess hvernig tekið var á máli Þórðar Más Jóhannessonar, fyrrverandi stjórnarformanns fyrirtækisins, sem lét af störfum vegna ásakana um kynferðisbrot. Þá segir stjórnin að skilaboð frá samfélaginu séu skýr um að „fyrirtæki sem tengjast slíkum málum bregðist fyrr við og taki á málum með skýrari og ákveðnum hætti“. Þórður Már er einn fjögurra manna sem Vítalía Lazareva hefur sagt að hafi brotið á sér í sumarbústaðaferð í desember 2020.
Stjórnin segir að hún hafi litið málið alvarlegum augum frá því að vitneskja var um það innan hennar:
„Umrætt mál var litið mjög alvarlegum augum af stjórn Festi frá því hún heyrði af því fyrst og var það tekið til skoðunar á vettavangi hennar í samræmi við þau lög, samþykktir …
Athugasemdir (3)