Eftir að Landspítalinn komst að þeirri niðurstöðu að læknirinn Björn Logi Þórarinsson hefði áreitt konu sem þar starfaði, hafa tveir starfsmenn til viðbótar kvartað undan kynferðislegri áreitni af hans hálfu. Önnur konan var með gögn máli sínu til stuðnings, bæði myndir og skjáskot af skilaboðum.
Stundin fjallaði ítarlega um mál konu sem varð fyrir áreitni af hálfu Björns Loga. Konan var læknanemi þegar áreitnin hófst en atvikin áttu sér stað yfir nokkurra ára tímabil. Konan lagði fram formlega kvörtun til spítalans sem fór í ferli, og var ósátt við að Björn Logi var ekki sendur í leyfi á meðan málið var til skoðunar. Niðurstaðan var sú að um kynferðislega áreitni hefði verið að ræða en það varð hvorki til þess að hann fengi áminningu eða væri sendur í leyfi.
Það var ekki fyrr en fjölmiðlar hófu …
Athugasemdir