Um daginn heyrði ég viðtal í Ríkisútvarpinu við mann sem talaði máli efasemdarfólks um bólusetningar og aðrar ráðstafanir heilbrigðisyfirvalda gegn Covid-19. Ég var alveg sammála manninum um að mikilvægt væri að allar efasemdarraddir fengju að heyrast, en þegar hann fór að gefa í skyn að efasemdarraddirnar væru markvisst bældar niður af annarlegum hvötum yfirvalda, þá fór ég að efast.
Það sama kvöld heyrði ég þrjár af þessum efasemdarröddum spjalla saman í heita pottinum í sundlauginni, það voru tveir karlmenn svona kannski komnir undir fertugt og einn ögn eldri. Þeir fóru að tala um Covid og eldri maðurinn sagðist hafa fengið Covid í fyrra. Hann hefði orðið býsna lasinn en unnið bug á sjúkdómnum með því að taka nógu mikið af Panodil Rapid og svo hefði hann sofið þetta meira og minna úr sér og jafnað sig á nokkrum dögum.
Og þessi reynsla hefði sannfært hann um að heilbrigðisyfirvöld með allar sínar ráðstafanir væru á algjörum villgötum.
„Covid er bara flensa“
„Það besta sem hægt væri að gera,“ sagði hann, „væri að loka sóttvarnalækni og landlækni og heilbrigðisráðherra inni, og henda svo lyklinum. Og láta þetta ganga yfir af sjálfu sér. Því það deyr enginn úr Covid – nema í hæsta lagi þeir sem eru mjög aumir fyrir, það veit ég.“
Yngri karlarnir tveir samsinntu þessu. Ég heyrði að þeir voru allir þrír sammála um að heilbrigðisyfirvöld vissu annaðhvort ekkert í hausinn á sér, eða tækju vísvitandi þátt í samsæri heilbrigðisyfirvalda, stóru lyfjafyrirtækjanna og fjölmiðlanna um að bæla niður sannleikann um Covid.
Þann sannleika hvað bólusetningar gegn Covid eru í senn gagnslausar og hættulegar.
En þeir höfðu allir komist að sannleikanum, ýmist af eigin hyggjuviti eða með því að grandskoða ýmsar þær heimildir sem markvisst væru bældar niður af annarlegum hvötum.
Eldri maðurinn, hann hristi höfuðið.
„Já, Covid er bara hver önnur flensa. Þetta er líka spurning um athygli fjölmiðlanna. Þið munið náttúrlega ekki eftir Hong Kong inflúensunni frá 1968? Hún var alveg eins hættuleg og Covid núna, en þá voru allir fjölmiðlarnir uppteknir af því að fylgjast með Víetnam-stríðinu, stúdentaóeirðunum og þessu öllu, og þess vegna tók enginn eftir henni. Svo það dóu ansi margir en enginn veitti því athygli og svo gekk hún bara yfir. Eins og flensur gera.“
„Já, þetta snýst allt núna um athygli fjölmiðlanna,“ sagði annar yngri mannanna.
„Og þeir eru allir á snærum Pfizer,“ ítrekaði hinn.
„Og þess vegna er allt bælt niður sem ekki hentar Pfizer.“
Ivermectin
Og svo gerðist það sem næstum óhjákvæmilegt var, þeir fóru að tala um ivermectin. Það er japanskt ormalyf og lúsameðal sem reynst hefur prýðisgott til að vinna bug á ýmsum sníkjudýrum í mannslíkamnum, en ýmsir hafa sannfærst um að það vinni líka á Covid-19.
Vinir mínir í pottinum voru meðal þeirra.
„Nú er sjúkdómurinn kominn niður í núll í Japan,“ sagði einn þeirra, „eftir að þeir fóru að nota ivermectin. Bara oní ekki neitt. En það er ekki sagt frá því á CNN eða RÚV.“
Hinir tveir hristu höfuðið.
„Ekki við því að búast auðvitað!“
„Nei, þessir fjölmiðlar eru allir á snærum Pfizer.“
„Og þess vegna má ekki leita annarra lausna.“
„Já, Pfizer kostar þetta allt saman.“
„Það er sama upp á teningnum í einu héraði á Indlandi. Bara skömmu eftir að ivermectin var gefið öllum þar, þá er Covid nánast horfið þar.“
„Jájá, ég veit, en stórfyrirtækin vilja ekki að það fréttist. Og þess vegna er ekki sagt frá því á CNN og RÚV, onei.“
CNN þyrnir í augum
Nú er rétt að taka vandlega fram að ég er ekki að rekja þetta sem einhvers konar tilraun til að henda gaman að þessum ágætu mönnum. Þetta voru algjörlega óvitlausir menn og augljóslega engir kjánar. Og ég heyrði á samræðunum að þeir töldu sig mjög vel upplýsta og hefðu alveg sérstaklega leitað sér upplýsinga víðar en bara með því að horfa á CNN, sem virtist vera yngri mönnunum sérstakur þyrnir í augum.
Þegar ég fór að skipta mér af og andæfa nokkrum af skoðunum mannanna, þá ansaði einn þeirra umsvifalaust að ég horfði á CNN og þar með var ég afgreiddur.
Án þess að það skipti máli, þá horfi ég reyndar aldrei á CNN, en einhvern veginn hafði mér nú tekist að heyja mér ýmsan fróðleik um til dæmis ivermectin og vissi því það sem þessir ágætu menn vissu bersýnilega ekki, þrátt fyrir viðleitni sína til að afla sér fróðleiks utan hinna troðnu slóða CNN og RÚV.
Til dæmis þetta: Covid-sýkingum hefur vissulega fækkað mjög mikið í Japan síðustu vikur. Ástæðurnar eru ekki alveg á hreinu enn þá. Að parti til virðist veiran sjálf einfaldlega vera komin í blindgötu í þróun sinni, en ugglaust hefur það líka sitt að segja að Japanir eru ein af best bólusettu þjóðum heimsins.
Alla vega – ivermectin er alls ekki notað gegn Covid-19 í Japan.
Ástandið í Uttar Pradesh
Það er aðeins meiri fótur fyrir staðhæfingum mannsins um ástandið í Uttar Pradesh. Þar var ivermectin vissulega notað til skamms tíma, og þar hefur sýkingum líka fækkað mikið. Ýmsir telja reyndar að skráningu tilfella í Uttar Pradesh sé svo ábótavant að ekki sé víst að fækkun tilfella sé jafn mikil og ætla mætti, en engin rannsókn hefur altént náð að tengja saman fækkun tilfella og ivermectin.
Og þau ríki sem leyfðu notkun ivermectin gegn Covid-19 hafa sum nú þegar afturkallað það leyfi þar sem ekkert bendir til að lyfið skili árangri.
Hvað varðar Hong Kong inflúensuna, þá var hún vissulega mjög skæð og hefði getað drepið milljónir manna. En hún gekk ekki bara yfir án þess að nokkur tæki að ráði eftir því, eins og maðurinn í pottinum sagði, heldur var hún markvisst kveðin í kútinn með miklu átaki stóru lyfjarisanna í heiminum, og þar fór lyfjafyrirtækið Merck fremst í flokki með líffræðinginn Maurice Hilleman við stýrið.
Hvernig var Hong Kong inflúensan sigruð?
Merck er vel að merkja risafyrirtæki á svipuðum slóðum og Pfizer að stærð og veldi.
Og hvernig sigruðu Hilleman og félagar Hong Kong inflúensuna? Jú, það tókst með því að finna upp árangursríkt bóluefni á ótrúlegum hraða.
Bóluefni, ég ítreka það.
Og það hefði aldrei tekist svo fljótt nema af því hvað Merck var stöndugt og þrautreynt í sínum bransa.
Og í því sambandi er gaman að geta þess að undralyfið ivermectin, sem karlarnir virtust líta á sem einhvers konar andófsmeðal gegn ofurvaldi stóru lyfjarisanna, það var einmitt þróað af Merck um svipað leyti og Hilleman var í næsta herbergi að þróa bóluefnið gegn Hong Kong inflúensunni.
Ég hef raunar aldrei skilið af hverju efasemdarfólkið um bóluefni og aðrar ráðstafanir heilbrigðisyfirvalda talar af slíkri sannfæringu um að það „vilji ekki setja í líkama sinn“ alls konar óprófuð efni frá illskeyttum stórfyrirtækjum (bóluefnin) en tekur hins vegar með mestu ánægju alls konar óprófuð efni og lyf sem þess vegna eru líka framleidd af nánast sömu stórfyrirtækjum.
Hafa margir dáið úr bólusetningu?
Samræðurnar í pottinum voru vel að merkja vinsamlegar og yfirvegaðar, líka eftir að ég fór að sletta mér fram í. En ég skal að vísu viðurkenna að mér var nóg boðið þegar þremenningarnir fóru að fullyrða að „fjöldi manns“ hefði dáið eftir bólusetningu.
Þá fannst mér þetta hætt að vera skemmtilegt, því þetta er bara þvaður og vitleysa, en allir þrír trúðu þessu greinilega í einlægni.
„Auðvitað var það bælt niður.“
Ég bað þá að nefna dæmi, en þá vafðist þeim raunar tunga um tönn. Loks mundu þeir eftir því að hafa lesið á mbl.is að kona um sjötugt hefði dáið skömmu eftir bólusetningu.
„Því var alls ekki slegið föstu að sú kona hefði dáið af völdum bólusetningarinnar,“ sagði ég.
„Nei, og það sannar einmitt mitt mál,“ sagði einn þremenninganna. „Auðvitað var það bælt niður.“
Það er óneitanlega dálítið skekkt og einhliða umræða í fjölmiðlum. Hluti af skýringunni eru meginstraumsfjölmiðlar og veitur sem eru kostaðir eða í eigu auðmanna (og já eigenda lyfjafyrirtækja) sem vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Íslenskir fjölmiðlar fá sínar fréttir þaðan. Það er barnaskapur að neita því. Það er líka skrítin mantra að tala um allar bólusetningar fyrri tíma á sama tíma og verið er að ræða um covid-bólusetningar. Það eru alveg til dæmi í sögunni um bólusetningar sem höfðu verulega skaðleg áhrif. Mér sýnist sem þú hafir verið vel upp alinn af "samfélagsreglum Facebook" og fleiri samfélagsmiðla um falsfréttir og samsæriskenningar. Ég held að það sé ekki holl viðmið um sannleika í heiminum hvað þessir "sjálfstæðu sannprófunaraðilar standreynda" segja.
En þér er vitanlega velkomið að loka augunum fyrir opinberum gögnum og halda þig við strámenn þína í heita pottinum.
Þeir voru líka undir nokkuð ríkum takmörkunum og t.d. 1. október, þegar bylgjan var búin að minnka niður í nánast ekkert, máttu barir ekki afgreiða áfengi eftir kl 8 og þurftu að loka 9. Við höfum heyrt að hérna hafi það mikið til verið skemmtanalífið sem hefur gefið af sér mikið að smitum + öll óbólusettu börnin í kjölfarið á að skólarnir byrjuðu og auðvitað frekar nokkuð eðlilegt takmarkalítið líf.
Skoðið þetta hérna: https://www.worldometers.info/coronavirus/country/japan/
og svo getiði séð framsókn bólusetninga í heiminum hérna: https://ourworldindata.org/covid-vaccinations