Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, fyrr­ver­andi formað­ur Efl­ing­ar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, seg­ir að næsti vara­for­seti verði Hall­dóra Sveins­dótt­ir. Með skip­un Hall­dóru muni á ný hefjast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr hönd­um launa­fólks sjálfs“.

Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“
Segir Halldóru varðmann gömlu verkalýðshreyfingarinnar Sólveig Anna spáir því að með skipun Halldóru Sveinsdóttur sem varaforseta ASÍ verði hafin vinna af fullum krafti við að koma SALEK-samkomulaginu aftur á koppinn. Mynd: ASÍ

Nýr varaforseti Alþýðusambands Íslands verður kynntur í dag og segir Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, að það verði Halldóra Sveinsdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Bárunnar á Selfossi. Fullyrðir Sólveig Anna að með skipun Halldóru muni hafin vinna á fullum krafti við að endurvekja SALEK-samkomulagið.

„Halldóra er einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar, þeirrar sem leidd var af Gylfa Arnbjörnssyni og studd af þáverandi forystu Eflingar sem ég og B-listinn sigruðum í kosningum 2018,“ skrifar Sólveig Anna í færslu á Facebook-síðu sinni. Hún segir að stóri draumur þessara leiðtoga gömlu verkalýðshreyfingarinnar, eins og hún orðar það, hafi verið SALEK-samkomulagið sem hafi verið endnaleg fullkomnun þess verkefnis að taka alla lýðræðislega stjórnun kjaramála úr höndum launafólks sjálfs og setja það í hendur sérfræðinga. „Ágreiningi milli verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda yrði lokið í eitt skipti fyrir öll, sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga afnuminn og verkfallsvopnið aflagt.“

Unnið að SALEK-samkomulaginu

Í færslunni rekur Sólveig Anna að þrátt fyrir að miklar breytingar hafi orðið á forystu Eflingar og VR, með tilheyrandi breyttum áherslum og vinnubrögðum, þá sé staðreynd að verkefnum hinnar gömlu forystu verkalýðshreyfingarinnar hafi aldrei verið hætt og þá sérstaklega ekki SALEK-verkefninu. Áfram hafi verið unnið að því að koma því á koppinn inni á skrifstofum ASÍ og í ráðuneytum, af sérfræðingum og starfsfólki sem starfi án nokkurs lýðræðislegs umboðs frá félagsfólki verkalýðshreyfingarinnar.

„Gagnrýni Eflingar á Grænbókarvinnuna sem náði að stöðva verkefnið í bili, vakti mikla úlfúð í verkalýðshreyfingunni“

„Ríkisstjórnin sá þannig ekkert athyglisvert við það að reyna að smygla endurvakningu SALEK-samkomulagsins, undir nafninu „Grænbók“, inn í yfirlýsingu sína vegna Lífskjarasamninganna árið 2019,“ skrifar Sólveig Anna og segir það hafa verið gert með samþykki ASÍ, undir forystu Hennýar Hinz, hagfræðings sambandsins. Henný hafi síðar farið til starfa í forsætisráðuneytinu við framhald sama verkefnis. Aldrei hafi verið rætt við Sólveigu Önnu sjálfa eða samninganefnd Eflingar um málið. Ef ekki hefði verið fyrir hávær mótmæli Eflingarfélaga síðasta vetur hefði tekist að endurvekja SALEK-samkomulagið.

Andstaðan vakti úlfúð

„Það hefur ekki farið hátt, en gagnrýni Eflingar á Grænbókarvinnuna sem náði að stöðva verkefnið í bili, vakti mikla úlfúð í verkalýðshreyfingunni, sérstaklega frá varðmönnum gömlu hreyfingarinnar. Þeir voru mjög reiðir yfir því að þessi vinna hafi ekki fengið að rúlla áfram. Fremst í flokki þessara varðmanna var Halldóra Sveinsdóttir,“ skrifar Sólveig Anna enn fremur. Greinir hún frá því að Halldóta hafi efnt til leynifundar í febrúar síðastliðnum þar sem fimmtán formönnum aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hafi verið boðið og umræðuefnið hafi verið hvernig hægt væri að styðja við áframhaldandi vinnu við Grænbókina, án þess að taka þyrfti tillit til sjónarmiða þeirra sem andvígir væru henni innan Starfsgreinasambandsins. Sólveigu Önnu hafi ekki verið boðið á þann fund, þrátt fyrir að hafa á þeim tíma verið varaformaður Starfsgreinasambandsins.

Sólveig Anna segir þá að eftir að Halldóra muni verða skipuð varaforseti ASÍ muni hún „að sjálfsögðu“ hefja vinnu af fullum krafti við að endurvekja SALEK-samkomulagið. „Ef sú vinna verður einhvern tíma kynnt fyrir félagsfólki í hreyfingunni þá spái ég því að það verði á formi glærukynningar frá sérfræðingi, en Halldóra víðs fjarri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Afsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lögfræðing ASÍ lýsa stuðningi við mann sem hafi hótað henni
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sól­veig Anna seg­ir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hót­að henni

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, fyrr­ver­andi formað­ur Efl­ing­ar, gagn­rýn­ir Magnús M. Norð­dahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyr­ir at­huga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Marteins­syni, sem vik­ið var úr starfi kjara­full­trúa Efl­ing­ar í gær. Um­rædd­ur Tryggvi er að sögn Sól­veig­ar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana of­beldi.

Mest lesið

RÚV frestaði sýningu dagskrárliða til að forðast tap á síðasta ári
2
Greining

RÚV frest­aði sýn­ingu dag­skrárliða til að forð­ast tap á síð­asta ári

RÚV fékk 5,7 millj­arða króna úr rík­is­sjóði í fyrra og afl­aði 2,9 millj­arða króna tekna af sam­keppn­is­rekstri, sem er að­al­lega sala á aug­lýs­ing­um. Tekj­ur fyr­ir­tæk­is­ins hafa auk­ist mik­ið á síð­ustu ár­um, ann­ars veg­ar vegna þess að íbú­um lands­ins hef­ur fjölg­að og hins veg­ar vegna þess að aug­lýs­inga­tekj­ur hafa auk­ist.
Sigríður Hrund greiddi fyrir viðtal á NBC – Verðið trúnaðarmál
3
FréttirForsetakosningar 2024

Sig­ríð­ur Hrund greiddi fyr­ir við­tal á NBC – Verð­ið trún­að­ar­mál

Sig­ríð­ur Hrund Pét­urs­dótt­ur for­setafram­bjóð­andi greiddi ásamt nokkr­um öðr­um kon­um fyr­ir birt­ingu við­tals við hana hjá banda­ríska fjöl­miðl­in­um NBC en verð­ið er trún­að­ar­mál. Hún seg­ist hafa vilj­að grípa tæki­fær­ið til þess að benda á það hve op­ið fram­boðs­ferl­ið er á Ís­landi og til þess að sýna að venju­leg kona gæti boð­ið sig fram til for­seta.
Niðurstaðan hefði getað verið dramatískari
5
Fréttir

Nið­ur­stað­an hefði getað ver­ið drama­tísk­ari

Í nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu um brot ís­lenska rík­is­ins í Al­þing­is­kosn­ing­un­um ár­ið 2021 er ekki kveð­ið skýrt á um að breyta þurfi stjórn­ar­skránni en regl­ur þurfi að setja um það hvernig Al­þingi tek­ur á mál­um eins og því sem kom upp eft­ir end­urtaln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Lektor í lög­fræði seg­ir að nið­ur­stað­an hefði getað orð­ið drama­tísk­ari hvað stjórn­ar­skrána varð­ar.
Þöggunarmálsóknir gegn fjölmiðlum mæta andstöðu Evrópuráðs
8
Erlent

Þögg­un­ar­mál­s­ókn­ir gegn fjöl­miðl­um mæta and­stöðu Evr­ópu­ráðs

Ráð­herr­a­ráð Evr­ópu­ráðs hef­ur birt til­mæli til allra að­ild­ar­ríkja, þar með tal­ið Ís­lands, um að vinna eigi gegn SLAPP-mál­sókn­um, sem séu skað­leg­ar lýð­ræð­inu og al­manna­hag. Slík­um mál­sókn­um hef­ur ver­ið beitt gegn al­menn­ingi og fjöl­miðl­um til að þagga nið­ur eða refsa fyr­ir óþægi­lega um­fjöll­un. Tölu­vert er um SLAPP-mál­sókn­ir á Ís­landi, en ekk­ert ból­ar á inn­leið­ingu slíkra til­mæla af rík­is­stjórn, seg­ir Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir, þing­kona Pírata.
Skrifstofa Alþingis mun framkvæma greiningu á niðurstöðu dómsins
9
Fréttir

Skrif­stofa Al­þing­is mun fram­kvæma grein­ingu á nið­ur­stöðu dóms­ins

Skrif­stofa Al­þing­is mun fram­kvæma grein­ingu á úr­skurði Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu. Nið­ur­staða dóms­ins var að ís­lenska rík­ið hef­ið brot­ið mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu í al­þing­is­kosn­ing­un­um 2021. „Við hljót­um að þurfa að líta í eig­in barm og velta því fyr­ir okk­ur hvernig það hefði ver­ið hægt að koma í veg fyr­ir þau brot sem voru fram­in,“ seg­ir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­mað­ur Pírata.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Undirskriftir gegn Bjarna orðnar fleiri en greidd atkvæði Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgarsvæðinu
3
Fréttir

Und­ir­skrift­ir gegn Bjarna orðn­ar fleiri en greidd at­kvæði Sjálf­stæð­is­flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Á ein­ung­is tveim­ur dög­um hafa um 34 þús­und ein­stak­ling­ar skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ista þar sem lýst er yf­ir stuðn­ings­leysi við Bjarna Bene­dikts­son í embætti for­sæt­is­ráð­herra. Fjöldi und­ir­skrifta vex hratt og eru þær nú orðn­ar fleiri en þau at­kvæði sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk greidd á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í síð­ustu Al­þing­is­kosn­ing­um.
„Þetta er móðgun við okkur“
6
Fréttir

„Þetta er móðg­un við okk­ur“

Heim­ild­in ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrif­að und­ir und­ir­skriftal­ist­ann: Bjarni Bene­dikts­son hef­ur ekki minn stuðn­ing sem for­sæt­is­ráð­herra til þess ein­fald­lega að spyrja: hvers vegna? Svör­in voru marg­vís­leg en þau átta sem svör­uðu sím­an­um höfðu marg­vís­leg­ar ástæð­ur fyr­ir því en áttu það öll sam­eig­in­legt að treysta ekki Bjarna sök­um fer­ils hans sem stjórn­mála­manns og sér í lagi síð­ustu mán­uði þar sem hann hef­ur far­ið frá því að vera fjár­mála­ráð­herra yf­ir í það að vera ut­an­rík­is­ráð­herra og loks for­sæt­is­ráð­herra.
Sakar nýjan matvælaráðherra um lygar
8
Fréttir

Sak­ar nýj­an mat­væla­ráð­herra um lyg­ar

Ólaf­ur Stephen­sen, Fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­anda, seg­ir að ný­skip­að­ur mat­væla­ráð­herra hafi sagt ósátt þeg­ar hún sagði að all­ir um­sagnar­að­il­ar hafi ver­ið kall­að­ir á fund at­vinnu­vega­nefnd­ar til að ræða frum­varp til breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um. Ólaf­ur seg­ir að Fé­lag at­vinnu­rek­anda hafi ekki feng­ið boð á fund áð­ur en um­deild­ar breyt­ing­ar á lög­un­um voru sam­þykkt­ar.
„Verðmætin okkar felast líka í að nýta náttúruna“
9
FólkForsetakosningar 2024

„Verð­mæt­in okk­ar fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una“

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hafa sömu vök­ulu augu sem hún hef­ur haft sem orku­mála­stjóri og nýta þau, og rödd sína, með sterk­ari hætti í embætti for­seta. Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta en verð­mæt­in fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una. „Fyr­ir mér felst þetta í jafn­vægi og virð­ingu í sam­skipt­um, við þurf­um ekki að deila svona mik­ið.“

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
4
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu