Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Magnús flutti félag úr skattaskjólinu Panama til Lúxemborgar

Fjár­fest­ir­inn Magnús Ár­mann, sem var einn um­svifa­mesti ís­lenski at­hafna­mað­ur­inn í Pana­maskjöl­un­um, flutti eign­ar­halds­fé­lag sitt úr skatta­skjól­inu Panama til Lúx­em­borg­ar ár­ið 2016. Hann breytti um nafn á fé­lag­inu.

Magnús flutti félag úr skattaskjólinu Panama til Lúxemborgar

Fjárfestirinn Magnús Ármann, sem í dag er einn af helstu eigendum fjárfestingarfélagsins Stoða, flutti eignarhaldsfélag sitt í skattaskjólinu Panama til Lúxemborgar árið 2016. Félag Magnúsar í Panama, Mexborough Holdings S.A., hafði þá breytt um nafn og orðið Clover Capital S.A. Þetta kemur fram í Pandóruskjölunum svokölluðu. 

Flutningurinn á félaginu átti sér stað eftir að greint hafði verið frá stórfelldum viðskiptum Magnúsar og viðskiptafélaga hans, Sigurðar Bollasonar, í skattaskjólum í Panamaskjölunum svokölluðu um sumarið 2016. Viðskipti Magnúsar og Sigurðar voru það umfangsmikil að einungis feðgarnir Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson voru tengdir fleiri félögum í Panamaskjölunum. Um var að ræða 23 félög í skattaskjólum og aflandssvæðum í tilfelli þeirra Sigurðar og Magnúsar. 

Magnús var umsvifamikill fjárfestir á Íslandi á árunum fyrir hrunið og keypti hlutabréf í fjármálafyrirtækjum eins og Byr og Landsbankanum. Þekktastur er hann líklega fyrir að hafa keypt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Pandóruskjölin

Aflandshýsing í aflandsfélagi hýsir klám og nýnasistaáróður á Íslandi
AfhjúpunPandóruskjölin

Af­l­ands­hýs­ing í af­l­ands­fé­lagi hýs­ir klám og nýnas­ista­áróð­ur á Ís­landi

Ís­lend­ing­ur bú­sett­ur í Taílandi er pott­ur­inn og pann­an í rekstri um­deilds vef­hýs­ing­ar­fyr­ir­tæk­is sem ger­ir út á tján­ing­ar­frels­isákvæði ís­lenskra laga. Klám, nýnas­ista­áróð­ur og nafn­laust níð er hýst á veg­um fyr­ir­tæk­is­ins. „Ég hef ekk­ert að fela,“ seg­ir mað­ur­inn, sem er einn þeirra sem af­hjúp­að­ir eru í Pan­dóru­skjöl­un­um.
Jón segir að verið sé að færa eignarhaldsfélag fjölskyldunnar frá Tortóla til Hong Kong
FréttirPandóruskjölin

Jón seg­ir að ver­ið sé að færa eign­ar­halds­fé­lag fjöl­skyld­unn­ar frá Tor­tóla til Hong Kong

Jón Ólafs­son, fjár­fest­ir og stofn­andi vatns­verk­smiðj­unn­ar Icelandic Glacial í Ölfusi, seg­ir að brátt muni hann og fjöl­skylda ekki eiga fé­lag á Tor­tóla. Hann seg­ir að hann hafi hætt að nota Tor­tóla­fé­lög eft­ir að hann lenti í skatta­máli við ís­lenska skatt­inn sem var vís­að frá á end­an­um.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu