Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Fjölmiðill Sósíalista „aldrei annað en áróðurstæki“

Sósí­al­ista­for­ing­inn Gunn­ar Smári hef­ur sent út ákall til fólks um að styðja við upp­bygg­ingu „rót­tækr­ar fjöl­miðl­un­ar“ með fjár­magni og vinnu. Slík­ur mið­ill gæti aldrei flokk­ast til þess sem kall­ast fjöl­miðl­ar í hefð­bundn­um skiln­ingi þess orðs að mati for­manns Blaða­manna­fé­lags Ís­lands.

Miðill fjármagnaður og rekinn af stjórnmálaflokki, líkt og Sósíalistaflokkur Íslands boðar, getur aldrei orðið fjölmiðill í hefðbundnum skilningi þess orðs. Þetta segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands. „Þetta gæti aldrei orðið annað en áróðurstæki fyrir þær skoðanir sem þarna ríkja.“

Í aðdraganda alþingiskosninga boðaði Sósíalistaflokkurinn að styrkir sem ríkið veitir stjórnmálaflokkum yrðu nýttir til að efla hagsmunabaráttu og byggja upp fjölmiðil í samstarfi við Alþýðufélagið, Samstöðina. 

Þessar fyrirætlanir voru áréttaðar strax að kosningum loknum með grein sem birtist á Vísi þann 28. september, þremur dögum eftir kosningar. Þar auglýsti Gunnar Smári Egilsson eftir fólki til starfa á Samstöðinni, en hann er einn helsti hugmyndafræðingur Sósíalistaflokksins, formaður framkvæmdastjórnar og oddviti í Reykjavíkurkjördæmi norður, kynntur sem „atvinnulaus blaðamaður“. Nú stendur hins vegar til að nýta 120 milljónir sem renna frá ríkinu til Sósíalistaflokksins í gegnum styrki til stjórnmálaflokka til að byggja upp „róttækan fjölmiðil“, með það að markmiði að byggja upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu