Ég er ein af þeim heppnu. Ég á íbúð.
Lengi vel hélt ég að mér myndist aldrei nokkurn tímann takast að verða svona heppin. Ég ólst upp í félagsíbúð í Kópavogi en átti samt mitt eigið herbergi eftir að stóra systir mín flutti út. Þar áður var herbergið mitt í efri kojunni í herberginu sem ég og tvíburasystir mín deildum.
Nú búum við systurnar hvor sínum megin við ganginn í verkamannablokk við Hringbraut. Við vorum báðar svo heppnar að eignast íbúð. Ég var reyndar heppin að eignast kærasta og svo varð ég enn heppnari að hann barnaði mig en fjölskyldan hans ásamt pabba mínum, sem hafði þá fengið smávegis arf frá ömmu og afa, hjálpuðu okkur töluvert við kaupin á íbúðinni sem við köllum Flókalund í höfuðið á syni okkar. Það er fyrst og fremst hans vegna sem við eigum þessa íbúð, til að gefa honum eitthvert öryggi en við höfðum bæði verið lengi á hörmulegum leigumarkaði.
„Fyrir þann pening gæti hann keypt íbúðina mína ellefu sinnum“
Íbúðin kostaði um 36 milljónir, við gátum borgað sex í útborgun og skuldum því bankanum tæpar 30 milljónir, en við höfum einbeitt okkur að því að leggja það sem við eigum afgangs inn á höfuðstólinn. Stundum eigum við tuttugu þúsund krónur afgangs, einn mánuðinn náðum við að leggja hundrað þúsund krónur inn á höfuðstólinn. Við erum ábyrg, við erum heppin.
Ellefu sinnum Flókalundur
Dagbjartur Pálsson, framkvæmdastjóri DK hugbúnaðar ehf., var með 406.830.090 krónur í heildarárstekjur fyrir árið 2020. Hann trónir efst á lista yfir þá sem greiddu hæstu skatta í Hafnarfirði á síðasta ári, hann er skattakóngur. Fyrir þann pening gæti hann keypt íbúðina mína ellefu sinnum. Dagbjartur græddi um 380 milljónir í fjármagnstekjur á árinu 2020, sem sagt tekjur af fjármagninu sem hann á. Hann fékk rétt tæpar 2 milljónir í laun á mánuði sem gera 24 milljónir á ári sem fara langleiðina upp í að greiða fyrir Flókalund.
Það er að segja ef lánin væru greidd strax upp. Nú erum við með þrjú lán á Flókalundi. Eitt viðbótarlán og tvö önnur lán, eitt verðtryggt og hitt óverðtryggt. Við vorum svo heppin að geta tekið blandað lán til að minnka áhættuna.
Lánin bera vexti. Sem þýðir að 30 milljónir munu á endanum vera langt frá því að duga til að greiða upp alla íbúðina, samkvæmt reiknivél Landsbankans munum við á endanum þurfa að greiða rúmar 62 milljónir fyrir íbúðina með blandaða láninu sem við tókum, eða 26 milljónum meira en við keyptum hana á. Næstum því jafn mikið og sá sem greiddi hæstu skatta í Hafnarfirði fékk í árslaun 2020.
Athugasemdir