Sigurbjörn Þorkelsson, annar eigandi Ásmundarsals, staðfesti við Stundina að hann hafi vitað af einkasamtali á milli tveggja lögregluþjóna á vettvangi í Ásmundarsal á Þorláksmessu áður en nefnd um eftirlit með starfsháttum lögreglu hafði sömu vitneskju. Samtalið kom fram á búkmyndavél lögreglunnar af vettvangi.
Lögmaður Sigurbjörns og konu hans, Heiðu Magnúsdóttur, hins eiganda Ásmundarsals, lét nefndina vita af samtali lögreglumannana. Þetta staðfestir lögmaður nefndarinnar. „Nefndin hefði ekki haft vitneskju um ummælin ef henni hefði ekki borist sú kvörtun,“ segir í svari nefndarinnar við fyrirspurn blaðamanns.
„Hvernig yrði fréttatilkynningin [...] 40 manna einkasamkvæmi og þjóðþekktir einstaklingar [...] er það of mikið eða?“ Þá svaraði hinn lögregluþjónninn: „Ekki fyrir mig, ég myndi lesa það.“ Og einnig: „Ég þekkti tvær stelpur þarna uppi og þær eru báðar sjálfstæðis [...] svona [...] framapotarar eða þú veist.“
Lögmaður og lögregla þau einu með aðgang að ákvörðun NEL
Aðspurð að því hvernig lögmaðurinn vissi að …
Athugasemdir