Bernhard Esau og Sacky Shanghala, fyrrverandi ráðherrum í Namibíu, hefur verið bannað að ferðast til Bandaríkjanna. Ástæðan er þátttaka þeirra í spillingu sem hafi grafið undan lögum og tiltrú namibísks almennings á stjórnvöldum. Þetta kemur fram í tilkynningu bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Tvímenningarnir voru lykilþátttakendur í málinu sem afhjúpað var með Samherjaskjölunum. Esau sem sjávarútvegsráðherra og Shanghala sem áhrifamaður í stjórnarflokknum SWAPO. Í slagtogi við aðra einstaklinga, sér í lagi tengdason sjávarútvegsráðherrans og frænda hans, var verðmætum hestamakrílskvóta komið til félaga tengdum Samherja í Namibíu.
Esau og Shanghala hafa setið í varðhaldi í Namibíu síðan síðla árs 2019 en þeir voru handteknir eftir birtingu Samherjaskjalanna í nóvember sama ár. Skjölin, sem Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjölluðu um í samstarfi við Wikileaks, sýndu hvernig aðilar tengdir …
Athugasemdir