Sonur minn varð nýlega eins árs. Af því tilefni hef ég í samráði við pabba hans, ákveðið að slá til fögnuðar honum til heiðurs. Öll fjölskyldan tekur þátt í að undirbúa eða koma að hátíðarhöldunum með einum eða öðrum hætti. Amma Lára ætlar að baka köku, afi Einar ætlar að halda tónleika, amma Mæja ætlar að hjálpa til við að skreyta og Helga systir ætlar að baka brauð. Hallveig vinkona sendir mér skilaboð á hverjum degi því hún er svo spennt fyrir afmælinu en hún er nýkomin heim frá Svíþjóð og hefur því ekki fengið að knúsa son minn í „alltof langan tíma“.
Sonur minn er umkringdur fólki sem keppist um að elska hann sem mest. Pabbi hans segir stundum að hann sakni hans meira að segja þegar hann fer að sofa, þó svo að síðasti klukkutíminn fyrir svefninn hafi reynt á okkur foreldrana, en sonur minn fær toppþjónustu dag …
Athugasemdir