Í janúar dóu þrír. Í febrúar einn. 13 eru alvarlega slasaðir. 116 minna slasaðir. Þúsund slösuðust í fyrra.
Þið megið kalla það valkvætt, en þegar umferðarmannvirki taka helminginn af borgarlandinu verður valið um umferðina minna og minna. Val eins hóps um að nota bíl skerðir frelsi annarra og ógnar þeim um leið, tölfræðilega að minnsta kosti. Á tíu árum hafa tæplega 800 slasast fótgangandi af hendi umferðarinnar á Íslandi. Í fyrra slösuðust tólf þeirra alvarlega. Það var ekið á 282 óvarða vegfarendur í fyrra. Það var ekið. Eða einhver ók. Óvart á fólk. Síðustu tíu árin hefur verið keyrt á 1.767 óvarða einstaklinga. Reyndar gæti það verið oftalið ef það var keyrt oftar en einu sinni á einhverja þeirra. Það má hins vegar segja að þeir hafi ekki valið að láta keyra á sig. Þeir völdu bara að vera óvarin af bíl.
Umferðin hefur talist nauðsynleg. En við endurmetum nauðsyn fyrir öryggi. Þarf fólk að ferðast? Er það virkilega nauðsynlegt? Getur fólk ekki tekið strætó? Hjólað? Ferðast fótgangandi? Forðast ónauðsynlegar ökuferðir? Það mætti halda daglega upplýsingafundi almannavarna með tölfræði árekstra þann daginn. 467 umferðarslys urðu í febrúar.
Ef eitthvað er öruggt er það að heilsufarsáhrif hreyfingarleysis valda fjöldanum öllum af dauðsföllum. 34% allra Íslendinga sem létust árin 2006 til 2015 gerðu það vegna blóðrásarsjúkdóma. Auðvitað er dauðinn óumflýjanlegur og hreyfing hjálpar ekki alltaf. En hversu mörgum lífum gætum við bjargað með því að banna umferðina? Hversu margir myndu sleppa við langvinn áhrif af áakstri?
Og loftmengunin. Stundum mega leikskólabörn ekki fara út vegna svifryksmengunar. Umhverfisstofnun Evrópu áætlaði fyrir nokkrum árum að hundrað manns deyi árlega á Íslandi vegna mengunar sem kemur nær eingöngu frá umferð bíla: Niturdíoxíð, svifryk og óson. Þá eru ótalin áhrifin á loftslag heimsins og þar með framtíð barnanna. Þurfum við að ræða gjaldeyristapið af innkaupum á eldsneyti?
En þetta er ekki fordæmalaust. Við höfum normalíserað. Ef við veltum þessu aftur fyrir okkur kemur í ljós að við erum (sum) með: Fjarvinnu, sveigjanlegan vinnutíma, rafhlaupahjól, snjallsíma, vefbúðir, bráðum borgarlínu og að endingu heimsendingu. Pósturinn er með rafþríhjól og heimsendingadrónar á leiðinni. Okkur eru allir vegir færir.
Herra Hnetusmjör ætlaði um daginn að keyra að afleggjaranum á Keflavíkurflugvelli og loka veginum til að loka landamærunum. Hann er með fataskáp afturí. Keyrir á trukknum. Hann vill banna fólki að ferðast. Svo það sé öruggt að enginn geti mögulega smitast af Covid-19 af útlendingum. Og tónleikahald verði leyft að nýju. Hann snappaði, sagðist vera „brjálaður“.
Eins og hann rappaði:
Ég rokka Prada og Burberry
Ég er með fataskáp afturí
Ég rokka krapið og Versace
Ég er með fataskáp afturí
Ég setti orkudrykk á Instagram
Og ég tók 100 þúsund fyrir það
Ég legg inn krónu
Legg inn vinnuna
Og kasta kveðju á alla senuna
Á vegi gæfu og gengis
Á vegi gæfu með gengi
Púlla upp, rúll'ykkur upp
Bara ég og Spegill
20 mínútur heim telja pening
Vildi hring og keypti fjóra
Vildi keðju fékk mér stóra
Svo gætum við yljað okkur við að þótt Keflavíkurflugvelli hefði verið lokað, væri galopið í Costa Del Kóp. Þar drýpur hnetusmjör af hverju strái.
Athugasemdir