Ég var tiltölulega nýbyrjaður í blaðamennsku þegar reyndur kollegi hafði orð á gildi jafnréttis í faginu. Útskýrði að það sé ekki bara jafnréttismál að hafa sem mestan jöfnuð í ritstjórnum stórra fjölmiðla – jöfnuð eftir kynjum, uppruna, aldri, menntun og fleiru – heldur gerir það fjölmiðlana einfaldlega miklu betri.
Hvernig þá?
Jú, það sé svosem alveg mögulegt að 40 hvítir karlmenn, sem allir búa í sama póstnúmeri og gengu allir í sömu skólana, séu allir sem einn svakalega sniðugir og pennafærir og skarpir. En fréttanefin þeirra eru öll að finna lykt úr sama horninu og finna þar með sömu fréttirnar. Mögulega sömu fréttirnar og allir hinir miðlarnir.
Með því að hafa sem mesta breidd á ritstjórn þá væri einfaldlega verið að kasta netinu miklu víðar; fá fréttir af öllu tagi úr sem flestum kimum samfélagsins og sömuleiðis fjölbreyttari óskir um efnistök sem og hugmyndir að efni. Þegar upplýsingar og hugmyndir …
Athugasemdir