Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Þau fá listamannalaun 2021

2.150 mán­uð­um af lista­manna­laun­um var út­hlut­að til sam­tals 453 lista­manna í dag.

Þau fá listamannalaun 2021

Listamannalaunum hefur nú verið úthlutað fyrir árið 2021. Alls sóttu 1.305 um listamannalaun, auk 135 sviðslistahópa með um 940 listamönnum. Jákvætt svar barst 308 listamönnum og 26 sviðslistahópum sem samanstanda af um 145 sviðslistamönnum. Samtals fá því um 453 listamenn laun frá ríkinu, í alls 2.150 mánuði. Fjöldi úthlutunarmánaða var aukinn úr 1.600 vegna heimsfaraldursins. 

Samtals er úthlutað úr sex sjóðum, launasjóði hönnuða, tónskálda, tónlistarflytjenda, sviðslistafólks, myndlistarmanna og loks rithöfunda. 

Launasjóður rithöfunda er fyrirferðarmestur þessara sjóða og úthlutaði 646 mánuðum, en alls sóttu 295 rithöfundar um laun í samtals 3.097 mánuði. Starfslaun fá 94 rithöfundar, þar af 45 konur og 49 karlar. 

Fjórtán fá laun í tólf mánuði

Alls fengu fjórtán úthlutuðum tólf mánaða ritlaunum. Andri Snær Magnason, Auður Jónsdóttir, Bergsveinn Birgisson, Eiríkur Örn Norðdahl, Gerður Kristný, Guðrún Eva Mínevrudóttir og Hallgrímur Helgason fengu tólf mánuðum úthlutað í fyrra og aftur í ár. 

Á meðal þeirra sem fá núna tólf mánaða ritlaun en fengu áður níu mánuði eru: Einar Már Guðmundsson, Gyrðir Elíasson, Hildur Knútsdóttir, Jón Kalmann Stefánsson og Þórdís Gísladóttir.

Sigrún Pálsdóttir og Elísabet Jökulsdóttir fá einnig tólf mánaða ritlaun að þessu sinni en fengu sex mánaða ritlaun á síðasta ári. „Ég er barmafull af undrun, gleði og þakklæti. Þakka traustið,“ segir Elísabet á Facebook. 

Þá fær Sölvi Björn Sigurðsson tíu mánaða ritlaun, en aðrir fá níu, sex eða þriggja mánuða laun.

Tilnefnd til verðlauna og fá tólf mánaða úthlutun

Bók Elísabetar, Aprílsólarkuldi, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020 í flokki skáldverka. Jónas Reynir Gunnarsson fékk einnig tilnefningu til verðlaunanna í sama flokki fyrir bókina Dauði skógar og fékk níu mánaða úthlutun úr launasjóði rithöfunda. Hildur Knútsdóttir fékk einnig tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bókina Skógurinn, sem er lokahnykkurinn á þríleik hennar. Sem fyrr segir fengu þær Elísabet og Hildur tólf mánaða ritlaun. 

Aðrir tilnefndir höfundar eru ekki á lista úthlutundarnefndarinnar, en óvíst er hvort þeir séu með nýtt verk í smíðum og hafi sótt um starfslaun vegna þess. Starfslaunin eru verkefnamiðuð og með umsókn þarf að fylgja ítarleg lýsing á því verki sem verið er að vinna. 

Þeir höfundar sem hafa hlotið náð fyrir augum nefndarinnar hafa fyrst og fremst sinnt skáldskap, en aðrir sem sinna að ritstörfum í flokki fræðibóka eða almennra rita hafa ekki átt erindi sem erfiði. 

Gleði eða vonbrigði 

Einn þeirra sem fékk umsókn sína samþykkta var Þórarinn Leifsson rithöfundur sem sagði einfaldlega: „Fékk listamannalaun rétt í þessu – aðallega af því að ég á það f****g skilið. Gleðilegt ár.“ Hann fékk þriggja mánaða ritlaun en eftir hann liggja bæði skáldverk og barnabækur. Ein bókin, Maðurinn sem hataði börn, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2015. 

Sverrir Norland segir: „Ritlaun. Sex mánuðir. Fram til sigurs.“ Hann sagði nýlega starfi sínu lausu til þess að einbeita sér að eigin verkefnum. „Ætla að eyða næstu mánuðum í sjálfstæð og skapandi verkefni áður en ég festi mig kannski einhvers staðar aftur,“ sagði hann í Facebook-færslu í gær, en hann rekur meðal annars AM forlag ásamt Cerise Fontaine.

Aðrir geta ekki leynt vonbrigðum sínum. Júlía Margrét Einarsdóttir viðurkennir að hún  hafi orðið svolítið spæld þegar hún fékk neikvætt svar við umsókninni: „Ég ætlaði að fá mér salat og vítamín í hádegismat og taka til en svo fékk ég meil um að ég fengi engin listamannalaun. Þá ákvað ég í staðinn að verða smá spæld. Hafsteinn bauð mér upp á ís til að gera allt betra og það virkaði. Svo bara heldur maður áfram að vinna, klárar bókina og það verður gaman!“ 

Heimilt að fella niður greiðslur

Starfslaun nema 409.580 krónum á mánuði samkvæmt fjárlögum 2021. Um verktakalaun er að ræða. Þeir sem njóta starfslauna í sex mánuði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi á meðan starfslaunatímanum stendur og stjórn listamannalauna má fella niður starfslaun sem veitt eru til lengri tíma en sex mánaða ef listamaðurinn sinnir ekki list sinni að mati stjórnarinnar. Eigi síðar en ári eftir að tímabilinu líkur er listamönnum gert að skila inn skýrslu þar sem þeir gera grein fyrir störfum sínum. 

Launasjóður rithöfunda

646 mánuðir

  • Launasjóður rithöfunda: 646 mánuðir voru til úthlutunar, sótt var um 3097 mánuði.

    • Alls bárust 295 umsóknir í launasjóð rithöfunda.
    • Starfslaun fá 94 rithöfundar, 45 konur og 49 karlar.

12 mánuðir

  • Andri Snær Magnason
  • Auður Jónsdóttir
  • Bergsveinn Birgisson
  • Einar Már Guðmundsson
  • Eiríkur Örn Norðdahl
  • Elísabet K. Jökulsdóttir
  • Gerður Kristný Guðjónsdóttir
  • Guðrún Eva Mínervudóttir
  • Gyrðir Elíasson
  • Hallgrímur Helgason
  • Hildur Knútsdóttir
  • Jón Kalman Stefánsson
  • Sigrún Pálsdóttir
  • Þórdís Gísladóttir

10 mánuðir

  • Sölvi Björn Sigurðsson

9 mánuðir

  • Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Bergþóra Snæbjörnsdóttir
  • Bjarni M. Bjarnason
  • Bragi Ólafsson
  • Einar Kárason
  • Fríða Ísberg
  • Gunnar Theodór Eggertsson
  • Haukur Már Helgason
  • Hermann Stefánsson
  • Hjörleifur Hjartarson
  • Jónas Reynir Gunnarsson
  • Kristín Eiríksdóttir
  • Kristín Ómarsdóttir
  • Linda Vilhjálmsdóttir
  • Oddný Eir Ævarsdóttir
  • Ófeigur Sigurðsson
  • Pedro Gunnlaugur Garcia
  • Ragnheiður Sigurðardóttir
  • Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Steinar Bragi Guðmundsson
  • Tyrfingur Tyrfingsson
  • Vilborg Davíðsdóttir
  • Þórunn Elín Valdimarsdóttir

6 mánuðir

  • Alexander Dan Vilhjálmsson
  • Anton Helgi Jónsson
  • Benný Sif Ísleifsdóttir
  • Bjarni Jónsson
  • Bragi Páll Sigurðarson
  • Dagur Hjartarson
  • Eiríkur Ómar Guðmundsson
  • Emil Hjörvar Petersen
  • Friðgeir Einarsson
  • Guðmundur Jóhann Óskarsson
  • Guðmundur Steingrímsson
  • Guðmundur Sveinbjörn Brynjólfsson
  • Gunnar Helgason
  • Halldór Armand Ásgeirsson
  • Halldór Laxness Halldórsson
  • Haukur Ingvarsson
  • Heiðrún Ólafsdóttir
  • Ísak Hörður Harðarson
  • Kamilla Einarsdóttir
  • Kristín Helga Gunnarsdóttir
  • Magnús Sigurðsson
  • Ragnar Helgi Ólafsson
  • Ragnheiður Eyjólfsdóttir
  • Sigríður Hagalín Björnsdóttir
  • Sigrún Eldjárn
  • Sigurlín Bjarney Gísladóttir
  • Stefán Máni Sigþórsson
  • Steinunn Guðríður Helgadóttir
  • Sverrir Norland
  • Þórdís Helgadóttir
  • Yrsa Þöll Gylfadóttir

3 mánuðir

  • Áslaug Jónsdóttir
  • Birta Ósmann Þórhallsdóttir
  • Brynja Hjálmsdóttir
  • Brynjólfur Þorsteinsson
  • Eva Rún Snorradóttir
  • Harpa Rún Kristjánsdóttir
  • Helgi Ingólfsson
  • Jónína Leósdóttir
  • Kári Tulinius
  • Karl Ágúst Úlfsson
  • Kristín Ragna Gunnarsdóttir
  • Kristín Steinsdóttir
  • Lani Yamamoto
  • María Elísabet Bragadóttir 

  • Ólafur Gunnarsson
  • Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
  • Pétur Gunnarsson
  • Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
  • Soffía Bjarnadóttir
  • Steinunn Sigurðardóttir
  • Sunna Dís Másdóttir
  • Þóra Karítas Árnadóttir
  • Þórarinn Eldjárn
  • Þórarinn Leifsson
  • Ævar Þór Benediktsson

Launasjóður hönnuða

75 mánuðir

Launasjóður hönnuða: 75 mánuðir voru til úthlutunar, sótt var um 793 mánuði.

  • Alls bárust 106 umsóknir í launasjóð hönnuða.
  • Starfslaun fá 10 hönnuðir, 6 konur og 4 karlar.

12 mánuðir

  • Arnar Már Jónsson
  • Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir

9 mánuðir

  • Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir

8 mánuðir

  • Hanna Dís Whitehead
  • Rán Flygenring

7 mánuðir

  • Björn Steinar Blumenstein

6 mánuðir

  • Elín-Margot Ármannsdóttir
  • Thomas Pausz

4 mánuðir

  • Anna Katharina Blocher

3 mánuðir

  • Baldur Helgi Snorrason

Launasjóður myndlistamanna

526 mánuðir

Launasjóður myndlistarmanna: 526 mánuðir voru til úthlutunar, sótt var um 4065 mánuði.

  • Alls bárust 373 umsóknir í launasjóð myndlistarmanna.
  • Starfslaun fá 83 myndlistarmenn, 50 konur og 33 karlar.

12 mánuðir

  • Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
  • Anna Rún Tryggvadóttir
  • Elín Hansdóttir
  • Finnbogi Pétursson
  • Guðný Rósa Ingimarsdóttir
  • Hrafnkell Sigurðsson
  • Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
  • Sindri Leifsson
  • Þórdís Aðalsteinsdóttir
  • Örn Alexander Ámundarson

10 mánuðir

  • Gunnhildur Hauksdóttir

9 mánuðir

  • Anna Guðrún Líndal
  • Carl Théodore Marcus Boutard
  • Margrét H. Blöndal
  • Páll Haukur Björnsson
  • Sirra Sigrún Sigurðardóttir

6 mánuðir

  • Andreas Martin Brunner
  • Anna Helen Katarina Hallin
  • Arnar Ásgeirsson
  • Arnfinnur Jóhann R. Amazeen
  • Ásta Fanney Sigurðardóttir
  • Auður Lóa Guðnadóttir
  • Birgir Snæbjörn Birgisson
  • Bjargey Ólafsdóttir
  • Claire Jacqueline Marguerite Paugam
  • Dodda Maggý / Þórunn Maggý Kristjánsdóttir
  • Eirún Sigurðardóttir
  • Elísabet Brynhildardóttir
  • Erling T.V. Klingenberg
  • Eygló Harðardóttir
  • Guðlaug Mía Eyþórsdóttir
  • Hallgerður G. Hallgrímsdóttir
  • Helga Páley Friðþjófsdóttir
  • Helgi Þórsson
  • Hildigunnur Birgisdóttir
  • Hildur Bjarnadóttir
  • Hrafnhildur Arnardóttir
  • Hulda Margrét Hákonardóttir
  • Hulda Rós Guðnadóttir
  • Ingólfur Örn Arnarsson
  • Ívar Valgarðsson
  • Jóhanna K. Sigurðardóttir
  • Karlotta Jóhannesdóttir Blöndal
  • Katrín Bára Elvarsdóttir
  • Katrín Sigurðardóttir
  • Kolbeinn Hugi Höskuldsson
  • Magnús Óskar Helgason
  • Magnús Sigurðarson
  • Magnús Tumi Magnússon
  • Ólafur Sveinn Gíslason
  • Olga Soffía Bergmann
  • Ólöf Jónína Jónsdóttir
  • Ólöf Nordal
  • Pétur Magnússon
  • Ráðhildur Sigrún Ingadóttir
  • Ragnar Axelsson
  • Ragnar Helgi Ólafsson
  • Rúrí (Þuríður Rúrí Fannberg)
  • Selma Hreggviðsdóttir
  • Sigríður Björg Sigurðardóttir
  • Sigtryggur Berg Sigmarsson
  • Sigurður Þórir Ámundason
  • Steingrímur Eyfjörð
  • Steinunn M. Önnudóttir
  • Styrmir Örn Guðmundsson
  • Wioleta Anna Ujazdowska


3 mánuðir

  • Agnieszka Eva Sosnowska
  • Ásgerður Birna Björnsdóttir
  • Ásmundur Ásmundsson
  • Baldvin Einarsson
  • Björk Guðnadóttir
  • Björn Loki Björnsson
  • Bryndís Björnsdóttir
  • Claudia Hausfeld
  • Einar Falur Ingólfsson
  • Elsa Jónsdóttir
  • Eva Ísleifsdóttir
  • Heimir Björgúlfsson
  • Hildur Ása Henrýsdóttir
  • Starkaður Sigurðarson
  • Una Margrét Árnadóttir
  • Þórdís Erla Zoega
  • Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson

Launasjóður sviðslistafólks

307 mánuðir

Launasjóður sviðslistafólks: 307 mánuðir voru til úthlutunar, sótt var um 1841 mánuði.

  • Alls bárust umsóknir frá 940 frá listamönnum sem tilheyrðu 135 sviðslistahópum og 68 einstaklingum
  • Starfslaun í sviðslistahópum fá 145 sviðslistamenn, 79 konur og 66 karl
  • Starfslaun einstaklinga fá 15 sviðslistamenn 59 mánuði, 10 konur og 5 karlar.

EINSTAKLINGAR

10 mánuðir

  • Finnur Arnar Arnarson

5 mánuðir

  • Sólveig Guðmundsdóttir

4 mánuðir

  • Hjörleifur Hjartarson
  • Kolbrún Halldórsdóttir
  • Kolfinna Nikulásdóttir
  • Magnús Jónsson
  • Páll Baldvin Baldvinsson
  • Þóra Karítas Árnadóttir

3 mánuðir

  • Ásgerður Júníusdóttir
  • María Heba Þorkelsdóttir
  • Rebekka A. Ingimundardóttir
  • Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
  • Vignir Rafn Valthórsson
  • Þórey Sigþórsdóttir

2 mánuðir

  • Tinna Grétarsdóttir


SVIÐSLISTAHÓPAR 

  • Heiti sviðlistahóps - heiti verks: nöfn leikara

24 mánuðir

  • Animato - Mærþöll ópera: Bjarni Thor Kristinsson, Björk Níelsdóttir, Erla Dóra Vogler, Eva Björg Harðardóttir, Eva Þyri Hilmarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Gunnlaugur Bjarnason, Hildigunnur Halldórsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir 

20 mánuðir

  • Gaflaraleikhúsið - tengt samstarfssamningum Gaflaraleikhúss við Hafnarfjarðarbæ og Sviðslistasjóð.

19 mánuðir

  • Menningarfélagið Tær - Alda: Katrín Gunnarsdóttir, Eva Signý Berger, Halla Þórðardóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir, Anais Florence Lea Barthe, Heba Eir Jónasdóttir Kjeld, Snædís Lilja Ingadóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, Védís Kjartansdóttir

16 mánuðir

  • Sviðslistahópurinn dB - Eyja: Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Uldis Ozols, Kjartan Darri Kristjánsson, Þór Tulinius, Sigríður Vala Jóhannsdóttir, Sigríður Sunna Reynisdóttir, Jóhann Bjarni Pálmason, Kristjana Stefánsdóttir

15 mánuðir

  • Fimbulvetur - Blóðuga Kanínan: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Þórunn María Jónsdóttir, Borgar Þór Magnason, Friðþjófur Þorsteinsson, Matthías Tryggvi Haraldsson, Gunnar Hansson, Hannes Óli Ágústsson, Íris Tanja Ívars Flygenring, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Þóra Karítas Árnadóttir

14 mánuðir

  • Pokahorn - Kossafar á ilinni: Margrét Kristín Sigurðardóttir, Sara Marti Guðmundsdóttir, Unnur Birna Björnsdóttir, Sigríður Sunna Reynisdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Guðmundur Elías Knudsen, Birkir Rafn Gíslason, Jökull Jörgensen, Scott Ashley Mc Lemore, Una Lorenzen

13 mánuðir

  • EP, félagasamtök - Venus Í feldi: Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Filippía Ingibjörg Elísdóttir, Harpa Arnardóttir, Stefán Már Magnússon, Björn Bergsteinn Guðmundsson, Valgeir Sigurðsson

11 mánuðir

  • Frystiklefinn - DNA: Kári Viðarsson, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Friðþjófur Þorsteinsson, Sigríður Sunna Reynisdóttir, María Ingibjörg Reyndal, Gréta Kristín Ómarsdóttir 
  • HETJA - Heil(brigðis) grímuleikur á heimsmælikvarða: Greta Ann Clough, Aldís Gyða Davíðsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Orri Huginn Ágústsson, Eggert Hilmarsson + 2 ónefndir.
  • Undur og stórmerki - Fíflið: Karl Ágúst Úlfsson, Ágústa Skúladóttir, Eyvindur Karlsson, Guðrún Öyahals, Ólafur Ágúst Stefánsson 

10 mánuðir

  • Forspil að framtíð: Ævar Þór Benediktsson, Kjartan Ólafsson, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Védís Kjartansdóttir 
  • Selsaugu - Þoka/Mjørka: Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson, Brynja Björnsdóttir, Gunnar Karel Másson

9 mánuðir

  • Miðnætti leikhús - Tjaldið: Agnes Þorkelsdóttir Wild, Eva Björg Harðardóttir, Sigrún Harðardóttir, Nicholas Arthur Candy, Kristinn Brynjar Pálsson
  • Panic Production - ROF: Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Valgeir Sigurðsson, Eva Signý Berger, Halla Þórðardóttir 

7 mánuðir

  • Leikfélagið Annað svið - Það sem er: María Ellingsen, Ólafur Egill Egilsson, Björn Bergsteinn Guðmundsson, Ólafur Björn Ólafsson

6 mánuðir

  • Hellaðir - Heilinn í Hellinum: Albert Halldórsson, Gígja Sara Helgudóttir Björnsson , Kjartan Darri Kristjánsson, Pálmi Freyr Hauksson
  • Leikfélagið PóliS - Tu jest za drogo /Úff hvað allt er dýrt hérna: Ólafur Ásgeirsson, Aleksandra Skolozynska, Jakub Ziemann, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Wioleta Anna Ujazdowska
  • Soðið svið - Framhald í næsta bréfi: Salka Guðmundsdóttir, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir

5 mánuðir

  • Ferðalangar sögunnar - Söguferðalangar: Tryggvi Gunnarsson, Valdimar Jóhannsson
  • Ljós-til-líf-unun - BRUM: Kara Hergils Valdimarsdóttir, Andrea Elín Vilhjálmsdóttir, Harpa Arnardóttir, Gunnur Martinsdóttir Schluter, Ragnheiður Erla Björnsdóttir
  • Menningarfélagið Marmarabörn - Ó, veður: Katrín Gunnarsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Saga Sigurðardóttir, Védís Kjartansdóttir, Sigurður Arent Jónsson

4 mánuðir

  • Sómi þjóðar - (Ó)sómi þjóðar: Tryggvi Gunnarsson, Hilmir Jensson 
  • Slembilukka - Sjáið mig: Bryndís Ósk Þ Ingvarsdóttir, Laufey Haraldsdóttir

3 mánuðir

  • Kváma - Söngleikurinn Rokkarinn og rótarinn: Þór Breiðfjörð Kristinsson, Davíð Sigurgeirsson, Orri Huginn Ágústsson
  • Sviðslistahópur Helga og Árna - Þögnin - óperuhljóðverk: Árni Kristjánsson, Bjarni Thor Kristinsson, Elsa Waage

2 mánuðir

Aquarius - Tilraunin Hasim - Götustrákur í Kalkútta og Reykjavík: Jónmundur Grétarsson, Silja Hauksdóttir

Launasjóður tónlistarflytjenda

315 mánuðir

Launasjóður tónlistarflytjenda: 315 mánuðir voru til úthlutunar, sótt var um 1870 mánuði.

  • Alls bárust 237 umsóknir í sjóðinn frá tónlistarflytjendum
  • Starfslaun fá 62 tónlistarmenn, 34 konur og 28 karlar.

12 mánuðir

  • Guðrún Ýr Eyfj. Jóhannesdóttir
  • Hallveig Rúnarsdóttir
  • Óskar Guðjónsson
  • Tómas Jónsson

9 mánuðir

  • Magnús Jóhann Ragnarsson
  • Þorgrímur Jónsson

8 mánuðir

  • Svavar Knútur Kristinsson

7 mánuðir

  • Björk Níelsdóttir
  • Skúli Sverrisson

6 mánuðir

  • Alexandra Kjeld
  • Arngerður María Árnadóttir
  • Elfa Rún Kristinsdóttir
  • Ellen Rósalind Kristjánsdóttir
  • Eyjólfur Eyjólfsson
  • Francisco Javier Jauregui Narvaez
  • Grímur Helgason
  • Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir
  • Guðmundur Óli Gunnarsson
  • Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
  • Haukur Gröndal
  • Helga Þóra Björgvinsdóttir
  • Hildigunnur Einarsdóttir
  • Ingibjörg Elsa Turchi
  • Jóhann Kristinsson
  • Kristinn Sigmundsson
  • Kristofer Rodriguez Svönuson
  • Lilja Dögg Gunnarsdóttir
  • Magnús Trygvason Eliassen
  • Margrét Hrafnsdóttir
  • Oddur Arnþór Jónsson
  • Ómar Guðjónsson
  • Sigurður Bjarki Gunnarsson
  • Una Sveinbjarnardóttir
  • Þorleifur Gaukur Davíðsson
  • Þórunn Ósk Marinósdóttir

5 mánuðir

  • Þóra Margrét Sveinsdóttir

3 mánuðir

  • Ásgeir Aðalsteinsson
  • Auður Hafsteinsdóttir
  • Birnir Sigurðarson
  • Guðbjörg Sandholt Gísladóttir
  • Hafdís Vigfúsdóttir
  • Herdís Anna Jónasdóttir
  • Kjartan Sveinsson
  • Lilja María Ásmundsdóttir
  • María Huld Markan Sigfúsdóttir
  • Marína Ósk Þórólfsdóttir
  • Mikael Máni Ásmundsson
  • Ólöf Helga Arnalds
  • Sigrún Harðardóttir
  • Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
  • Úlfur Hansson
  • Una Stefánsdóttir
  • Valdimar Guðmundsson
  • Þórdís Gerður Jónsdóttir

2 mánuðir

  • Gísli Jóhann Grétarsson
  • Jane Ade Sutarjo
  • Steinar Logi Helgason
  • Svanur Vilbergsson

1 mánuður

  • Gróa Margrét Valdimarsdóttir
  • Guðrún Hrund Harðardóttir
  • Gunnhildur Daðadóttir
  • Hrafnhildur M. Guðmundsdóttir

Launasjóður tónskálda

281 mánuður

Launasjóður tónskálda: 281 mánuður voru til úthlutunar, sótt var um 2012 mánuð.

  • Alls bárust 226 umsóknir í sjóðinn frá tónskáldum.
  • Starfslaun fá 44 tónskáld, 21 kona og 23 karlar.

12 mánuðir

  • Bára Gísladóttir
  • Bára Grímsdóttir
  • Halldór Smárason
  • Hildur Kristín Stefánsdóttir
  • Teitur Magnússon
  • Úlfur Eldjárn
  • Þuríður Jónsdóttir

9 mánuðir

  • Andri Ólafsson
  • Veronique Jacques

6 mánuðir

  • Agnar Már Magnússon
  • Andrés Þór Gunnlaugsson
  • Ásbjörg Jónsdóttir
  • Ásgeir Aðalsteinsson
  • Bergrún Snæbjörnsdóttir
  • Finnur Karlsson
  • Guðmundur Steinn Gunnarsson
  • Gunnar Gunnsteinsson
  • Gyða Valtýsdóttir
  • Hafdís Bjarnadóttir
  • Halldór Eldjárn
  • Ingibjörg Elsa Turchi
  • Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
  • Katrín Helga Andrésdóttir
  • Kjartan Sveinsson
  • Mikael Máni Ásmundsson
  • Ómar Guðjónsson
  • Pall Ragnar Pálsson
  • Ríkharður H Friðriksson
  • Snorri Sigfús Birgisson
  • Sóley Stefánsdóttir
  • Una Stefánsdóttir
  • Valdimar Guðmundsson
  • Þórunn Gréta Sigurðardóttir

5 mánuðir

  • Þóranna Dögg Björnsdóttir

3 mánuðir

  • Bjarki Rúnar Sigurðarson
  • Jóhann G. Jóhannsson
  • Kristín Björk Kristjánsdóttir
  • Ólafur Björn Ólafsson
  • Pétur Eggertsson
  • Ragna Kjartansdóttir
  • Ragnar Árni Ólafsson
  • Ragnheiður Erla Björnsdóttir
  • Rakel Mjöll Leifsdóttir
  • Salka Valsdóttir

Úthlutunarnefndir 2021 voru skipaðar sem hér segir: 

  • Launasjóður hönnuða: Ástþór Helgason, formaður, Halldóra Vífilsdóttir, Þórunn Hannesdóttir
  • Launasjóður myndlistarmanna: Aldís Arnardóttir, formaður, Unnar Örn Jónasson, Sigurður Árni Sigurðsson
  • Launasjóður rithöfunda: Ingibjörg Sigurðardóttir, formaður, Þorgeir Tryggvason, Þórður Helgason.
  • Launasjóður sviðslistafólks: Agnar Jón Egilsson, formaður, Hrefna Hallgrímsdóttir, Vigdís Másdóttir.
  • Launasjóður tónlistarflytjenda: Helgi Jónsson, formaður, Jóhanna Ósk Valsdóttir, Sólveig Moravek Jóhannsdóttir.
  • Launasjóður tónskálda: Gunnar Karel Másson formaður, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Máni Svavarsson.

Stjórn listamannalauna 2018-2021 

  • Bryndís Loftsdóttir, formaður
  • Hlynur Helgason
  • Markús Þór Andrésson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
1
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
6
Fréttir

Millj­arð­ar kvenna sem passa ekki inn í út­lits­box­ið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki leng­ur í tísku og að Bridget Jo­nes sé ekki leng­ur tal­in feit, eru út­lit­s­kröf­ur til nú­tíma­kvenna enn óraun­hæf­ar, seg­ir pró­fess­or í fé­lags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áð­ur hafi ver­ið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smán­að út af út­liti.“
Varð vitni að handtöku í leigubílstjóramálinu
9
FréttirÁ vettvangi

Varð vitni að hand­töku í leigu­bíl­stjóra­mál­inu

Í fe­brú­ar var leigu­bíl­stjóri hand­tek­inn, en hann var grun­að­ur um al­var­legt kyn­ferð­is­brot gegn konu sem hafði ver­ið far­þegi í bíl hans. Blaða­mað­ur­inn Jó­hann­es Kr. Kristjáns­son fékk að fylgja lög­reglu eft­ir við rann­sókn máls­ins. En hann varð með­al ann­ars vitni að hand­töku ann­ars sak­born­ings­ins og fékk að sjá meint­an vett­vang glæps­ins.
Birgir segir mistök að ekki sé gert ráð fyrir nýrri kvennadeild á nýja Landspítalanum
10
Fréttir

Birg­ir seg­ir mis­tök að ekki sé gert ráð fyr­ir nýrri kvenna­deild á nýja Land­spít­al­an­um

Í störf­um þings­ins ræddu þing­menn ým­is mál. Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir gagn­rýndi Sam­fylk­ing­una, Birg­ir Þór­ar­ins­son benti á myglu­vanda­mál Land­spít­al­ans og sér­stak­lega þá stöðu sem er kom­in upp á kvenna­deild­inni. Gagn­rýndi hann að ekki væri gert ráð fyr­ir nýrri kvenna­deild í bygg­ingu nýja Land­spít­al­ans. Jó­hann Páll Jó­hann­es­son benti á að eins og stað­an er í dag geti smá­lána­fyr­ir­tæki not­fært sér neyð fólks og grætt á þeirra stöðu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
2
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
4
FréttirLaxeldi

Rík­is­stjórn­in vill gefa kvót­ann í lax­eld­inu um ald­ur og ævi

Í frum­varpi mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi er kveð­ið á um að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in í land­inu hafi „ótíma­bund­in“ rekstr­ar­leyfi til að stunda sjókvía­eldi í ís­lensk­um fjörð­um. Hing­að til hafa rekstr­ar­leyf­in ver­ið tíma­bund­in í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórn­völd á Ís­landi ekki geta bann­að sjókvía­eldi án þess að baka sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
7
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
8
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
9
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár