Undanfarnar vikur hefur hvað eftir annað dúkkað upp sú líking í fjölmiðlum að framferði Donald Trumps Bandaríkjaforseta megi einna helst líkja við hegðun Nerós keisara í Róm sem spilað hafi á fiðlu meðan borgin brann í júní árið 64 eftir Krist. Þessu líkingamáli var ætlað að vísa til þess að Trump eyddi tímanum í haldlaust þref um kosningasvik meðan landar hans féllu eins og flugur fyrir kórónaveirunni. Eftir atburðina í Washington á miðvikudag verður líklega að leita víðar í Rómarsögunni eftir fordæmum, en í bili er full ástæða til að kanna hvort líkingin um fiðluleik Nerós eigi í rauninni vel við Trump og hátterni hans.
Að losa sig við mömmu sína
Neró var 26 ára þá Róm brann, hann fæddist árið 37 e.Kr. Fyrsti keisari Rómar, Ágústus, var langalangafi Nerós í móðurætt en ungi maðurinn var að öðru leyti af helstu valdaættum borgarinnar síðustu áratugina. Claudius, afabróðir Nerós, varð keisari …
Athugasemdir