Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins, segir í samtali við Stundina að vegna stórtæks niðurskurðar hafi fréttastofan þurft að fækka stöðugildum um sex og þar af leiðandi segja upp þremur fréttamönnum. Í það heila er stöðugildum að fækka um níu vegna vegna niðurskurðar.
„Þó við séum að missa þrjá í þessum niðurskurði eru fleiri að fara í skert starfshlutfall og einhverjir að hætta. Í Kastljósi hafa áður verið tveir umsjónarmenn en nú er einn starfsmaður í Kastljósi. Við missum fólk þess vegna líka með öðrum hætti en uppsögnum,“ segir hún. Þar að auki nefnir hún að verið sé að skera niður allstaðar innan fréttastofunnar, en með mismunandi hætti.
Samkvæmt Rakel er fréttastofa RÚV að fá margfalt minna fjármagn á næsta ári en hún fékk þetta árið. „Niðurskurðurinn hjá okkur er hátt í tíu prósent. Við höfum ekki staðið frammi fyrir svona niðurskurði eða svona erfiðum ákvörðunum síðan 2013,“ segir hún.
Á …
Athugasemdir